Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
Good Dinosaur 2 2
Hunger Games Mockingjay part 2 1 3
The Night Before 4 2
Spectre 3 5
In The Heart Of The Sea Ný Ný
Krampus Ný Ný
The Bridge of Spies 5 2
Solace 2015 6 3
Survivor Ný Ný
Pan 8 8
Bíólistinn 4.–6. desember 2015
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Teiknimyndin Góða risaeðlan skilaði mestum miðasölutekjum til kvik-
myndahúsa landsins um helgina en hún er sú nýjasta úr smiðju fyrirtæk-
isins Pixar. Myndin skilaði um 3,4 milljónum króna í miðasölu og næst
henni kemur síðasta myndin í Hungurleika-syrpunni með um 2,5 milljónir
króna. Gamanmyndin The Night Before er sú þriðja tekjuhæsta, skilaði um
1,7 milljónum króna í miðasölu. Bond-myndin SPECTRE hefur nú verið
sýnd í fimm vikur og nema miðasölutekjur helgarinnar af henni um 1,3
milljónum króna.
Bíóaðsókn helgarinnar
Risaeðla tekjuhæst
Kvikmyndavef-
urinn Variety
fjallar um leik-
arann Ólaf Darra
Ólafsson og
spjallar stuttlega
við hann og segir
hann alþjóðlega
stjörnu sem les-
endur eigi að
kynna sér. Allt
stefni í að hann
verði jafnþekktur í Bandaríkjunum
og í heimalandinu og eru nokkrar
kvikmyndir nefndar og sjónvarps-
þættir sem hann hefur leikið í, m.a.
The Last Witch Hunter.
Variety vekur at-
hygli á Ólafi Darra
Ólafur Darri
Ólafsson
Maður horfði á hannspengja saman veraldir,stíga milli heima, smíðafegurð. Slíkar stundir
vitja mín,“ skrifar Guðmundur Andri
Thorsson í hugrenningum út frá ljós-
mynd af föður hans, Thor Vilhjálms-
syni (1925-2011), sem situr hugsi á
skrifstofu sinni, eiginlega á kafi í bók-
um og pappírum, með einn af penn-
um sínum í hendinni. Stundum var
Guðmundur Andri ritari föður síns og
er hér að lýsa þeirri upplifun: „Ég sit
hér með kassa
og möppur og
koffort og dreg
fram mynd og
mynd og horfi á
þær um stund
og finn hvernig
rám rödd vakn-
ar í vitundinni,
hreyfing, orð, atvik og svo hverfur
hann aftur, hægt og rólega, inn í ljós-
ið.“ (105)
Og svo tjöllum við okkur í rallið –
Bókin um Thor er framúrskarandi
vel lukkað og hjartnæmt verk. Bókin
er fallega hugsuð, og einstaklega fal-
lega skrifuð. Guðmundur Andri hefur
valið um fimmtíu ljósmyndir, teikn-
ingar og riss úr vinnustofu Thors og
skrifar mislanga kafla og hugleið-
ingar út frá hverri þeirra. Á einum
stað lýsir hann verki sínu á þennan
hátt: „En ég er bara hér að horfa á
myndir úr bunkunum hans pabba til
að reyna að fá hann til að dvelja svo-
lítið lengur hjá mér í einhverri rökk-
urvídd, nú þegar hann er hægt og ró-
lega að hverfa mér inn í ljósið“ (76).
Og smám saman verður til úr því
mynda- og sagnabrotasafni furðulega
heil, hrífandi og einlæg mynd sonar
af föður sem var framsækinn og leit-
andi rithöfundur sem lifði óvenjulegu
lífi og varð, þegar á leið, einskonar
holdgervingur íslenskrar menningar.
„Eiginlega var hann skrifóður,
grafóman“ (127) segir í kafla sem
hefst á mynd af þéttskrifaðri munn-
þurrku frá árinu 1965. Og fallega er
iðju skáldsins lýst: „Svona skrifaði
hann: Vasakompan var hans miðill,
listformið hans: hjartalínurit. Hvert
orð er teikning, hver stafur sérstök fí-
gúra. Svona skrifaði hann – hönd
fylgir heila og heili fylgir hönd. Hann
skrifar rós og orðið ilmar, skrifar haf
og orðið ólgar, skrifar ský og orðið
gliðnar í ótal myndir“ (127).
Þetta er óvenjuleg ævisaga og lík-
lega einstæð hér á landi, því ekki
tekst slyngur höfundurinn bara á við
að greina list og feril merkilegs lista-
manns, heldur er líka sonur lista-
mannsins og fyrir vikið með óviðjafn-
anlegan aðgang að þessu lífi sem er
miðlað til okkar. En þrátt fyrir að hér
lýsi sonur föður þá fær lesandinn ekki
á tilfinninguna að myndin sé fegruð.
Sem dæmi um það má nefna kafla um
drykkju skáldsins og ferðir þar sem
skáldið sat jafnvel dögum saman á
hverfisbar erlendis með vísakortið,
„og hélt fatsagestum og aðvífandi
uppi á drykkjum við miklar vinsældir
þar, en minni heima þegar reikning-
urinn kom. Þá var stundum talað um
„að vafra um á vísakortinu“.“ (98)
Myndirnar kveikja mislanga og
ólíka kafla en sá fyrsti gefur tóninn,
stór ljósmynd af Guðmundi Andra
ungum í fangi föður síns sem heldur
utan um hann styrkri hendi. Þetta er
góð stund í löngu liðnum tíma og
myndinni fylgir texti um brall feðg-
anna sem eru að halda úti í daginn
með gamansamt bullumál á vörum;
þeir tjalla sér í rallið. Margar bækur
hafa verið skrifaðar með aðstoð ljós-
myndagreiningar, enda getur sú
heimild sem ljósmyndir eru opnað
marga heima. Á síðustu áratugum
hefur verið fyrirferðarmikil á þessu
sviði nálgunin sem franski táknfræð-
ingurinn Roland Barthes kom fram
með í hinu áhrifamikla verki Camera
Lucida, og Guðmundur Andri beitir
athyglisverðri greiningu í hans anda
– með studium og punctum – á eina
ljósmyndanna þar sem unglingurinn
Thor heldur ungur og feiminn undir
handlegg hins kunna föðurafa síns,
efnamannsins Thors Jensen. En höf-
undurinn nálgast efnið á marg-
víslegan hátt; stundum eru þetta
minningabrot, í önnur skipti rödd
fræðimanns, en furðu fljótt verður til
samhangandi og áhugaverð mynd af
ungum manni sem elst upp við ríku-
leg efni en upplifir engu að síður
harma, eins og átakanlegan bróð-
urmissi. Og hann fetar sig aðra leið
en ættingjar í stjórnmálum og við-
skiptum, og virðist þurfa að hafa
meira fyrir því en aðrir að fá sig sam-
þykktan í þeim kreðsum, sökum upp-
runans, en svo finnur hann sig í París
og átti síðan griðastaði í löndum
sunnanverðrar Evrópu en þótti fátt
gott hægt að sækja norðar í álfuna.
Sá Thor sem hér birtist er vissu-
lega óvenjulegur maður, til að mynda
heimavinnandi á tímum þegar karlar
unnu úti en konur frekar heima; eig-
inkonan Margrét Indriðadóttir held-
ur út í bæ í dagvinnuna, sem frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins, kemur síðan
heim og eldar mat fyrir karlana og
situr síðan löngum sem ritari höfund-
arins, sem les henni fyrir – og er það
ein af mörgum athyglisverðum lýs-
ingum bókarinnar – og átti Guð-
mundur Andri síðar eftir að taka við
því starfi. Og hann skýrir vel afstöðu
Thors til listarinnar:
„Hann var rómantíker og hafði
fölskvalausa trú á list. Hún var hon-
um heilög og þó hann heimtaði ekki
sveinsbréf og löggild réttindi fannst
honum að menn þyrftu að afla sér
þekkingar, visku og færni til að geta
stundað list … Hann starfaði alla tíð í
anda þess meginsjónarmiðs að listin
væri æðst alls þess sem mennirnir
taka sér fyrir hendur.“ (145)
Eitt af mörgu athyglisverðu í frá-
sögninni er útgáfusaga verka Thors
og til að mynda hvernig hann var orð-
inn án útgefanda þegar kom að ní-
unda áratugnum en átti eftir að brjót-
ast aftur inn í hjarta menningarlífsins
þegar Grámosinn glóir sló í gegn. Síð-
ustu æviárin var Thor kominn með
„stöðu hins eilífa augnkarls í íslensku
menningarlífi“ og svo gekk hann Jak-
obsveginn, „til fundar við sjálfan sig“
og var að ferðalokum „kominn með
ljóshjálm um höfuðið“. Og að lestr-
inum loknum skilur lesandinn lista-
manninn betur, sögu hans og verk; og
hvernig Thor skapaði sig sjálfur, af
hörku en líka gæðum. Og höfund-
urinn sleppir þá taki af föðurnum sem
hverfur „hægt og rólega inn í ljósið“.
Þetta er tvímælalaust ein af athygl-
isverðustu og bestu bókum ársins.
Og svo hverfur hann aftur
Morgunblaðið/Ómar
Guðmundur Andri „Hann starfaði alla tíð í anda þess meginsjónarmiðs að
listin væri æðst alls,“ segir höfundurinn um föður sinn, Thor Vilhjálmsson.
Ævisaga
Og svo tjöllum við okkur í rallið –
Bókin um Thor bbbbm
Eftir Guðmund Andra Thorsson.
Ljósmyndir og myndverk eftir ýmsa
höfunda.
JPV útgáfa, 2015. Innbundin, 160 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Á baksíðu Morgunblaðsins í gær
var því ranglega haldið fram að
þriðju og síðustu aðventutónleikar
Mótettukórsins undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar væru haldnir í
Hallgrímskirkju í gærkvöldi. Hið
rétta er að tónleikarnir verða í
kvöld kl. 20. Eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
LEIÐRÉTT
Mótettukórinn syngur lokatónleika í kvöld
Shea Butter Gjafakassi fyrir andlit
8.990 kr.
Shea Butter Gjafakassi - 8.990 kr.: Shea Hreinsimjólk 200ml, Shea Andlitsvatn 200ml, Shea andlitskrem fyrir þurra húð 50ml og Shea varasalvi 4,5g.
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
L’Occitane en Provence - Ísland
KRAMPUS 5:45,8,10:45
HUNGER GAMES 4 5:15,8,10:10
THE NIGHT BEFORE 8,10:10
GÓÐA RISAEÐLAN 5:15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ