Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 9

Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Undirþrýstingur í miðeyra með vökva. Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru, miðeyrað opið og engin vökvi. Fæst í apótekum www.celsus.is eðferð við rnabólgu og kva í miðeyra – lagar og fyrirbyggir • Um 70 % fá bót við fyrstu notkun • Vel rannsökuð meðferð sem leiðréttir undir- þrýsting í miðeyra, opnar kokhlustina svo að vökvi eigi greiða leið. • Getur dregið úr notkun sýklalyfja, ástungum og rörum í eyrum. • Góður árangur tengt flugi, köfun, sundi og kinnholustíflum. Fyrir börn og fullorðna. • CE merkt – Meðmæli lækna. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook kr. 10.990 Str. S-XXL Nýtt - Nýtt Fallegir bolir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrir nokkrum misserum var verðlag í Noregi óhagstætt fyrir Íslendinga. Norska krónan var sterk en íslenska krónan enn að jafna sig eftir geng- ishrunið 2008. Laun í Noregi voru í upphæðum en laun á Íslandi tóku mið af því að minna var til skiptanna í hagkerfinu en oft áður. Skjótt skipast veður í lofti og eftir olíuhrunið og gengisfall norsku krón- unnar er verðlag á ýmissi vöru og þjónustu í Noregi jafnvel orðið hag- stætt fyrir íslenska launþega. Norska krónan kostaði rúmar 23 krónur í ársbyrjun 2013 en kostar nú um 15 krónur. Á sama tímabili hafa laun hækkað umtalsvert í kjölfar kjarasamninga á Íslandi og munu hækka frekar í vor. Øystein Dørum, yfirhagfræðingur hjá DNB, áætlaði hins vegar í samtali við Morgunblaðið í vikunni að laun í Noregi mundu lækka að raunvirði í ár. Dæmi um verðlag í Noregi eru tek- in í töflunni hér til hliðar. Þetta er óvísindaleg samantekt sem gerð var til gamans eftir heimsókn til Tromsö og Ósló um mánaðamótin. Vakti sérstaka athygli hversu hag- stætt verð var á fatnaði á útsölum í Noregi. Fá mátti góða vetrarskó í miðborg Óslóar á aðeins 450 norskar krónur, eða á innan við 7 þúsund krónur, svo dæmi sé tekið. Fá meira fyrir launin Magnús Þór Jónsson, grillmeistari á Hamborgarabúllu Tómasar í Ósló, segist fá meira fyrir launin í Noregi en á Íslandi. Kaupmátturinn sé meiri. „Verðlag er svipað og heima. Mun- urinn er sá að hér fær maður aðeins hærri laun,“ segir Magnús Þór um kaupmáttinn. Hann segist aðspurður greiða 10.500 norskar krónur fyrir leigu á tveggja herbergja íbúð nærri Carl Berners-torgi, eða um 158.00 íslensk- ar krónur á mánuði. Íbúðin er í um 10 mínútna lestarfjarlægð frá vinnustað Magnúsar Þórs á Skippergata í mið- borg Óslóar. Það er sambærilegt leiguverð og á 2ja herbergja leigu- íbúðum í Bláhömrum í Reykjavík, Efstahjalla í Kópavogi og Hofgörðum á Seltjarnarnesi sem auglýstar eru á vef Leigulistans á Íslandi. „Raftæki eru ódýrari hér en á Ís- landi. Bjór er aðeins dýrari hér en heima. Sterkt vín og léttvín er hins vegar ódýrara hér en á Íslandi. Mað- ur eyðir ekki jafn miklu í matarkaup og heima á Íslandi.“ Magnús Þór segir kippu af bjór kosta um 150 norskar krónur í Nor- egi, eða tæplega 2.300 krónur íslensk- ar, sem er um 150 íslenskum krónum meira en til dæmis kippa af Egils Gull kostar í ÁTVR. Þá sé tóbak dýrara í Noregi en á Íslandi. Magnús Þór seg- ir lágmarkslaun í Noregi vera 125 norskar krónur á tímann, eða um 1.885 íslenskar krónur miðað við nú- verandi gengi. Ekki lengur svo dýrt í Noregi  Verðlag í Noregi er í sumum tilfellum orðið lægra en á Íslandi  Fatnaður jafnvel ódýrari í Noregi  Norska krónan hrundi  Íslendingur sem býr í Ósló segir raftæki ódýrari í Noregi en á Íslandi Dæmi um verðlag í Noregi* NOK ISK Hótelherbergi með hjónarúmi og morgunverði fyrir tvo á First Millenium Hotel í miðborg Óslóar 716 10.761 Fluglestin til Óslóar, báðar leiðir 360 5.551 Lestarmiði frá Ósló til Drammen, aðra leið 103 1.588 Big Mac-máltíð á McDonald’s í Ósló 97 1.495 Bolli af Café latte á flugvellinum í Ósló 39 601 Pylsa í verslun 7/11 á aðallestarstöð Óslóar 20 308 5 sokkar fyrir herra í H&M í Ósló 80 1.226 Þrennar nærbuxur fyrir herra í verslun Dressmann í Tromsö 150 2.313 Gallabuxur fyrir herra hjá H&M í Ósló 199 3.068 Dúnúlpa fyrir herra í Dressmann í Ósló á 50% afslætti á útsölu 400 6.140 Bindi fyrir herra hjá Dressmann í Tromsö (útsöluverð) 49 756 Samsung Galaxy S6 64GB hjá JM Hansen Elektrisk í Tromsö 6.999 107.921 *Verðið var athugað dagana 27.1. til 2.2. 2016. Upphæðir eru annaðhvort samkvæmt VISA-yfirliti vegna kaupa á nokkrum þessara vara, eða að reiknað er út frá sama gengi. Það gengi var 15,42 ISK. Miðgengi gærdagsins var 15,03 ISK. Ljósmynd/Baldur Arnarson Á útsölu Þessi fataverslun í miðborg Óslóar bauð vörur á lækkuðu verði. Ljósmynd/Baldur Arnarson Hjá verslun LMC Hægt var að fá góða vetrarskó á um 7 þús. íslenskar kr. Ljósmynd/Sölvi Mar Guðjónsson Grillmeistari Magnús Þór Jónsson við búlluna á Skippergata í Ósló. Hæstiréttur sýknaði í gær Sam- keppniseftirlitið og íslenska ríkið af kröfum Olíufélags Íslands, Skelj- ungs og Kers. Olíufélögin höfðu farið fram á ógildingu áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem úrskurðaði að félögin hefðu haft með sér ólöglegt verðsamráð með olíuvörur hér á landi. Sá úrskurður hefur því verið endanlega staðfestur og er félögun- um gert að greiða samtals 1,5 millj- arða í sekt. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur staðfest úrskurðinn. Málið hófst árið 2001 þegar Sam- keppnisstofnun hóf rannsókn á ætl- uðu ólöglegu samráði olíufélaganna. Á grundvelli þeirrar rannsóknar tók samkeppnisráð ákvörðun 2004 sem fól í sér að félögin hefðu brotið gegn þessu ákvæði með yfirgripsmiklu samráði 1993-2001 og var þeim gert að greiða sektir. Þessari ákvörðun skutu félögin til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti 2005 allar helstu niðurstöður samkeppn- isráðs, en lækkaði sektirnar. Þá höfðuðu félögin mál til ógildingar og féll dómur í því máli 2012 þar sem úrskurður áfrýjunarnefndar var felldur úr gildi. Á það gat Sam- keppnisstofnun ekki fallist og áfrýj- aði til Hæstaréttar sem vísaði mál- inu frá héraðsdómi. Þá höfðuðu olíufélögin ný dómsmál og var dóm- ur í þeim kveðinn upp fyrir rúmu ári. Brot olíu- félaganna staðfest mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.