Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 1 6 Stofnað 1913  29. tölublað  104. árgangur  ELDHUGUR Í ÍSLENSKU TÓNLISTARFÓLKI FERÐALÖG EIGA AÐ VERA ÓGLEYMANLEG ÁNÆGÐUR MEÐ FRAMLAG ÍSLANDS FARARSTJÓRI Í 31 ÁR 10 FRONTEX 14ÞORSTEINN HAUKSSON 38 Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í um- hverfis- og skipulagsráði hafa áhyggjur vegna aukningar heima- gistingar og áhrifa á heilu göturnar og hverfin. Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir lögðu fram fyrirspurn í ráðinu í fyrradag, þar sem m.a. segir: „Fjölgun gistirýma, og íbúða sem notaðar eru í skammtímaleigu, hefur verið gríðarlega mikil. Slík ör breyting á borgarbragnum veldur skiljanlegu óöryggi borgarbúa í nærumhverfi sínu.“ Júlíus Vífill sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þótt uppbygging hótelrýmis væri mjög hröð núna, þá væri hún ekki nálægt því að ná í skottið á þessari miklu fjölgun ferðamanna. „Við viljum þess vegna að það sé eitthvert utanumhald, eins og frum- varp iðnaðar- og viðskiptaráðherra gerir ráð fyrir,“ sagði Júlíus Vífill. Hann telur að eftirspurn eftir heimagistingu muni minnka með auknu framboði á hótelrými en áfram muni hluti erlendra ferða- manna fá gistingu í gegnum Airbnb eða skipta á íbúðum. agnes@mbl.is »6 Borgar- búar óöruggir Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn Fjölgun þeirra hér á landi tekur á sig ýmsar myndir.  Heimagisting hef- ur talsverð áhrif Þegar kaldar hryðjur með hvassviðri og snjókomu gengu yfir landið í gær var allur varinn góður. Vel búnir vegfarendur fundu sér skjól við húsveggi og stikuðu þannig áfram. Vegum á sunnan- og vestanverðu landinu var lokað meðan veðrið gekk yfir. Síðla kvölds var þessi dæmigerða vetrar- lægð svo komin yfir norðanvert landið og vestur á Patreksfirði voru hús rýmd vegna yfirvofandi snjóflóðahættu. »2 Skjól undir húsvegg í vetrarlægðinni Morgunblaðið/Árni Sæberg  Forsvarsmenn Borgarsögusafns Reykjavíkur ákváðu í gærkvöldi að ratleikurinn Morð um borð sem vera átti í varðskipinu Óðni við Sjó- minjasafnið á Grandagarði yrði blásinn af. Ástæðan er athugasemd- ir frá fyrrverandi varðskips- mönnum sem þótti of langt gengið. Þeir vísuðu til voveiflegs atburðar sem gerðist í byrjun árs 1980 þegar vélstjóri á varðskipinu Tý stakk tvo skipsfélaga sína með hníf svo þeir létust af sárum sínum. Gerandinn varpaði sér fyrir borð eftir verkn- aðinn og fannst aldrei. „Ég vissi að margir liðu þján- ingar vegna þessa,“ segir Ingólfur Kristmundsson sem lengi var vél- stjóri á varðskipunum. Hann og fleiri gerðu ljóst að ekki væri hægt að endurgera þennan hræðilega at- burð sem skemmtiatriði. Fallist var á það sjónarmið og ekki verður af ratleiknum. »17 Morðleikurinn var tekinn af dagskránni Morgunblaðið/Golli Safnanótt Varðskipið Óðinn sem er hluti af fastasýningu Sjóminjasafnsins.  Rósa Ingvarsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir að áhyggjur grunnskólakennara í Reykjavík vegna yfirstandandi skólaárs séu miklar. Trúnaðarráðsfundur grunn- skólakennara í Reykjavík, haldinn í síðustu viku, lýsti yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu grunn- skólanna í Reykjavík. „Okkar áhyggjur snúast ekki bara um þann niðurskurð sem er verið að undirbúa að hrinda í fram- kvæmd nú, heldur snúa þær að því að grunnskólarnir í Reykjavík standa mjög illa fyrir þennan nið- urskurð,“ segir Rósa. T.d. sé bún- aður í skólunum gamall. »12 Kennarar hafa miklar áhyggjur Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í nýju virðismati sem KPMG hefur unnið fyrir stjórn Borgunar er fyr- irtækið metið á 19 til 26 milljarða króna. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins. Í efri mörkum þess er fullt tillit tekið til þeirra tekna sem yfirtaka Visa Int- ernational Service á Visa Europe mun geta tryggt fyrirtækinu. Í lok nóvember 2014 tilkynnti Landsbankinn sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun til hóps fjárfesta og stjórnenda Borgunar. Söluverð hlutarins var sagt tæpir 2,2 millj- arðar króna. Sé virði hlutarins metið út frá virðismati KPMG er hann nú um 6 til 8 milljarðar króna eða nærri 4 til 6 milljörðum hærri en þegar Landsbankinn seldi. Þegar Morgunblaðið leitaði við- Borgun metin á 26 milljarða  Nýtt virðismat sem unnið var af KPMG segir greiðslukortafyrirtækið metið á 19 til 26 milljarða króna  Landsbankinn seldi 31,2% hlut á 2,2 milljarða í árslok 2014  Hluturinn metinn á 6 til 8 milljarða nú MBorgun metin á 19 til 26 ... »20 Öflugur rekstur » Hreinar rekstrartekjur Borg- unar árið 2014 námu 4,2 millj- örðum króna. » Hagnaður félagsins nam 1,3 milljörðum fyrir sama rekstr- arár en hafði verið tæpur millj- arður árið á undan. bragða Hauks Oddssonar, for- stjóra Borgunar, og Erlends Magnússonar stjórnarformanns fyrirtækisins, vildu þeir ekkert tjá sig um efni og innihald verðmats- ins. Íslandsbanki er stærsti eigandi Borgunar og heldur á 63,5% hluta- fjár í fyrirtækinu. Gera má ráð fyrir því að sá hlutur sé nú metinn á 12 til 16,5 milljarða króna. Bank- inn hafnaði tilboði frá breska greiðslumiðlunarfyrirtækinu UPG sem barst í Borgun á síðari hluta nýliðins árs. Hljóðaði lokatilboð UPG upp á 15 milljarða króna. Í kjölfar þess að bankinn hafn- aði tilboðinu munu aðrir hluthafar í Borgun hafa boðið Íslandsbanka hluti í fyrirtækinu til kaups á sama gengi. Ekkert varð af því að bank- inn bætti við sig hlut í fyrirtækinu.  Hæstiréttur þyngdi í gær dóma Héraðs- dóms Reykjavík- ur í svonefndu markaðsmis- notkunarmáli Landsbankans. Sigurjón Þ. Árnason, fv. bankastjóri Landsbankans, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og þrír fv. samstarfsmenn hans í 9- 24 mánaða fangelsi. Í dómi Hæsta- réttar segir að brotin hafi leitt til „alvarlegrar röskunar á verðbréfa- markaði“. »18 Dæmdir sekir fyrir markaðsmisnotkun Sigurjón Þ. Árnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.