Morgunblaðið - 05.02.2016, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
!" #
!#
#$
##!
%!
$
"
!"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%#
!!
!$
!!
#
%!!
$"
"
%!#
!"
!$!
#$"
##
"
$ #
"
#"
!$!""
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Alls bárust 43 kauptilboð í opnu
söluferli Íbúðalánasjóðs sem auglýsti
504 fasteignir í sinni eigu til sölu fyrir
áramót. Eignasöfnin voru 15 og bárust
tilboð í þau öll. Um er að ræða þriðjung
þeirra íbúða sem nú eru í eigu sjóðsins
en eignasöfnin eru misjöfn að stærð og
gerð. Ákveðið var að hafa hvert eigna-
safn hóflegt að stærð til að það væri á
færi fleiri fjárfesta að bjóða í þau, segir í
tilkynningu sjóðsins. Þeir fjárfestar sem
gerðu hagstæðustu tilboðin fá senda
tilkynning þess efnis á mánudaginn.
Fjárfestinum sem á hagstæðasta til-
boðið ber að greiða 1% kaupverðsins
ekki síðar en 11. febrúar næstkomandi.
43 kauptilboð bárust í
504 fasteignir ÍLS
● Gistinóttum á hótelum hefur fjölgað
hægar en erlendum ferðamönnum og
hefur hlutdeild annars konar gistingar
því aukist. Þetta kemur meðal annars
fram í Hagsjá Landsbankans.
Þá hefur dvalartími erlendra ferða-
manna á hótelum hér á landi verið að
styttast á síðustu árum. Fjölgun gisti-
nátta erlendra ferðamanna var 27%,
sem er minni vöxtur en í komum er-
lendra ferðamanna en þær jukust um
um 30% milli ára.
Hlutdeild annarra
gistinga en hótela eykst
STUTTAR FRÉTTIR ...
fyrir réttum 14 mánuðum vaxið um
fjóra til sex milljarða króna.
Efri mörk verðmatsins, 26 millj-
arðar króna, taka fullt tillit til
þeirra áhrifa sem KPMG telur að
kaup Visa Inc. á Visa Europe muni
hafa á tekjur fyrirtækisins. Borgun
mun, eins og önnur fyrirtæki sem
gefa út Visa-kort, fá hlutdeild í söl-
unni allt eftir heildarumsvifum
þeirra á sviði kortaútgáfu.
Íslandsbanki hafnaði tilboði
Í nóvember í fyrra gerði breska
greiðslumiðlunarfyrirtækið UPG
ítrekaðar tilraunir til að eignast
Borgun. Hljóðaði verðtilboð þess
upp á 15 milljarða króna fyrir
Borgun en áður hafði UPG boðið
milljarði lægri fjárhæð fyrir allt
hlutaféð. Íslandsbanki hafnaði því
hins vegar að selja hlut sinn í
Borgun á þessu verði. Heimildir
Morgunblaðsins herma að þá hafi
aðrir eigendur Borgunar boðið Ís-
landsbanka að kaupa hlut sinn á
sama gengi og UPG en bankinn
hafnaði því tilboði einnig. Þær
skýringar sem gefnar hafi verið á
afstöðu bankans hafi snúið að yf-
irvofandi eigendaskiptum í bank-
anum, en hinn 20. október síðast-
liðinn var tilkynnt að ríkissjóður
myndi eignast bankann að fullu í
formi stöðugleikaframlags slitabús
Glitnis.
Borgun metin á 19 til 26
milljarða í úttekt KPMG
Morgunblaðið/Júlíus
Sala Mikill styr hefur staðið um sölu Landsbankans á ríflega 30% hlut í Borgun en bankinn seldi hlutinn síðla árs 2014.
Eigendur Borgunar
» Íslandsbanki er stærsti eig-
andi Borgunar með 63,47%
hlut.
» Eignarhaldsfélagið Borgun á
29,38%.
Stærstu eigendur Eignarhalds-
félags Borgunar eru félögin
Stálskip ehf., Pétur Stefánsson
ehf. og P 126 ehf.
» Félagið BPS ehf. á 5% í
Borgun en félagið er í eigu
starfsmanna fyrirtækisins.
Hluturinn sem Landsbankinn seldi hefur hækkað um fjóra til sex milljarða á rúmu ári
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í nýju verðmati sem endurskoð-
unarfyrirtækið KPMG hefur unnið
er greiðslukortafyrirtækið Borgun
metið á 19 til 26 milljarða króna.
Þetta herma áreiðanlegar heimildir
Morgunblaðsins.Verðmatið var
unnið að beiðni stjórnar Borgunar í
tengslum við yfirtökutilboð sem
borist hafa í fyrirtækið á umliðnum
mánuðum. Skýrslan sem hefur að
geyma verðmatið hefur verið kynnt
stjórn félagsins og hluthöfum.
Þegar Morgunblaðið leitaði við-
bragða Hauks Oddssonar, forstjóra
Borgunar, og Erlends Magnússon-
ar, stjórnarformanns fyrirtækisins,
vildu þeir ekkert tjá sig um málið
og sögðu trúnað ríkja um efni verð-
matsins.
Mikil virðisaukning
Hinn 25. nóvember 2014 til-
kynnti Landsbankinn að hann hefði
undirritað samning um sölu á
31,2% hlut sínum í Borgun og að
söluverð hlutarins hefði numið 2,2
milljörðum króna. Hlutinn seldi
bankinn til Eignarhaldsfélagsins
Borgunar slf. en að því stóð hópur
fjárfesta ásamt stjórnendum fyr-
irtækisins sjálfs.
Miðað við söluverðið til Eign-
arhaldsfélagsins var heildarvirði
fyrirtækisins metið á um sjö millj-
arða króna.
Sé verðmat KPMG lagt til
grundvallar ætti verðmæti 31,2%
hlutar í fyrirtækinu að liggja á
bilinu sex til átta milljarðar króna.
Samkvæmt verðmatinu hefur hlut-
urinn sem Eignarhaldsfélagið
Borgun keypti af Landsbankanum
„Einn af meginstraumunum í dag
nefnist á ensku „Youniverse“ og sýn-
ir að neysla hvers og eins endur-
speglar smekk hans og persónuleika,
og því vilja neytendur að fyrirtæki
og vörumerki þekki þessa einstöku
eiginleika þeirra,“ segir Þórey Vil-
hjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent,
en hún flytur erindi á UT messunni
sem hefst í Hörpu í dag. Hún ætlar
að fjalla um helstu strauma og stefn-
ur, og gefa þannig innsýn inn í fram-
tíðina til að auðvelda fyrirtækjum að
sjá fyrir þarfir viðskiptavina sinna.
Þórey segir þennan tiltekna
straum tengjast samfélagsmiðlum
þar sem prófíll hvers og eins er ein-
stakur. „Þetta hefur smitast út í
væntingar neytenda til vöru og þjón-
ustu. Þeir vilja að vara og þjónusta
sé sniðin að þeirra þörfum. Það er
því verið að hverfa frá fjöldafram-
leiðslu yfir í sérsniðna framleiðslu.“
Hún nefnir dæmi af vörulínum þýska
sælgætisframleiðandans Katjes sem
nýlega setti á markað 3D prentara
fyrir gúmmí þar sem hægt er að sér-
sníða útlit sælgætisins eftir þörfum
hvers og eins. „Bandaríska Oreo
kexið er annað dæmi en viðskipta-
vinir hafa fengið tækifæri til að
panta sérsniðnar umbúðir á vefsíðu
fyrirtækisins.“
Þórey segir neytendur einnig í
auknum mæli hafa óseðjandi áhuga á
viðeigandi og hagnýtum upplýsing-
um sem helst þurfa að berast á raun-
tíma. „Í upplýsingum felast völd. Því
meiri upplýsingar því meiri völd.
Neytendur með miklar upplýsingar
eru valdamiklir neytendur sem geta
haft áhrif.“ margret@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Straumar Neytendur vilja vörur og
þjónustu sem er sérsniðin fyrir þá.
Neytendur vilja
sérsniðnar vörur
Neytendur með
upplýsingar geta
verið valdamiklir