Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
öldu hins liðna inn í samtímann en
Dimmu er hér með ráðlagt að þiggja
siglingafræðilega leiðsögn frá hendi
The Vintage Caravan og Sólstafa.
Hæg eru heimatökin.
Til og með Dimmu finnst mér
eins og færri séu í salnum en í fyrra.
Það breytist þegar aðalnúmerið stíg-
ur á svið, Mastodon frá Atlanta.
Koma þeirrar ágætu sveitar til
landsins fór undarlega lágt í ljósi
þess að hún er „hjúúúúúds“ í Am-
eríku, eins og Donald Trump myndi
orða það. Til allrar hamingju eru
málmverjar með á nótunum og láta
sig ekki vanta, þar á meðal upp-
blásin brúða sem fer mikinn í
miðjum hópnum.
Þetta er raunar í annað skipti
sem Mastodon skolar upp á Íslands-
strendur en sumarið 2003 kom sveit-
in fram á tónleikum á Grand Rokk
og Gauknum. Brann Dailor trommu-
leikari rifjar það upp í kveðjuskyni í
Valshöllinni og gerir dauðaleit að
eina gaurnum sem borgaði sig inn á
þá tónleika. „Þarna ertu!“ segir
hann sigri hrósandi og bendir út í
salinn. „Þið hin eruð öll að ljúga!“
Annars eru Mastodon-liðarekki mikið í spjallinu. Þaðeru örugglega einhver tíu
lög að baki þegar Troy Sanders
bassaleikari hleður loksins í „gott
kvöld“ og þakkar fyrir að fá tæki-
færi til að spila hér aftur. Það er allt
og sumt fram að uppistandi Dailors í
lokin. Mastodon lætur verkin tala.
Og það kjaftar á þeim hver
tuska, altso verkunum. Lög af sjöttu
og nýjustu breiðskífunni, Once More
’Round the Sun, eru áberandi á pró-
gramminu enda njótum við þess
heiðurs að vera viðstödd loka-
tónleikana á túr sem tileinkaður er
plötunni. Það kemur sér væntanlega
vel fyrir óvana enda er Once More
’Round the Sun líklega aðgengileg-
asta plata Mastodon frá upphafi.
Hún og The Hunter. Þarna er líka
eldra efni, meðal annars af hinni lof-
uðu Leviathan, sem er lauslega
byggð á einni merkustu skáldsögu
allra tíma, Moby Dick eftir Herman
Melville. Já, Mastodon-liðar eru
hugsandi menn; hafa líka gengið á
hólm við höfuðskepnurnar fjórar.
Ég hef hlustað töluvert á
Mastodon gegnum árin en geng ekki
svo langt að kalla mig aðdáanda.
Sveitin stækkaði samt á þessum tón-
leikum, hún er helþétt. Fagmenn
fram í fingurgóma. Brent Hinds átti
magnaða spretti á gítarnum, lagði
strengina m.a. undir tennurnar.
Man ekki eftir að hafa séð það síðan
Bláa bílskúrsbandið var og hét.
Sláttur Dailors er líka geggjaður;
hvaðan fær maðurinn eiginlega
kraftinn? Syngjandi ófáar línurnar.
Tónlistin er eins konar erkibirt-
ingarmynd proggmálms; þar ægir
öllu saman, þrassi, grúvi, alti og
hvað þetta allt heitir. Úr verður tón-
heimur engum öðrum líkur. Masto-
don er bara Mastodon.
Hver sagði svo að málmur gæti
ekki verið artí?
Leikgleði The Vintage Caravan leiðist ekki að troða upp, Óskar Logi Ágústsson og Alexander Örn Númason.
Slútt Þetta voru lokatónleikarnir á Once More ’Round the Sun-túrnum.
Benedikt Kristjánsson dúettinn
„Adeste Fideles“ sem margir þekkja
sem „Guðs kristni í heimi“. Það
verður að vanda skemmtilegt að
syngja í Langholtskirkju. Auðvitað
verður Jóns Stefánssonar saknað, en
Árni Harðarson var efsti maður á
lista og gott að fá hann til að stjórna
í staðinn,“ segir Andri Björn en Jón
er í veikindaleyfi um þessar mundir.
Hann gengst síðan við því að vera
mikið jólabarn. „Ég komst ekkert
heim um jólin í fyrra þannig að ég
nýt þess í ár að vera hér, ekki síst í
þessum fallega snjó með tilheyrandi
stemningu,“ segir Andri Björn.
Spennandi verkefni framundan
Morgunblaðið greindi í síðustu
viku frá því að Andri Björn myndi á
vori komanda syngja í King Arthur
eftir Purcell og Töfraflautunni eftir
Mozart við Óperuhúsið í Zürich. Frá
og með næsta hausti hefur hann ver-
ið ráðinn til að syngja hlutverk
Angelotti í Toscu eftir Puccini fyrir
English National Opera í London,
en sýningar verða haustið 2016, og
vorið 2018 hefur hann einnig verið
ráðinn til að syngja hlutverk í nýrri
óperu á aðalsviði Royal Opera
House í Covent Garden.
„Þetta er mikil viðurkenning og
gríðarlegur heiður að fá að syngja í
þessum húsum. Ég hlakka mjög
mikið til og vona að þetta geti orðið
upphafið á einhverju meira. Það er
þegar búið að nefna við mig að ég
geti tekið að mér fleiri hlutverk hjá
English National Opera,“ segir
Andri Björn og bendir á að Covent
Garden er eitt þekktasta óperuhús
heims og English National Opera er
eitt af stærstu óperuhúsum Bret-
landseyja.
„Svo skemmtilega vill til að ég
söng fyrir hjá bæði English National
Opera og Royal Opera House Cov-
ent Garden sama daginn og lenti
greinilega á sannkölluðum happa-
degi,“ segir Andri Björn og tekur
fram að verkefnið hjá Covent Gard-
en sé mjög spennandi.
„Það hvílir mjög mikil leynd yfir
verkefninu sem verið er að semja
um þessar mundir. Ég veit því enn
ekki hvað það heitir, um hvað það er
eða hvers konar tónlist þetta verður
annað en að þetta er nútímatónlist,“
segir Andri Björn og rifjar upp að
hann hafi áður fyrr verið svolítið
feiminn við nútímatónlist.
„Þegar ég var í Royal Academy of
Music í London söng ég í The Light-
house eftir Peter Maxwell Davies,
sem var fyrsta nútímatónverkið sem
ég söng í, og það gekk mjög vel. Eft-
ir það söng ég árið 2014 í tveimur
nútímaóperum í Linbury Studio,
sem er hliðarsvið í Covent Garden.
Síðan hef ég verið ráðinn í ýmis nú-
tímaverkefni þannig að ég er hættur
að vera feiminn við þetta. En þetta
er mikil vinna. Þetta er áskorun, en
jafnframt skemmtilegt,“ segir Andri
Björn að lokum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Norðurljós Andri Björn Róbertsson á æfingu með Janet Haney.
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 11/12 kl. 19:00 Lau 26/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Fös 15/1 kl. 19:00
Lau 19/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k
Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00
Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k
Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00
Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k
Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar
Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið)
Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k
Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k
Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas.
Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k
Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k
Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistarastykki
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 13/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00
Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00
Sýningum lýkur í janúar
Sókrates (Litla sviðið)
Lau 12/12 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Sun 13/12 kl. 20:00 Sun 27/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 10/12 kl. 20:00 Þri 29/12 kl. 20:00
Fim 17/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 21:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 11/12 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 20:00
Fös 18/12 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fim 10/12 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Takmarkaður sýningartími
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn
Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn
Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn
Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn
Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 13/12 kl. 19:30
Lokasýning
Síðasta sýning á meistaraverki Nóbelsskáldsins Pinters.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Mið 9/12 kl. 19:30 10.sýn Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn
Fim 10/12 kl. 19:30 11.sýn Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 12/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 14:30
Lau 12/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 12/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 13:00
Sun 13/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn
Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn
Lau 23/1 kl. 16:00 2.sýn Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn
Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Um það bil (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn
Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn
Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn
Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 10/1 kl. 14:00 21.sýn Sun 17/1 kl. 14:00 23.sýn
Sun 10/1 kl. 16:00 22.sýn Sun 17/1 kl. 16:00 24.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu