Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 36

Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 36
Svona er innihaldið í töskunni hennar Eyglóar. Eygló gengur um með leðurbakpoka. Hvernig tösku notar þú? „Ég er alltaf með leðurbakpoka.“ Hvað ertu með í töskunni þessa stundina? „Í honum núna er peningaveski, varasalvi, varalitur, tóm filmubox, leðurhanskar, lítil myndavél, penni, lyklar, andlitspúður, gler- augnahulstur og minnisbók.“ Er eitthvað í töskunni sem þú tekur með þér hvert sem þú ferð? „Ég er alltaf með lykla, varasalva, penna og peningaveski með mér.“ Er drasl í töskunni? „Ég er mjög dugleg að skipta út hlut- um sem ég þarf fyrir daginn svo ég myndi segja að ég væri dugleg að taka til í henni.“ Hvernig taska er á óskalistanum? „Ég væri alveg til í að eiga tösku frá Lindu Sieto og bakpoka frá Alfie Dougl- as.“ TASKAN MÍN Eygló er hrifin af hönnun Lindu Sieto. Ljósmyndarinn Eygló Gísladóttir, sem er nýkomin til Íslands aftur eftir að hafa verið búsett í Los Angeles, gengur alltaf um með bakpoka sem inniheldur nokkra hluti sem hún þarf á að halda til að komast í gegnum daginn. Eygló fór í gegnum töskuna sína og innihald hennar fyrir lesendur. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Með tóm filmubox og myndavél í bakpokanum 36 MORGUNBLAÐIÐ TM I KNOW I CAN TRUST. KATIE HOLMES I’ll only use skincare“ ” BE YOUR BEST BEAUTIFUL WITH THE WORLDS NO. 1 FEMALE FACIAL SKINCARE BRAND. Rakakremið All In One Snail Repair Cream frá Mizon er afar spennandi og merkileg vara. 92% af uppistöðu kremsins er sniglaþykkni, ótrú- legt en satt. Kremið þykir hafa undraáhrif á húðina en það á að veita henni raka og vörn ásamt því að draga úr misfell- um og fínum línum í húðinni. Kremið, sem er tiltölulega létt og gelkennt, mun einnig hafa góð áhrif á húð þeirra sem fá gjarnan bólur. Á umbúðum All In One Snail Repair Cream segir: „Sniglaslímið vinnur á hinum ýmsu húðvandamálum. Það frískar upp á þreytulega húð og veitir henni vernd.“ Kremið rokselst víða í Asíu en merkið Mizon er upprunnið í Kóreu. Þeir sem vilja gefa húðinni extra dekur ættu einnig að kynna sér Enjoy Vi- tal-Up Time- Line Fit-maskann frá sama merki. Í maskanum er formúla sem inniheldur peptíð sem vinna gegn öldrun húðarinnar og ýta undir kollagen framleiðslu. Maskinn róar húðina, veitir raka og blæs nýju lífi í hana. Spennandi nýjung Getty Images/iStockphoto Jákvæðir eiginleikar sniglaslímsins Mizon- vörurnar koma frá Kór- eu og eru þróaðar af vísindamönn- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.