Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 22
Í
raun var þetta ekki meðvituð ákvörðun, að verða stílisti,
heldur datt ég inn í þetta starf. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á fatnaði og búningum og í raun þróaðist þetta yfir í
aukastarf á meðan ég var í námi.“
Gjarnan er talað um að tískubransinn sé harður en Ási
segir svo ekki vera þó að það geti stundum verið erfitt að
fá verkefni á litla Íslandi. „Þetta er alls ekkert harður bransi.
Flestir sem ég þekki sem vinna við tísku eða hönnun eru hið
besta fólk. Það er einmitt það langbesta við starfið, hæfi-
leikaríka og skemmtilega fólkið sem maður kynnist í vinnunni.
Aðalvandamálið er auðvitað í hversu litlu landi við búum og
það er ekkert svo mikið framboð á
fatnaði né verkefnum hér á landi.“
Mikilvægt að fólki líði
vel með útkomuna
Ási segir mikilvægt að kúnnarnir
og þeir sem hann vinnur með
hverju sinni fái að koma sínum hug-
myndum á framfæri þannig að allir
séu sáttir. Vinnuferlið er vissulega
misjafnt eftir því um hvernig verk-
efni er að ræða. „Ferlið við að gera
tískuþátt annars vegar og að finna
fatnað fyrir viðmælanda hins vegar
er gjörólíkt. Í tískuþætti getur mað-
ur í raun gert hvað sem er, enda er
maður að skapa einhvers konar
heim. Þegar maður er að klæða við-
mælanda eða „alvöru“ manneskju
vinnur maður með þeirra ímynd og
innan þeirra þægindaramma. Þá er
mikilvægast að þau séu sátt við það sem er verið að gera. Auðvitað er
fólk misjafnt og sumir geta auðvitað verið viðkvæmir fyrir þeim mynd-
um sem birtast af þeim, sérstaklega þegar fólk er í stórum og persónu-
legum viðtölum. Sumir eru opnari en aðrir fyrir hugmyndum en fyrst
og fremst vill maður að fólki líði vel. Ég reyni helst að vinna með fólki
að niðurstöðunni og hef enga löngun til að vera einhver einræðisherra á
setti.“ Þegar niðurstöðu hefur verið náð fer Ási á fullt að finna flíkur og
aukahluti sem henta. „Þá hefst stuðið, maður þeytist um allan bæ og
sankar að sér fötunum. Það getur verið frekar erfitt hérna heima, því
það er takmarkað framboð á fatnaði.“
Góður andi er lykilatriði ef verkefnið á að vera ánægjulegt að sögn
Ása. „Skemmtilegustu verkefnin eru þau þegar orkan er góð á setti og
allir jákvæðir, það þarf bara einn til að skemma daginn. Nú hef ég kom-
ið víða við en ég held ég verði að segja að Silvía Nótt hafi verið
skemmtilegasta og jafnframt erfiðasta verkefni sem ég hef unnið að,
því þetta voru margir mánuðir og fleiri tugir búninga.
Núna er nóg að gera. Ég er að undirbúa sýningu ásamt uppáhöldunum mín-
um úr P3, sem er vinnustofuverslunin okkar Sævars Markúsar, Rebekku hjá
REY og Dúsu sem er með Skaparann. Einnig sé ég um forsíðurnar fyrir MAN
magasín ásamt nokkrum öðrum skemmtilegum verkefnum,“ segir Ási að-
spurður hvað sé á döfinni.
Ljósmynd/Íris Dögg
Ása er margt til lista lagt, hann
sá um allt útlit í þessari töku og
tók einnig myndina sem birtist í
MAN magasín.
Hefur enga löngun til að
vera einræðisherra á setti
Ásgrímur Már Friðriksson, eða Ási Már eins og hann er gjarnan kall-
aður, starfar sem stílisti og byrjaði í þeim bransa þegar hann var í fata-
hönnunarnámi við Listaháskóla Íslands. Hann segir stílistastarfið
skemmtilegt en á sama tíma krefjandi í litlu landi.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Ási hefur tekið
að sér fjöl-
breytt verkefni
í gegnum tíð-
ina, til dæmis í
tengslum við
tískuþætti,
viðtöl og
auglýsingar.
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir
Ási Már sendi frá sér
sína fyrstu herralínu á
seinasta ári. Íris Dögg
myndaði hana.
„Skemmtilegustu verkefnin
eru þau þegar orkan er góð á
setti og allir jákvæðir,“ segir
Ási Már um stílistastarfið.
Ljósmynd/Ási Már
TÍSKUBRANSINN Á ÍSLANDI
Ási hefur
stíliserað
töluvert
fyrir MAN
magasín.
„Þetta er alls
ekkert harður
bransi.“
22 MORGUNBLAÐIÐ
Lífrænt vottuð andlitsolía sem
rannsóknir sýna að hindrar
öldrun húðarinnar.
Olían stinnir, þéttir og nærir
húðina, gefur henni góðan raka
og fallegan náttúrulegan lit. Hún
ver húðina gegn kulda og er rík
af fjölómettuðum fitusýrum.
Mildur ilmur jurtanna hefur
róandi áhrif á hugann.
Rannsóknir staðfesta einnig að
olían þéttir húðina, stuðlar að
uppbyggingu hennar og vinnur
gegn húðskemmdum. pH gildið
er 7,00 sem er það sama og
húðin, því raskar olían ekki
sýrustigi húðarinnar.
100%
LÍFRÆNT
ÁN ALLRA
AUKAEFN
A
Hindrar öldrun
húðarinnar