Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016
Bresku lögreglunni ber skylda til
þess að handtaka Julian Assange,
stofnanda Wikileaks, ef hann fer út
úr sendiráði Ekvador í Lundúnum.
Þetta segir talsmaður ríkisstjórnar
Bretlands í samtali við fréttaveituna
AFP.
Assange er enn sakaður um
nauðgun í Svíþjóð og evrópsk hand-
tökuskipun er enn í gildi þannig að
Bretlandi ber lagaleg skylda til þess
að framselja Assange til Svíþjóðar,
að sögn talsmannsins.
Vonast til að verða frjáls
Sérstakur dómstóll Sameinuðu
þjóðanna hefur úrskurðað í máli Ass-
ange og niðurstaðan er honum í vil,
samkvæmt heimildum BBC. Greint
verður frá niðurstöðu dómstólsins í
dag. Assange segir að hann muni
gefa sig fram við lögreglu í Bretlandi
í dag ef dómstóllinn kemst að þeirri
niðurstöðu að honum hafi ekki verið
haldið með ólöglegum hætti. Að öðr-
um kosti telji hann að hann sé frjáls
maður.
Assange fékk hæli í sendiráði
Ekvador í vesturhluta Lundúna í
júní 2012 til þess að komast hjá því
að verða framseldur til Svíþjóðar en
þar er honum gert að svara til saka
vegna kæru um kynferðislegt of-
beldi. Hann segir kæruna ranga. Ár-
ið 2014 leitaði hann til Sameinuðu
þjóðanna þar sem hann taldi að
handtökuskipunin væri geðþótta-
ákvörðun.
Assange sagði á Twitter í fyrrinótt
að hann myndi sætta sig við ákvörð-
un dómstólsins í máli sínu en hann
vonist til þess að verða frjáls maður
dæmi hann honum í hag.
Dómurinn er skipaður hópi lög-
spekinga á vegum SÞ (Working
Group on Arbitrary Detention) sem
hefur fengið gögn um mál Assange
bæði frá yfirvöldum í Bretlandi og
Svíþjóð. Þrátt fyrir niðurstöðu dóm-
stólsins gengur hann ekki framar
ákvörðun breskra og sænskra yfir-
valda.
Assange var fyrst handtekinn í
Lundúnum árið 2010 á grundvelli
evrópskrar handtökuskipunar á
hendur honum sem sænsk yfirvöld
gáfu út. Honum var veitt hæli í
Ekvador og kom inn í sendiráð
landsins í Knightsbridge eftir að
hæstiréttur Bretlands úrskurðaði að
yfirvöld mættu framselja hann til
Svíþjóðar.
Uppljóstrunarsamtökin Wikileaks
hafa birt leyniskjöl bandarískra yfir-
valda á netinu og telur Assange að
stjórnvöld í Bandaríkjunum fari
fram á að hann verði framseldur
þangað frá Svíþjóð ef hann kemur
þangað til lands vegna kærunnar um
kynferðislegt ofbeldi.
AFP
Frjáls? Kona, sem styður Assange,
fyrir utan sendiráð Ekvador.
Dómstóll
úrskurðar í
máli Assange
Ríkisstjórnin í Bretlandi telur að lög-
reglu beri skylda til að handtaka hann
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Allt er á suðupunkti í Flint í Mic-
higanríki þar sem neyðarástandi
hefur verið lýst yfir eftir að upp
komst að blýmagn í kranavatni er
langt yfir mörkum. Tugir þúsunda
hafa komist í snertingu eða innbyrt
mengaða vatnið frá því í apríl 2014
þegar nýtt vatnsból við ána Flint,
sem borgin er nefnd eftir og rennur
í gegnum hana, var tekið í notkun.
Blýmengunin stafar af gömlum
lögnum sem notaðar eru til þess að
flytja vatnið. Talið er að tugir þús-
unda manna hafi orðið fyrir meng-
uninni og þar af er talið að 6-12 þús-
und börn hafi innbyrt eða komist í
tæri við vatnið, t.a.m. við að þrífa
sig. Líkur eru taldar á að her-
mannaveikisfar-
aldur sem spratt
upp í borginni
tengist blýmeng-
uninni. Tíu hafa
látist úr sjúk-
dómnum en 77 til
viðbótar eru tald-
ir hafa fengið
veikina.
Í frétt í New
York Times segir
að fjölmargir íbúar borgarinnar séu
að reyna að flytjast á brott en það
hefur reynst þrautin þyngri þar
sem enginn vill kaupa húsnæði í
borginni sem er með rúmlega 100
þúsund íbúa.
Blaðið ræðir við Charles White,
smið sem alla tíð hefur búið í Flint.
Var hann í vinnu þegar hann fékk
símtal frá kærustu sinni þar sem
hún tjáði honum að bæði börn
þeirra, þ. á m. fimm mánaða dóttir
hans, væru með blýeitrun. Ákváðu
þau samstundis að taka allt sitt haf-
urtask og flytja úr bænum. „Ég er
tilbúinn að selja allt sem ég á til
þess að komast í burtu og bjarga
börnunum mínum,“ segir hann í
samtali við New York Times.
Telja athæfið saknæmt
Yfirvöld hafa mátt sæta harðri
gagnrýni fyrir andvaraleysi sitt í
málinu. Rick Snyder, ríkisstjóri í
Michigan, réð manninn sem sá um
skiptin á vatnsbólunum. Sumir
krefjast afsagnar en aðrir telja að
athæfið sé saknæmt. Kvikmynda-
gerðamaðurinn Michael Moore er
einn þeirra en hann ólst upp í Flint.
Íbúar í Flint flýja
Tíu hafa dáið úr hermannaveiki Blýmengun í vatnsbóli
Reyna að flytjast á brott en enginn vill kaupa fasteignirnar
Rick Snyder
ríkisstjóri.
AFP
Mengað vatn Íbúar Flint halda á flöskum með menguðu vatni á blaðamannafundi eftir að hafa rætt við nefnd full-
trúadeildar Bandaríkjaþings í Washington í gær. Íbúarnir kröfðust þess að nefndin yfirheyrði ríkisstjóra Michigans.
Hlutabréf í Royal Dutch Shell
hækkuðu um 4% í gær eftir að til-
kynning barst um að félagið hygð-
ist segja upp 10 þúsund starfs-
mönnum. Lækkandi olíuverð hefur
gert það að verkum að hagnaður
hefur dregist hratt saman. Var
hann engu að síður 3,8 milljarðar
bandaríkjadala eða sem nemur um
494 milljörðum króna á síðasta ári
en var hins vegar 19 milljarðar
dollara 2014. Sama hefur verið uppi
á teningnum hjá öðrum olíu-
fyrirtækjum. Öll hafa staðið í niður-
skurðaraðgerð-
um. Helsti
keppinautur
Shell, BP, til-
kynnti í vikunni
að hagnaður
fyrirtækisins
hefði dregist
saman um 51%
2015 frá 2014.
Tilkynnti fyrir-
tækið í vikunni
að 3000 starfsmönnum hefði verið
sagt upp.
BRETLAND
Shell segir upp tíu þúsund manns
Uppsagnir Shell
dregur saman.
Þjóðir heims hafa heitið því að
safna 10 milljörðum dollara sem
eiga að renna til mannúðaraðstoðar
í Sýrlandi. Þetta kom fram á ráð-
stefnu sem fer fram í Lundúnum.
„Það sem við höfum áorkað í dag
er engin lausn á vandamálinu. Við
þurfum enn að breyta ástandinu
með pólitískum hætti,“ sagði David
Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands. „En með þessari skuld-
bindingu erum við að senda þau
skilaboð til almennings í Sýrlandi
og til þessa svæðis að við ætlum að
standa með ykkur og styðja við
bakið á ykkur eins lengi og þörf er
á,“ bætti hann við.
Fulltrúar frá 60 löndum taka þátt
í ráðstefnunni. Þeir stefna að því að
safna 4,6 milljónum dollara fyrir
flóttamenn og 13,5 milljónum doll-
ara til fólks sem þarf á aðstoð að
halda í Sýrlandi.
„Ástandið í Sýrlandi er eins ná-
lægt helvíti og við getum mögu-
lega fundið hér á jörðu,“ sagði Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna.
SÝRLAND
Tíu milljörðum dollara lofað í aðstoð
Neyðin rædd David Cameron forsætis-
ráðherra á ráðstefnunni í Lundúnum.