Morgunblaðið - 05.02.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.2016, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 VINNINGASKRÁ 40. útdráttur 4. febrúar 2016 36 9550 17978 31390 41665 51534 61602 70451 104 9755 18023 31835 42003 52260 61680 70550 147 9796 18285 32165 42279 52711 61696 70605 281 9838 18622 32294 42891 52849 61843 70804 437 10026 20814 32649 43336 53454 62274 70830 555 10377 21511 33168 44047 53699 62335 70881 576 10401 21610 33478 44351 53818 62422 71180 1567 10615 22471 33854 44379 54194 63199 72861 1745 10634 22803 33901 44473 54382 63280 73011 1788 10657 23004 33903 44637 54603 63325 73328 1881 10965 23235 34117 44801 54608 63800 73507 2030 11160 23281 34515 44806 54688 63944 73742 2306 11198 23820 34545 44943 55154 64254 74366 2637 11300 24334 34684 45309 55858 64744 74415 3482 11536 24488 34847 45369 56570 64884 74638 3595 11941 24694 35379 45574 56736 65006 74685 4165 12504 24753 35653 45978 56827 65063 74930 4188 12528 25319 35745 46189 57104 65117 75561 4286 12993 25360 35866 46290 57198 65790 75574 4628 13490 25601 36235 46473 57258 66205 75791 4743 13702 26186 36438 46474 57487 66554 76788 4900 13901 26694 36593 46485 57702 66698 77147 4980 14151 26749 36608 46596 57840 66754 77290 5022 14220 27071 36611 46630 58282 66758 77437 5138 14398 27258 36729 46645 58667 66884 77484 5251 14489 27262 37824 46666 58913 66975 78460 5308 15404 27338 38094 47182 59099 67017 78872 6319 15662 27654 38881 47306 59113 67024 78931 6341 16021 28744 39611 47539 59636 67438 79142 6560 16208 28852 39766 47859 59762 68503 79170 6614 16572 28984 39872 48219 59831 68807 79764 6754 16644 29756 40294 48644 60021 68882 8047 17358 29761 40541 49018 60611 69215 8350 17518 29945 40603 49220 60947 70119 8918 17793 30039 40694 49624 61010 70279 8935 17914 30400 40805 49664 61041 70283 9040 17951 30884 40832 51068 61052 70295 2744 12339 25486 40323 46938 57744 67364 74270 6016 12782 26688 40796 47537 57903 67738 74463 9332 13069 28903 41051 50304 58544 68220 75576 9372 15984 30211 41490 50356 58661 68889 75721 9434 16011 31564 42079 50486 58754 68994 76249 9480 17033 32424 42669 50659 59830 69115 78258 10160 17735 33398 42740 52820 61761 70411 78326 10193 19150 33604 45018 53442 63163 70770 79341 10224 19948 36622 45539 55517 64922 71342 79655 10471 20571 36704 45624 55599 64923 72016 10705 20894 37811 46451 55891 65055 72934 11257 21108 38611 46648 56368 66244 73942 11732 22090 39643 46695 57590 67139 74118 Næstu útdrættir fara fram 11., 18. & 25. febrúar 2016 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 18931 21732 46674 48399 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1294 32124 39728 51793 57788 65952 17152 32419 43817 54390 60754 67199 22882 35588 44358 56338 61030 68245 29972 37915 49533 57684 62347 69327 Aðalv inningur Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur) 2 1 6 0 2 Undanfarna mánuði hefur Sjómannafélag Ís- lands árangurslaust reynt að fá Samskip til viðræðna um gildistöku íslenskra kjarasamn- inga um borð í skipum skúffufélags Samskipa í Hollandi; Nevato BV. Í október síðastliðnum fór undirritaður á fund eig- anda Samskipa, Ólafs Ólafssonar, vegna stöð- unnar sem upp var kom- in með hinu útlenska skúffufélagi sem er með skip í áætlunarsigl- ingum til og frá Íslandi framhjá íslenskum kjarasamningum. Eina ferðina enn eru Samskip að vega að íslenskri sjó- mannastétt. Sjómannafélag Íslands lítur á aðgerðir Samskipa sem stríðs- yfirlýsingu. Eigandinn vísaði á for- stjóra félagsins, Pálmar Óla Magn- ússon. Dónaskapur forstjóra Í desember var Pálmari Óla gerð grein fyrir stöðunni. Um borð í skipum í áætlanasiglingum til og frá Íslandi skulu gilda íslenskir kjarasamningar. Samskip eru að brjóta þá reglu. For- stjórinn kvað ekki rétt að ræða svo al- varlegt mál á aðventunni og bað um frest fram í janúar. Þá hins vegar brá svo við að forstjórinn sýndi þann dónaskap að láta ekki ná í sig. Vélarvana í fyrstu ferð Skip Nevato BV eru tvö: Skaftafell sem hóf áætlunarsiglingar milli Íslands og Evrópu síðast- liðið haust og Hoffell sem var í sinni fyrstu ferð þegar skipið varð vél- arvana í skoskri lögsögu, 160 sjómílur suð-vestur af Færeyjum. Um borð í skammdegismyrkrinu í kulda og vosbúð í 8-10 vindstigum og þungum sjó hírðust menn frá A- Evrópu og Asíu. Varð- skipið Þór sótti skipið og dró til Reykjavíkur. Ítrekuð brot Samskipa Sumarið 2012 setti Sjómannafélag Íslands bann við lestun og losun Helga- fells í eigu Samskipa, sem lá við hafn- arbakka á Grundartanga. Um borð voru hásetar sem þáðu laun framhjá kjarasamningi Sjómannafélags Íslands sem kveður á um forgangsrétt félaga á skipum Samskipa. Skipafélagið hafði rofið grið og brotið skýlausan rétt sjó- manna. Samskip viðurkenndu um- svifalaust brot sitt og lýstu því yfir að félagið myndi virða samninga og ráða skipverja á íslenskum kjarasamn- ingum. Nú nokkrum misserum síðar efna Samskip enn til ófriðar við Sjómanna- félag Íslands. Lítt þjálfaðir sjómenn í sjávarháska Vegna þessa hefur öryggi í Íslands- siglingum verið stefnt í tvísýnu. Þjóðin hefur aftur og aftur fylgst í forundran með sjómönnum í sjávarháska á N- Atlantshafi. Gæslan hefur lýst áhyggj- um af ástandinu. Hvorki skip né áhafnir uppfylla kröfur sem gerðar eru til siglinga á úfnu úthafi í válynd- um veðrum. Fréttablaðið hafði eftir Ásgrími Ásgrímssyni hjá Gæslunni að skipstjórnarmenn væru „vart starfi sínu vaxnir“ og kvaðst vilja topp- útgerðir „bæði við ströndina og til og frá landinu“. Ásgrímur nefndi nokkur „illskilj- anleg tilvik“ þar sem við sögu komu sjómenn sem lítt eða ekkert kunnu til verka. Nefnd voru strand Akrafells í eigu Samskipa við Vattarnes í Reyð- arfirði; Wilson Muuga við Sandgerði og Fernöndu sem logaði stafna á milli við Vestmannaeyjar. „Ég veit eig- inlega ekki hvar ég á að byrja,“ hafði blaðið eftir Ásgrími sem blöskrar ástandið. Augljóslega skortir verulega á gæði og hæfni hjá Samskipum. Sjómenn munu svara stríðsyfirlýs- ingu Samskipa. Samskip efna til ófriðar við Sjómannafélag Íslands Eftir Jónas Garðarsson » Sjómanna- félag Íslands lítur á aðgerðir Samskipa sem stríðsyfirlýs- ingu. Jónas Garðarsson Höfundur er framkvæmdastjóri Sjómannafélags Íslands. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Á sumarþingi 2013 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu í tíu liðum. Um var að ræða aðgerðaáætlun sem fól það m.a. í sér að taka á skuldavanda heimila, auka stöð- ugleika og gagnsæi á húsnæðislánamarkaði og vinna að framtíð- arskipan húsnæðismála, þar á meðal úrbótum á leigumarkaði. Einn liður tillögunnar fjallaði um að félags- og og húsnæðismálaráðherra ætti að skipa verkefnastjórn um fram- tíðarskipan húsnæðismála. Verk- efnastjórnin hafði m.a. það hlutverk að koma með tillögur að nýju húsnæð- islánakerfi með það í huga að tryggja virkan leigumarkað og skilvirk fé- lagsleg úrræði fyrir þá sem slíkt þurfa. Verkefnastjórnin skilaði af sér tillögum árið 2014. Út frá þeirri vinnu komu síð- ar frumvörp sem nú er unnið að í vel- ferðarnefnd þingsins. Aukum framboð og stuðning Um er að ræða fjögur frumvörp, sem öll varða leigumarkaðinn. Margar umsagnir hafa borist um málin og eru flestar þeirra jákvæðar. Það ber að þakka því viðamikla samráði sem málin fóru í gegnum, við vinnslu þeirra. Unn- ið er hratt og vel að því að klára þessi mál svo þau verði sem fyrst að mik- ilvægum húsnæðisumbótum. En um hvað fjalla þessi frumvörp? 1. Frumvarp til laga um almennar íbúðir felur í sér að byggja samtals 2.300 íbúðir á þessu ári og næstu þrem- ur árum fyrir efnaminni leigjendur. Markmiðið er að fólk geti búið í öruggu húsnæði og að leigan fari ekki yfir 20- 25% af ráðstöfunartekjum. 2. Frumvarp til laga um húsnæð- isbætur felur í sér stóraukinn stuðning fyrir leigjendur. Þar eru frítekjumörk hækkuð verulega og húsnæðisstuðn- ingur miðast við fjöl- skyldustærð. Ætlunin er að jafna stuðning milli ólíkra búsetuforma svo einstaklingar og fjöl- skyldur hafi raunveru- legt val um búsetuform. 3. Frumvarp um breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög hefur það markmið að styrkja rekstur húsnæð- issamvinnufélaga, auka gagnsæi í rekstri þeirra og koma á auknu íbúa- lýðræði. 4. Frumvarp um breytingu á húsa- leigulögum sem felur í sér aukin rétt- indi leigjenda og leigusala. Auk þess er verið að skerpa á atriðum, sem deilu- mál hafa orðið um í leigusamningum undanfarin ár. Fjölgun á leigumarkaði En hvers vegna eru þessi frumvörp svona mikilvæg fyrir einstaklinga og fjölskyldur á leigumarkaði? Hvers vegna er svona mikilvægt að þau nái fram að ganga? Jú það er vegna þess að * það er staðreynd að veruleg fjölgun hefur átt sér stað á leigumarkaði frá árinu 2008. Þannig voru 20,8 % heimila á Íslandi á leigumarkaði árið 2014, en höfðu verið 12,9 % árið 2008. * leigjendur á almennum leigumark- aði eru líklegastir til að hafa verulega íþyngjandi húsnæðiskostnað, sam- anborið við aðra hópa á húsnæðismark- aði. Það er um verulega íþyngjandi húsnæðiskostnað er að ræða þegar 40% eða hærra hlutfalli af ráðstöf- unartekjum er varið í húsnæðis- kostnað. Auk þessa er óhætt að halda því fram að þær aðgerðir sem farið hefur verið í frá árinu 2008 og kostað 237 milljarða, hafa ekki komið til þessa hóps sem umrædd frumvörp eiga að ná til. Um er að ræða útgjöld til Íbúða- lánasjóðs, í vaxtabætur, sérstakar vaxtabætur og til niðurfellingar á verð- tryggðum húsnæðisskuldum heim- ilanna. Lækkum húsnæðiskostnað Sumir vilja halda því fram að aukn- ar húsnæðisbætur muni hækka leigu- verð. Sem mótvægisaðgerð við þau sjónarmið var ákveðið að lækka fjár- magnstekjuskatt á leigutekjur um 4%, en þeirri aðgerð er m.a. ætlað að draga úr hækkunaráhrifum bótanna á leiguverð. Í umsögn Seðlabankans um málið segir að umrætt frumvarp muni skila sér í lægri húsnæðiskostnaði fyr- ir einstaklinga og fjölskyldur á leigu- markaði. Það passar vel við þær at- hugasemdir sem ráðgjafafyrirtækið Analityca hefur lagt fram um málið. Heildarsamhengið mikilvægt Þegar umrædd húsnæðisfrumvörp hafa verið afgreidd þá taka verðtrygg- ingarmálin við. Í því samhengi þarf að horfa til vaxtabyrði lána og greiðslu- byrði fólks af húsnæðislánum. Festa þarf í sessi hvata til húsnæðissparn- aðar, t.d. í formi séreignarsparnaðar. Jafnframt þarf að endurskoða þau úr- ræði sem sett eru fram í greiðslumati. Óhætt er að halda því fram að rík- isstjórn Framsóknar- og Sjálfstæð- isflokksins vinni að heilum hug fyrir heimili landsins. Hvort sem um er að ræða þau heimili sem falla undir sér- eignarstefnuna, heimili á leigumarkaði eða þau heimili sem falla undir hús- næðissamvinnufélög. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að landsmenn hafi raunverulegt val um búsetuform og því er mikilvægt að allar þessar að- gerðir nái fram að ganga. Nauðsynlegar umbætur á húsnæðismarkaði Eftir Elsu Láru Arnardóttur » Greinin fjallar um húsnæðisfrumvörp félags- og húsnæðis- málaráðherra og mik- ilvægi þess að þau nái fram að ganga. Elsa Lára Arnardóttir Höfundur er þingmaður Framsókn- arflokksins og varaformaður velferð- arnefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.