Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 37

Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 37
Lovísa María, eig- andi Lakk- stofunnar. Þ að sem hefur verið áberandi í tísku í vetur eru mattar neglur. Svartar mattar voru vinsælastar fyrst en núna fæ ég beiðnir um allskonar matta liti alveg frá hvítu upp í bleikt. Algengast er þó að stelpur vilji hvítar, svartar eða brúnar mattaðar neglur. Ég held að Kardashian- og Jenner-systur hafi startað því trendi en ég hef nokkrum sinnum fengið stelpur til mín með mynd af brúnu möttu nöglunum hjá Kyle Jenner, segir Lovísa María. Lovísa María segir stiletto- formið hafa tröllriðið öllu seinustu ár en vinsældir þess fara nú dvín- andi. „Náttúrulegri form eru að taka við, til dæmis oval eða sqoval, sem er blanda af oval og square. Skapið hefur áhrif á hvað fólk vill „Annars er það mjög ein- staklingsbundið hvað fólk vill. Það fer oft eftir því hvernig skapi við- komandi er í þegar hann kemur til mín. Það er nefnilega að færast í aukana að fólk tjáir sig í gegnum neglurnar, alveg eins og með fötin og förðunina sem við veljum okkur. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég elska að gera neglur, þetta er að verða svo miklu meira listform og tjáning. „Mér sýnist stuttar neglur vera að detta svolítið í tísku, en í raun- inni er allt í gangi. En svona al- mennt þá spái ég því að það verði áfram matt og jafnvel í styttri kantinum, segir Lovísa, aðspurð hvað hún haldi að verði vinsælt þetta árið. „Einn einfaldur litur og frekar klassískt form. En hver veit hvað sumarið býður upp á, stelpur eru gjarnari á að vera til í alls- konar skemmtilegt á neglurnar á sumrin. Lovísa nýtur þess að gera negl- ur, að eigin sögn, sérstaklega þegar hún fær að láta sköpunarkraftinn ráða ferðinni. „Mér finnst rosalega gaman að gera neglur og þá sér- staklega ef ég fæ til mín annað listafólk og við getum blandað sam- an hugmyndum okkar. Ég hef gert neglur fyrir tónlistarmyndbönd og nýverið gerði ég neglur fyrir eina af Reykjavíkurdætrum fyrir mynd- band. Þær voru mjög flottar, fyrir eitt atriðið gerðum við svartar langar klær og hinar voru hvítar með perlum og fullt af skrauti. En annars finnst mér alltaf gaman að fá stelpur til mín í neglur og spjall, alveg sama hvort við ætlum að gera eitthvað ýkt eða venjulegt. „Ég elska að gera neglur“ Fólk er farið að tjá sig meira í gegnum neglurnar og lætur skapið hverju sinni stjórna því hvernig neglur verða fyrir valinu að sögn Lovísu Maríu, eiganda Lakkstofunnar. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Lovísa telur Kylie Jenner hafa töluverð áhrif á naglatísk- una. Hérna er hún með langar mattar neglur í brúnum lit. AFP Söngkonan Nicole Scherzinger skartar hér ljósum nöglum í klass- ísku formi eins og er vinsælt um þessar mundir. Mattar neglur eru eftirsóttar um þessar mundir. MORGUNBLAÐIÐ 37 Nýtt!Ilmvatn frá Weleda Náttúrulegur ilmur af hreinum ilmkjarnaolíum. Margir sem eru viðkvæmir fyrir gerviilmefnum (sem oft innihalda umdeild efni) þola hins vegar vel náttúruleg ilmefni. Það er upplagt að velja líkamsvörurnar í samræmi við uppáhaldsilm eða skapið hverju sinni, þar sem allar hreinar ilmkjarnaolíur hafa sín sérstöku áhrif á sálina. Hreinar ilmkjarnaolíur hafa góð áhrif á líkama og sál, jafnvel langtímaáhrif. Allar vörur Weleda eru ofnæmisprófaðar og NaTrue vottaðar. Jardin de Vie Agrume Upplifðu ilminn af Hafþyrnis húðvörunum, og þú fi nnur ilm sólargeislanna og dagurinn verður léttari. Jardin de Vie Grenade Kvenlegur og mjúkur ilmur af Granateplum, appelsínublómi og vanilla Jardin de Via Rose Rómantískur og mildur blómailmur af rósum og ylang- ylang. Útsölustaðir Weleda: Heilsuverslanir og apótek.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.