Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 14
S ú hin sama getur líka farið í sund án þess að eiga það á hættu að vera með mask- arataumana niður kinnarnar. Sú sem er með augnháralengingu þarf líka að mála sig minna um augun því lengingin setur svo mikinn svip. Augnförðun getur því ver- ið í lágmarki ef stemning er fyrir því. Undirrituð þekkir þetta af eigin raun en haustið 2010 prófaði hún augn- háralengingu í fyrsta skipti og varð heilluð. Í byrjun heyrði undirrituð hræðilegar hryllingssögur af konum sem höfðu farið í heimahús þvers og kruss um bæinn í augnháralengingar með skelfilegum afleiðingum. Augnhárin hefðu dottið af, eyðilagst og/eða verið í marga mánuði að jafna sig. Mögulega gerðu þessar hryllingssögur það að verkum að það hvarflaði bara aldrei að undirritaðri að hætta þessari iðju. Ánægjan með augnhárin var alltaf jafnmikil enda voru þau lag- færð samviskusamlega á þriggja vikna fresti. Í byrjun árs vaknaði undirituð þó upp við vondan draum. Eftir að hafa verið í miklum sjónvarps- upptökum þar sem förðunin er ekki spöruð og gervi- augnhár límd yfir augnháralenginguna sögðu augnhár- in eiginlega stopp. Þau sættu sig ekki við þessa slæmu meðferð og ákvað undirrituð að hvíla augn- háralenginguna um hríð eða allavega meðan á sjón- varpsupptökum stendur. Undirrituð ráðfærði sig við snyrtifræðing sem ráðlagði að bera augnháranæringu á augnhárin. Auk þess mælti hún með mask- aranum Lash Sensational frá Maybelline sem þykkti og lengdi augnhárin svo um munar. Ef undirritaða misminnir ekki kostaði augnháranæringin um 3.900 kr. á snyrtistofunni Lip- urtá í Hafnarfirði og Maybelline-maskarinn kostaði um 2.700 kr. í apóteki. Það sem er merkilegt við þetta er að það tók augnhárin um viku að jafna sig. Í dag er eins og ekkert hafi ískorist. Óttinn sem gerði vart við sig á haustmánuðum 2010 var því algerlega óþarfur. Er hægt að hætta? Síðustu ár hafa augnháralengingar verið ákaflega móðins sem er ekkert skrýt- ið. Augnháralenging gerir það að verkum að sú sem með hana er þarf ekki að nota maskara heldur vaknar á hverjum morgni með fullkomin augnhár. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is Hér sést hvað maskarinn gerir mikið gagn. AFP Kim Kardashian er alltaf með mjög löng og þykk augnhár. Audrey Hepburn lagði mikið upp úr því að vera með þykk og myndarleg augnhár. Augnháraserum frá Héliabrine fæst á snyrtistof- unni Lipurtá. Það dugar bæði á augnhár og í augabrúnir. Maskarinn Lash Sensational þykkir og lengir augnhárin svo um munar. F yrir margar konur er þetta hreinlega tíma- sparnaður á morgnana. Þær þurfa að mála sig minna og finnst frábært að þurfa ekki að nota maskara. Augnháralengingar eru líka vinsælar því þær lengja og þykkja okkar náttúrulegu augnhár og bæta þannig útlitið,“ segir Þórey. Þegar Þórey er spurð að því hverjar það séu sem sækja í augnháralengingarnar segir hún að konur á öllum aldri elski að hafa löng og þykk augnhár. „Þær sem eru yngri eru frekar að fá sér lengri en þær eldri. Ég myndi segja að með aldrinum sækist konur eftir eins náttúrulegu útliti og hægt er og fái sér þar af leiðandi örlítið styttri lengingar. Það er pottþétt fullt af konum sem þig grunar ekki einu sinni að séu með lengingar því þetta er svo náttúrulegt.“ Hvað hefur augnháralenging fram yfir það að nota maskara? „Að setja á sig maskara getur hreinlega reynst mörgum mjög erfitt. Mörgum finnst þetta taka óra- langan tíma og klessa jafnvel upp á augnlokin. Það eru líka til konur sem eru með ofnæmi fyrir mösk- urum, konur geta til dæmis tárast mikið með mask- ara, og þá eru lengingar sniðugar. Það sem augnháralenging hefur framyfir maskara er að það næst alltaf fram náttúrulegra útlit með henni og svo að sjálfsögðu er hægt að hafa augnhárin lengri en maskari getur gert.“ Nú heyrast reglulega hryllingssögur af konum sem hafa eyðilagt á sér augnhárin með augnháralengingu. Er eitthvað til í þessu? „Já, þessar hryllingssögur eru margar hverjar sannar, en það er ekki þar með sagt að það eigi við um allar augnháralengingar sem eru í boði í dag. Augnháralengingar eins og ég geri á Lipurtá eru hágæða lengingar sem eru gerðar með stökum hárum þar sem ég lími eitt gervihár á eitt náttúrulegt hár. Lengd og þykkt hársins er valin út frá hverjum og einum viðskiptavini. Það þarf alltaf að taka öllum svona sögum með fyrirvara. Þú veist ekki alltaf alla söguna. Það geta verið margar ástæður fyrir svona hryllingssögum, eins og til dæmis ef viðkomandi rífur af sér augnháralengingu þá missir viðkomandi að sjálfsögðu sín hár. Eða ef viðkomandi reynir að fjarlægja lenginguna af sjálfur þá er mikil hætta á að eigin augnhár slitni af með lengingunni. Það er mjög nauðsynlegt að fara eftir fyrirmælum um hvernig á að meðhöndla augnhárin og ávallt leita til fagmanns til þess að láta fjarlæga lenginguna. En það eru þó margar að bjóða upp á lengingar sem eru allt of þykkar og augnhár límd á í búntum, það eru lengingar sem fara illa með eigin augnhár og ég mæli alls ekki með þannig lengingum,“ segir Þór- ey. Þegar Þórey er spurð að því hvort augnháratískan sé eitthvað að breytast segir hún svo ekki vera. „Ég hef starfað við það að setja augnháralengingar á konur í tæplega fimm ár og á þeim tíma hefur tískan alls ekki breyst mikið. Flestar vilja hafa þetta nátt- úrulegt og fallegt. Lengdin er ekki aðalmálið í dag, heldur vilja flestar örlítið lengri en sín eigin, aðeins þykkari og enn og aftur að þetta sé náttúrulegt,“ segir Þórey. Augnháralenging er mjög náttúruleg. Hér sést hvernig augn- háralengingin lítur út. Vilja örlítið lengri og þykkari augnhár Þórey Gunnarsdóttir, snyrtifræðingur á snyrtistofunni Lip- urtá, segir ekkert lát á vinsældum augnháralenginga. Þegar hún er spurð að því hvers vegna lengingarnar séu svona vin- sælar segir hún ótal ástæður vera fyrir því. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is Tískan í augnhára- lengingum breytist lítið. Þórey Gunnarsdóttir snyrtifræðingur á Lipurtá. 14 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.