Morgunblaðið - 12.02.2016, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.02.2016, Qupperneq 30
Hvað dreymir þig um í fataskápinn fyrir vorið? Það sem mig dreymir um er að finna tíma og hugrekki til að hreinsa út úr honum! Mig dreymir um að fataskápurinn minn sé rúmgóður og skipulagður svo ég geti einhvern tíma séð fal- legu fötin sem ég á. Eða bara einhver föt almennt. Hver er bestu fatakaup sem þú hefur gert? Það er þegar ég keypti stóra svarta kasmírtrefilinn minn. Ég er tryllt í kasmír, þunnt en hlýtt og sexí eitthvað … namminamm. Og leðurjakkinn minn. En þau allra verstu? Ég átti aldrei mikinn pening til að kaupa mér föt sem unglingur (eins og flestir aðrir unglingar) en einn daginn áskotnaðist mér smá sjóður. Ég fór beint í Kringluna og missti mig. Keypti mér skærappelsínugula hettupeysu (neon sko) og skærgrænar pól- íesterbuxur. Svo gekk ég í þessu saman. SAMAN! Ekki mitt bjartasta móment (þó kannski það skærasta). Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega? Það er mjög misjafnt. Ef ég er á fundum fyrir verkefni klæði ég mig í átt að tilteknum karakter. Ef ég er heima er ég oft í legg- ings og stórum peysum. Tíska sem slík hefur aldrei verið fókus hjá mér heldur er ég frekar heilluð af því hvernig manni líður mismunandi í mismunandi fötum. Hvernig visst snið getur fengið mig til að bera mig betur og hvernig ég verð allt í einu „playful“ og léttari ef ég fer í strigaskó og stóran stuttermabol. Ef ég er að þróa hugmynd eða karakter finnst mér gott að klæða mig eftir því, því fötin geta oft gefið svo miklar vísbend- ingar og leitt mann á skemmtilegar brautir. Um daginn var ég að klára að skrifa bókina mína sem ég er að vinna með Sollu Eiríks og mér fannst hausinn á mér ekki vera skýr, ekki vera í rétta tóninum og sárvantaði einhvern til að hrista mig aftur inn á rétta braut. Þá klæddi ég mig í mitt- isháar, síðar svartar dressbuxur, hvíta skyrtu og bindi og strunsaði niður á kaffihús til að sturta í mig einum rótsterkum – og vissulega fleytti koffínvíman mér af stað en dressið gaf mér einhverja nýja orku. Ég notaði þykjustuskrifstofuklæði til að hrinda sjálfri mér í nýjan gír. Uppáhaldshönnuður? Svala Björgvins vinkona mín með Kali-línuna sína. Ég eeeeelska tuxedo-dragtina hennar. Svala er svona gúrúið mitt og bjargvættur (á líkama, flíkur og sál). Hún kemur oft og dressar mig fyrir hitt og þetta og lætur mér líða eins og of- urskutlu. Hún gaf mér vintage Oscar de la Renta-jumpsuit um daginn sem ég fór í í umboðmannalunch og mér leið svo vel að mér fannst eins og ég svifi svona aðeins upp af gólfinu. Fötin hennar Svölu hafa þann eiginleika. Láta andann vaxa um nokkra sentimetra. Hvernig farðar þú þig dagsdaglega? Yfirleitt nota ég eitthvað létt, eins og litað dag- krem, í grunninn. Og einhvers konar fljótandi baugafelara. Svo finnst mér Make Up forever hd- púðrið alveg ómissandi til að halda grunninum á sínum stað. Pínu augnskuggi, svartur eða dökk- brúnn eyeliner og maskari. Hvaða dagkrem notar þú? Er núna að nota Resveratrol-línuna frá Caudalie. Hvað gerirðu við hárið á venjulegum degi? Úff … Ég reyni að gera eins lítið og ég mögulega kemst upp með. Nema þegar ég þarf að hafa mig til fyrir fundi og glamúrfylltar kvöldstundir. Ég er svo guðslifandi fegin að koma á sett þar sem einhver gerir það fyrir mig. Það er himnesk stund. Fólk má djöflast á hárinu á mér í klukku- tíma. Bara að ég þurfi ekki að gera það sjálf þenn- an dag. Bara í einn dag. Komin með nóg af þessu hárdútli fyrir lífstíð. Keypti mér derhúfu í gær. Hvert er besta leynitrixið þegar kemur að heilsu og útliti? Sko, húðliturinn minn ósnertur og ósólaður er einhvers konar blár (allavega glær, ekki að grín- ast) svo ég nota oft bara basic „tanning wipes“ til að koma heilbrigðum lit á húðina svo ég þurfi sem minnst af farða. Svo eru til monster-skyndilausnir eins og Instant Firm eftir Peter Thomas Roth sem getur komið sér vel þegar ég er þreytt eða þrútin til að lyfta öllu andlitinu. Grænt te er töfra- drykkur; svo fullt af andoxunarefnum að ég sé mun á andlitinu eftir einn dag af stífri svoleiðis drykkju. En það sem ég er alltaf að vera meðvit- aðri um og það sem þarfnast bráðnauðsynlega meiri umræðu er hversu alvarlega maður þarf að taka stress! Stressið hefur skelfileg áhrif á tauga- kerfið og frumurnar. Alveg rosalega skaðleg áhrif á heilsufar almennt, og að sjálfsögðu útlit. Þetta er nokkuð sem ég verð sjálf að finna betri lausn á í mínu lífi. Hvernig ég höndla álag. Er bara svona á viðurkenningarstiginu. Ég stunda vinyasajóga mikið. Það er ein af fáum leiðum fyrir mig til að hvíla hugann. Það og bjór. En bjórinn má víst ekki vera memm á þessum lista. Er það? Hollywoodleikkonan Aníta Briem notar föt og klæðaburð til að hjálpa sér í vinnunni. Ef hún er andlaus á hún það til að skipta um föt til að fá aukna orku. Á næstunni kemur út hennar fyrsta matreiðslubók sem hún gerði með Sollu Eiríks en annars var hún að klára mynd með Werner Herzog og stutt verkefni fyrir Warner bros. Þessa dagana er hún að undirbúa litla ástarsögu eða Indie-mynd eins og hún segir sjálf. Ég spurði hana spjörunum úr. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is „Svala Björgvins lætur mér líða eins og ofurskutlu“ Aníta Briem fær Svölu Björgvins til að stílisera sig þegar mikið liggur við. „Sko, húðliturinn minn ósnertur og ósólaður er ein- hvers konar blár (allavega glær, ekki að grínast) svo ég nota oft bara basic „tanning wipes“ til að koma heil- brigðum lit á húðina svo ég þurfi sem minnst af farða. “ 30 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.