Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 20

Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 20
Ljómandi og frískleg húð er það sem allir vilja þessa stundina en þetta eru allt vörur sem eiga það sameiginlegt að auka á ljóma húðarinnar. Bobbi Brown Illuminating Moisture Balm. Veitir raka og ljóma. Kremið hefur silkimjúka áferð og hentar vel undir farða þannig að húðin virðist ljóma innan frá. MAC Strobe Cream. Sanserað hvítt krem sem inniheldur vítamín og grænt te sem hressir upp á húðina samstundis og veitir ljóma. Estée Lauder Illuminating Primer. Þessi farðagrunnur gefur húðinni slétta áferð, eykur endingu farðans og eykur ljóma. Nýjasta nýtt Krem sem veita þennan eftirsótta ljóma Ljómandi húð er það sem allir vilja þessa stundina. 20 MORGUNBLAÐIÐ Lingó er umboðsaðili á Íslandi fyrir fjölmarga alþjóðlega fagháskóla í skapandi greinum, sem allir eru í fremstu röð á sínu sviði. Í boði er hagnýtt nám, sem sameinar frumkvæði, hugmyndir og tækni og er í góðum tengslum við alþjóðleg fyrirtæki. Nemum í þessum skólum gefst einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, með stefnum og straumum víða að úr heiminum og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Háskólanám erlendis í hönnun, markaðsfræði, sjónlistum, stafrænni miðlun, stjórnun, sviðslistum, eða tísku opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis B A N D A R Í K I N • K A N A D A • E N G L A N D • S K O T L A N D • Í T A L Í A • S P Á N N • Þ Ý S K A L A N D Getur þú lýst fatastílnum þínum? „Frekar einfaldur og yfirleitt frekar svart-hvítur þó að blátt sé algerlega minn uppáhalds- litur. Ég er helst í þröngum gallabuxum eða leðurbuxum, síðum skyrtum og góðum blazer- jakka. Stórir klútar eða treflar eru nauðsynlegir hjá mér og flott taska til að setja punktinn yfir i-ið.“ Fyrir hverju fellur þú yfirleitt? „Svörtum leðurbuxum frá Rabens og grófum peysum frá Hunkydory. Síðan er ég alger sjúklingur þegar kemur að töskum og skóm með frekar háum hælum. Líklega eins og flestar konur.“ Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum þessa stund- ina? „Bláar gallabuxur, síðar mussur/skyrtur í ljósum lit, flottan blazer og strigaskó. En í vetur kemur leðrið enn sterkara inn en áður, ég hlakka mikið til!“ Hver er nýjasta flíkin í fataskápnum þínum? „Gallabuxur frá Boss Orange og aðrar frá Polo Ralph Lauren, síð mussa og tvíhnepptur jerseyjakki frá Hunkydory.“ Hvað vantar í fataskápinn þinn? „Pláss og skipulag.“ Er eitthvað sem þú myndir aldrei klæðast? „Dýramynstrum.“ Áttu þér uppáhaldshönnuð? „Louis Vuitton í töskum og aukahlutum, en í fatnaði eru það Jason Vu, Victoria Beckham og Birgitte Raben Olrik. Annars finnst mér hönnuðirnir sem sjá um Polo Ralph Lauren by Ralph Lauren vera að gera æðislega hluti og línan næsta vetur er æði. Hlý og kósí í fallegum gráum tónum eins og við þurfum hér á Íslandi.“ Er einhver frægur hönnuður, hönnun eða stefna ofmetið að þínu mati? „Ég held ég geti ekki leyft mér að segja að eitthvað sé ofmetið en hins vegar finnst mér margir af þessum stóru hönnuðum ekki vera að hanna föt sem við venjulega fólkið myndum nota – lítur vel út á pöllunum en ekkert sérstaklega utan þeirra.“ Hvað finnst þér mest heillandi í vor- og sumartískunni? „Smá svona 70’s-áhrif og þægilegar flíkur. Litirnir frekar dempaðir en maður er orð- inn frekar leiður á öllu þessu skæra núna nema þá í golfinu, þar mega litirnir vera sterkir.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Það eru nú nokkrar sem manni finnst flottar í þessum geira en hún Dorthe vinkona mín hjá Rabens Saloner er með flottari konum sem ég veit um. Af þeim frægari finnst mér Victoria Beckham verða flottari með árunum – svo klassísk og aldrei of yfirdrifin.“ Sjúk í töskur og skó „eins og flestar konur“ Ingibjörgu Kristófersdóttur, eiganda verslunarinnar Mathildu í Kringlunni, vantar skipulag og pláss í fataskápinn. Hún kveðst vera „algjör sjúklingur“ þegar skór og töskur eru annars vegar og dreymir um að eignast tösku frá Mulberry. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ingijöbjörg, eigandi Mathildu í Kringl- unni, er hrifin af leðurbuxum þessa stundina. Góðar gallabux- ur, skyrta og blazer-jakki er skothelt dress að mati Ingibjargar. Hvað er á óskalistanum? „Mulberry-taskan Bayswater í koní- aksbrúnu – takk.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.