Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 ✝ JóhannÞorsteinsson fæddist 24. ágúst 1928 í Miðhlíð á Barðaströnd og fluttist á barnsaldri að Litluhlíð í sömu sveit. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 25. jan- úar 2016. Jóhann var sonur hjónanna Guðrúnar Jónu Margrétar Finnbogadóttur, f. 16. febrúar 1893, d. 11. október 1978, og Þorsteins Ólafssonar, f. 23. nóvember 1890, d. 31. mars 1989. Systkini hans eru: Sigurður Finnbogi, f. 1913, d. 1984, Ólafía Kristín, f. 1914, d. 1914, Ólafía Kristín, f. 1915, d. 2012, Gunnar Þorsteinn, f. 1918, d. 2008, Mika- el f. 1919, d. 1997, Kristján Ólaf- ur, f. 1922, d. 1973, Þuríður, f. 1923, Unnur, f. 1924, d. 1924, Höskuldur f. 1925, d. 2004, Vig- fús, f. 1930, d. 2008, Bjarni, f. 1933, d. 2008, Ásta f. 1936, d. 1996, Halldóra, f. 1939, d. 1940. Þann 31. júlí 1955 kvæntist hann Kolbrúnu Friðþjófsdóttur. Pétur Hannesson. Börn þeirra eru Snædís Lilja, f. 2005, og Hannes, f. 2007. 3) Áróra, f. 13. desember 1958. Börn hennar eru: a) Sandra, f. 1976, b) Jóhann Haukur, f. 1982, kona hans er Margrét Lára Jónsdóttir. Synir þeirra eru: Gunnar Aðalsteinn, f. 2010, og Birgir Hafsteinn, f. 2015. 4) Friðþjófur, f. 25. janúar 1964. Kona hans er Áslaug Ólöf Kolbeinsdóttir. Börn þeirra eru Anna Margrét, f. 1989, Krist- björg Ósk, f. 1992, Jóhann, f. 2007, og Kolbrún, f. 2009. 5) Júlíus Ragnar, f. 14. sept- ember 1962. Synir hans eru: Ingvar Pétur, f. 1977, Sigurður Davíð, f. 1984, Stefán Júlíus, f. 2001, og Michael Símon, f. 2005. Jóhann var alinn upp í stórum systkinahópi. Hann fór snemma að aðstoða við bústörfin og tók síðan við búskap af föður sínum. Á yngri árum fór hann til sjós á vetrarvertíðir eins og þá tíðk- aðist meðal sveitapilta. Hann fékk sér bát og stundaði grá- sleppuveiði með búskapnum. Ár- ið 1984 brá hann búi og flutti ásamt eiginkonu sinni til Reykja- víkur. Þar vann hann lengst af við bensínafgreiðslu. Útför Jóhanns fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 5. febr- úar 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Hún var dóttir hjónanna Jóhönnu C.M. Jóhannesson, f. 1908, d. 1994, og Friðþjófs Ó. Jó- hannessonar á Vatneyri við Pat- reksfjörð, f. 1905, d. 1971. Börn Jóhanns og Kolbrúnar eru: 1) Sigurður Barði, f. 7. apríl 1956, kvæntur Valgerði Vé- steinsdóttur. Börn þeirra eru: a) Pétur Þór, f. 1974, kvæntur Fífu Konráðsdóttur. Börn þeirra eru: Hlynur Þór, f. 1996, Máni, f. 2004, og Dalía, f. 2009, b) Védís, f. 1980, gift Breka Logasyni. Dætur þeirra eru: Úlfdís Vala, f. 2008, og Ylfa, f. 2013, c) Þor- steinn Þorri, f. 1989. 2) Steingerður, f. 22. ágúst 1957, gift Árna Emanúelssyni. Dætur þeirra eru: a) Ágústa Kristín, f. 1977, maður hennar er Konstantínos Velegrinos. Börn þeirra eru Nikulás Árni, f. 2004, og Íris Thelma, f. 2009. b) Brynja, f. 1981, maður hennar er Í klettunum fyrir ofan Litlu Hlíð eru Lambhillan og Festar- hillan. Pabbi fór ungur í klettana að ná í egg eða ná í fé úr fjallinu. Á brúninni er „varðan“ og þaðan víðsýnt og fallegt að horfa niður yfir túnin og bæjarhúsin, hvíta fjöruna og Breiðafjörðinn allt til jökulsins. Þarna ólst pabbi upp. Hann kunni á skepnur og var fjár- glöggur. Hélt bókhald yfir kind- urnar, hver ær átti sitt nafn, það var skráð og hann þekkti kind- urnar á færi með nafni. Willys-jeppar og dráttarvélar hófu innreið sína í búskapinn, tóku við af orfi og ljá, Farmall D-217 með áfastri sláttuvél, heyinu ýtt saman með planka á beislinu í stað þess að nota hrífu, raka saman og setja upp í galta. Pabbi að koma úr róðri með afla sem koma þurfti í salt til vetrarins, lipur með hnífinn í að- gerðinni. Hafði líka ungur maður verið á vertíðum fyrir sunnan. Eftir að þau mamma kynntust og hófu búskap var það líka þannig að pabbi fór á vertíð til Patreksfjarðar til að tryggja tekjurnar betur, vann við að beita. Mér fannst mikið til um frásagnir af því og mannlífinu sem blómstraði í beitingar- skúrunum. Kíkirinn hafði hlutverk í Litlu Hlíð. Var alltaf klár í glugganum ef bíll sást koma á Hrísnesið, rollur á ferð í fjallinu eða bátar á sjó. Og þegar pabbi var á ferð á Landróvernum var kíkirinn við höndina. Sæjust rollur vera að gera sig líklegar til að skríða undir girð- ingu þá rann hliðarrúðan snöggt fram, kíkirinn út um gluggann og ekki var dregið af sér í hróp- um og hóum. Hann var náttúru- barn, gaukaði góðu að fuglum og var hrifinn af þeim. Að því kom að pabbi byrjaði eigin útgerð. Báturinn „Vinur“ var keyptur, gerður klár í gamla pakkhúsinu, fluttur inn á strönd og farið á grásleppu. Upp frá þessu var pabbi tengdur smá- bátaútgerð, einnig eftir að þau mamma fluttu suður, mamma að kenna og hann fyrst starfsmaður í fiski, við kartöflur og síðan hjá Olíufélaginu Essó. Alltaf var áhugi á að vera í sambandi við fólk, fylgjast sem best með gangi mála, ekki bara fyrir sunnan heldur einnig hvernig lífið gengi fyrir sig í sveitinni. Vildi heyra að vestan, hvað væri í gangi þar. Í mörg ár fór hann svo vestur á vorin með syni sínum, Friðþjófi, til að sinna róðrum og njóta stemningarinn- ar sem umhverfið þar veitti hon- um. Í Litlu Hlíð var oft margt um manninn og mikið spjallað inni í eldhúsi eða úti á kanti. Þar skipti klukkan ekki öllu máli, verkin og veðurfarið stjórnuðu lífinu að miklu leyti. Þau mamma voru með þeim fyrstu að flytja í Grafarvoginn, frumbyggjar, og eignuðust góða nágranna í götunni. Hann var alltaf til í að taka í spil, spilaði fé- lagsvist og fór oft með nágranna sínum og vini á spilakvöld. Seinni árin hafði hann ánægju af því að fara í pottana í Grafar- vogssundlaug og átti þar kunn- ingja að spjalla við. Systkinahópur pabba var stór. Nú síðast voru þau tvö eftir, pabbi og Þura, og bæði í Sunnu- hlið. Hittust þar og áttu góðar stundir saman. Hann eignaðist líka góða vini í Sunnuhlíð og leið vel þar. Við sem eftir stöndum þökk- um samfylgdina. Minning um góðan mann lifir. Sigurður Barði (Siggi Barði). Elsku afi minn. Þú hefur verið til staðar í lífi mínu í næstum 40 ár en nú er komið að kveðjustund. Svo margar góðar minningar koma upp í hugann, einkum þær sem tengjast dvölinni í Litluhlíð þangað sem við barnabörnin komum á sumrin, hittum afa og ömmu og fengum að hlaupa frjáls um í sveitinni, upp í hlíð og niður í fjöru, umgangast húsdýr- in og fara í sund og tína bláber. Mér eru minnisstæðar allar bílferðirnar sem við fórum um ströndina, keyrðum í Vaðalinn til að kíkja á starfsemina þar, skruppum niður í fjöru þar sem kríurnar flugu reiðar yfir höfði okkar, fórum í heimsókn á bæina í kring, keyrðum í sjoppuna til Svenna á Múla að kaupa gotterí og rúntuðum um sveitina með tónlist Gylfa Ægissonar á kass- ettu í bílgræjunum og sungum hástöfum með. Það var líka mik- ið sport að fá að sitja í hliðarsæt- inu á dráttarvélinni. Ég man þegar þú settir upp rólurnar í fjárhúsinu fyrir okkur krakkana, það var rosalega gaman að róla hátt upp í loftið. Eitt sumarið var ég að hjálpa þér að hreinsa fiskinetin úti á hlaði og mig minnir að þú hafir borgað mér smáaura fyrir vinn- una. Man líka þegar þú slóst tún- in með orfi og ljá og við krakk- arnir gengum á eftir og rökuðum með hrífu og þegar verkinu var lokið lagðir þú áherslu á að snúa tindunum á hrífunni niður ann- ars kæmi rigning. Mér er minnisstætt þegar þú komst með belgina úr sjóferðum og ég og Ágústa skemmtum okk- ur vel við að hoppa og skoppa á þeim út um allt bæjarhlað. Man líka að þú hengdir upp reyktan rauðmaga sem við fengum að smakka og harðfisk inni í skúr og ég sé þig fyrir mér þegar þú barðir harðfiskinn með hamri á steini til að mýkja hann áður en þú gafst okkur bita. Já, afi minn, það eru margar góðar og fallegar bernskuminn- ingar sem fara um hugann og ég er þakklát fyrir þessar dýrmætu samverustundir. Svo fluttuð þið amma suður og byggðuð hús í Logafoldinni, þegar Foldahverfið var að byggjast upp, og þú fórst að vinna á Essó á Ártúnshöfða og það var alltaf spennandi að kíkja til þín í vinnuna. Á meðan þú hafðir heilsu til fórstu á vorin aftur í sveitina á heimaslóðirnar og varst fram á haust til að komast á sjóinn og í réttirnar. Eftir að ég fullorðnaðist kíkti ég stundum á þig á sumrin þegar ég var á ferðalagi fyrir vestan og einnig voru haldin nokkrum sinnum ættarmót í Litluhlíð sem gaman var að koma á. Það eru líka margar minning- ar og samverustundir sem tengj- ast Logafoldinni, ég kom oft í heimsókn og átti alltaf stuðning og athvarf hjá ykkur ömmu þar. Það var fastur liður á jóladag að koma í jólaboð í Logafoldina og hélst sú hefð fram til jóla 2015 þegar haldið var þrítugasta og síðasta jólaboðið þar á bæ. Elsku afi. Hjartans þakkir fyrir að hafa verið til staðar fyrir mig og sýnt mér stuðning og aðstoð, bæði á góðum stundum sem og á erf- iðum tímum. Ég óska þér alls hins besta í nýja lífinu og veit að þú ert í góð- um félagsskap með Kollý ömmu og ættingjum þínum og vinum sem eru farnir úr þessu lífi. Kær kveðja. Þín Sandra. Við fráfall Jóhanns Þorsteins- sonar, bónda frá Litluhlíð á Barðaströnd, eða Jóa frænda, eins og hann var jafnan nefndur í minni fjölskyldu, vakna margar og góðar minningar. Hugurinn hvarflar næstum fjóra áratugi aftur í tímann til þess tíma er ég fyrst tengdist bænum Litluhlíð og fólkinu þar fjölskyldubönd- um. Á komandi árum áttu bær- inn og fólkið þar eftir að leika stórt hlutverk í minni fjölskyldu, ekki síst hjá dætrum okkar þremur, sem fengu þar að kynn- ast sveitalífi þess tíma. Það var bara einhvern veginn svo einstakt að koma í Litluhlíð og fá að taka þátt í lífinu á bæn- um. Viðmót húsráðendanna, Jóa og Kollýjar, einstakt og maður fann sig ávallt velkominn þótt erill og gestagangur væri ærinn fyrir. Ekki var einungis stund- aður hefðbundinn búskapur, heldur var grásleppuútgerðin einnig mikilvægur rekstrarþátt- ur. Sá sem þetta ritar minnist þess m.a. að hafa verið tekinn í kennslustund af Jóa í að slá með orfi og ljá og einnig gerðist ég háseti hjá honum í grásleppu- róðri. Af hvoru tveggja fara litl- ar sögur en mér varð ljóst af hógværum viðbrögðum bóndans, að trúlega lægju hæfileikar mín- ir alls ekki á þessum tveimur sviðum þótt fá en hnitmiðuð orð féllu þar um. Margs er að minnast frá þess- um árum og einnig þeim sem í hönd fóru. Kollý féll frá á besta aldri eftir erfið veikindi og mér er ekki grunlaust um, að ótíma- bær brottför hennar hafi verið Jóa þungbærari en maður gerði sér grein fyrir. Hann hélt þó áfram að dvelja fyrir vestan frá vori til hausts meðan heilsan leyfði og sömu notalegheitin og áður mættu manni ævinlega þar. Á kveðjustund vil ég þakka fyrir einstök og gefandi kynni, viðurgjörning og velgjörðir allar, mér og mínum til handa. Fyrir þetta allt vil ég þakka af heilum hug. Fjölskyldunni allri eru færðar innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Jóhanns Þorsteinssonar. Guðmundur Jóelsson. Með nokkrum orðum langar mig að minnast Jóa frænda sem ég minnist með hlýju og þakk- læti. Mér eru efst í huga árlegu jólaheimsóknirnar til Jóa á að- fangadag. Við Gunnar afi tókum að okkur að vera jólasveinarnir í fjölskyldunni og keyrðum á hverju ári út jólagjafirnar til móðursystkina minna á aðfanga- dag. Það var órjúfanlegur partur af hefðinni að síðasta stoppið áð- ur en haldið var heim til jóla- halds var í Grafarvoginum hjá Jóa frænda. Þar var ávallt tekið á móti manni með velvild og hlýju. Þeir bræður, Jói og afi, voru líkir að mörgu leyti þó þeir væru líka ólíkir. Þeir áttu það til að rökræða aðeins, eða eins og ég kallaði það þá „tuða“ hvor í öðrum, en aldrei var glettnin langt undan og minnist ég þess að hafa alltaf haft gaman af því að vera í kringum þá og með þeim í þess- um samræðum sín á milli. Einnig eru mér ofarlega í huga allar heimsóknirnar sem ég fór með foreldrum mínum í Litluhlíð á Barðaströnd. Á hverju ári var farið vestur á firði og var alltaf stoppað í Litlu- hlíð og oftar en ekki dvalið þar yfir nótt. Alltaf voru móttökurn- ar höfðinglegar hjá þeim Jóa og Kollý, og minnist ég þess sér- staklega hversu vel var tekið á móti mér. Ég get ekki sleppt því að minnast hér á hundana, þá sér- staklega Lappa. Jói átti í mínum augum sérstakt og fallegt sam- band við hundana sem hann átti og ég kom einmitt í Litluhlíð um það leyti sem Lappi var nýkom- inn á svæðið, lítill og glaðbeittur hvolpur. Það var líka fastur punktur í árlegu jólaheimsókninni okkar afa að láta heimilishundinn leika listir sínar. Jóa þótti gaman að sýna manni hvað hann hafði kennt honum. Ég kveð ljúfan frænda minn með þakklæti og hlýju í hjarta. Á svona kveðjustundum er erfitt að geta ekki verið viðstaddur en ég hugsa til hans héðan frá Kaupmannahöfn og kveiki lítið ljós í minningu hans. Ég efast ekki um að hann fái góðar mót- tökur hinum megin þar sem Kollý, Gunnar afi og hin systk- inin taka vel á móti honum. Fjölskyldunni sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Jóa frænda. Aldís Guðmundsdóttir. Árið 2006 hvarf hún Kollý „mamma“ til þeirrar eilífu Litlu Hlíðar, sem vonandi bíður okkar allra handan við lífsins Breiða- fjörð. Og nú er Jói „pabbi“ far- inn til hennar; siglir á honum Vin yfir blikandi haf og leggur að við Haukabergsvaðal, þar sem hvíti Land-Roverinn bíður í gulum fjörusandinum. Það verð- ur ánægjuleg ökuferð með há- væru söngli undir stýri eftir hol- óttum vegi, uns hann beygir upp afleggjarann þar sem hún stend- ur á hlaðinu að taka á móti hon- um. Ég var í sveit hjá þeim hjón- um í fjögur sumur frá tíu ára aldri og þau bernskuár eru björt og sólrík í minningunni; eins og þegar Guðrún „amma“ stóð við olíueldavélina að steikja flatkök- ur, eða þegar Jói sat eftir matinn og flautaði lágt með fingur við vör, til að fá trillur í tóninn, lygndi aftur augunum og klóraði sér í eyranu með tálgaðri eld- spýtu. Þetta voru hin hljóðu og kyrrlátu augnablik, með ilm af súrheyi og sterku kaffi. En hin voru fleiri þar sem mikið gekk á við sauðburð, hey- skap eða grásleppuútgerð og hið eilífa stríð fjárbóndans: að reka kindur úr túninu. Þá kom sér vel að Jói hafði sterka rödd. Jói var alvöru maður, og þegar hann var vatnsgreiddur, sem hann var oft, var hann mikill töffari í mínum augum. Ég segi „alvöru maður“ vegna þess að mér þótti vænt um hann, leit upp til hans og bar virðingu fyrir honum; hann kenndi manni handtökin við það sem þurfti að gera og fól manni síðan ábyrgðina á að leysa verk- ið af hendi. Þannig lærir maður best að vinna og það lærði ég af honum: að vinna, að axla ábyrgð. Það er ekki öllum gefið að leggja svo mikilvæga hornsteina í vit- und barns, með þeim hætti að maður búi að þeim alla tíð síðan. En það gerði hann, eins og al- vöru pabbar eiga að gera. Ég man hvað mér fannst jafn- aldrar mínir vera mikil smábörn, þegar ég kom aftur til Reykja- víkur eftir fyrsta sumarið mitt í Litlu Hlíð; þeir höfðu hangið í bænum við fánýta iðju borgar- barna, en ég hafði tekið á móti lömbum, rekið og sótt kýrnar, mokað flórinn, lært að hand- mjólka, lært að gera að sel og spýta selskinn, strekkja girðing- ar, snúið heyi á Farmal, dregið grásleppunet úti á honum Breiðafirði og horft á hvalina blása skammt frá; ég hafði lært hin nauðsynlegu handtök við verkun grásleppuhrogna og hina miklu matargerðarlist: að reykja rauðmaga. Ég hafði setið snemma morg- uns með svart kaffi í bolla og molasykur milli tannanna að ræða málin eins og fullorðinn maður við Jóa. Því hann talaði ekki við mann eins og maður væri fávíst barn, heldur viti bor- in mannvera. Og hann hafði gef- ið mér lamb. Mér fannst ég vera auðugasti tíu ára drengurinn í allri borginni það haust. Og kannski var ég það. Það er vegna Jóa og Kollýjar og fjölskyldunnar allrar í Litlu Hlíð að í bernskuminningum mínum er ævinlega sólskin og blíða, hlátur og gæska. Jói „pabbi“ fór snögglega. Það var ekki hans stíll að tefja við það sem gera þurfti. Og nú þurfti hann að drífa sig heim. Þar hefur hann fengið höfðing- legar móttökur. Blessuð sé minning hans. Friðrik Erlingsson. Jóhann Þorsteinsson Komið er að kveðjustund. Góður félagi er fallinn frá, hefur fullnað skeiðið. Ég kynntist Eyvindi fyrst haustið 2011 þegar ég fluttist með fjölskyldu minni frá Ak- ureyri til Mosfellsbæjar. Þegar ég mætti á minn fyrsta fund deildar Gídeonfélagsins í Mos- fellsbæ var hann öldungurinn í hópnum. Öldungur í árum talið en ekki í hugsun. Hann tók mér vel, margt tengdi okkur saman; trúin, félagið og ekki síst Ak- ureyri, þar sem Eyvindur bjó á árum áður. Eyvindur var einn af okkar Eyvindur Splidt Pétursson ✝ EyvindurSplidt Pét- ursson fæddist 24. október 1928. Hann lést 16. janúar 2016. Útför hans fór fram 26. janúar 2016. trúföstu félögum Gídeonfélagsins. Hann tók virkan þátt og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum og sat m.a. í stjórn deildarinn- ar fram á vorið 2014 en þá fannst honum tímabært að stíga til hliðar og hleypa sér yngri mönnum að. Alltaf var hann viljugur að taka þátt í verkefnum félagsins, m.a. heim- sóknum til grunnskólabarna þar sem hann fékk að gefa nem- endum góðu bókina sem segir frá lífi og starfi Jesú Krists og kærleika Guðs til okkar mann- anna, Nýja testamentið. Við Gí- deonmenn prédikum ekki yfir skólabörnum en góðmennska og kærleikur Eyvindar leyndi sér ekki og var það prédikun Ey- vindar. Á okkar stuttu samferð þurfti Eyvindur að glíma tvisvar við illvíg veikindi. Í fyrra skiptið hafði hann sigur en þau síðari felldu hann. Í bæði skiptin sýndi Eyvindur fádæma æðruleysi. Þegar ég spurði Eyvind hvernig honum liði, var svar hans alltaf á sama veg: „Guð ræður.“ Þann- ig var líf Eyvindar, lífsspekin einföld. Ekkert var að óttast, áhyggjur óþarfar því að sá sem öllu ræður fékk að stýra veg- ferðinni. Það er gott veganesti að hafa þá fullvissu í hjarta sínu að höfundur og fullkomnari lífs- ins sé við stjórnvölinn. Þá þarf ekkert að óttast. Nú er Eyvindur kominn heim í fögnuð herra síns. Við sem eft- ir sitjum erum fátækari að hafa Eyvind ekki lengur með okkur. Það styttist þó í heimkomu hins trúaða þar sem ég veit að Ey- vindur tekur fallega á móti sín- um eins og hann gerði á fyrsta fundi mínum í nýju bæjarfélagi. Við félagar í Gídeondeildinni R-austur vottum Sigurlínu og ástvinum öllum okkur dýpstu samúð og biðjum þess að frels- ari okkar uppörvi á erfiðum tím- um. Fyrir hönd Gídeondeildarinn- ar R-austur, Fjalar Freyr Einarsson, formaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.