Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 41
breyting þegar kynleiðréttingarferlið hófst fyrir alvöru,“ segir hún.
Á einhverjum tímapunkti þurfti Snædís Yrja að velja sér kvenmannsnafn.
Hún segist hafa fengið ómældan stuðning frá foreldrum sínum og vinum og
fannst ekki annað koma til greina en að foreldrar hennar myndu velja á hana
kvenmannsnafn líkt og þau gerðu þegar hún var skírð Snæbjörn á sínum tíma.
„Ég er alveg óendalega heppin með fjölskyldu og vini. Mamma og pabbi hafa
verið ótrúlega skilningsrík og hjálpað mér mikið. Þess vegna kom aldrei neitt
annað til greina en að þau myndu velja á mig nafn. Mamma valdi Yrja en pabbi
Snædísar nafnið,“ segir hún og bætir við:
„Innst inni er ég ótrúlega hamingjusöm að það sé hægt að breyta mér í
konu. Að þetta sé allt að gerast og það er bara komið að þessu,“ segir hún.
Þegar ég spyr hana hvort hún hafi aldrei fengið bakþanka með kynleiðrétt-
inguna segir hún svo ekki
vera.
„Ég beið alltaf eftir því
að fá sjokk. Eftir að ég
byrjaði að kalla mig Snæ-
dísi bjóst ég við því að fá
sjokk en aldrei kom neitt.
Ég hef aldei velt því fyrir
mér hvort ég væri að gera
rétt. Ég er ótrúlega
ánægð að þetta sé að ger-
ast,“ segir hún.
Snædís Yrja hefur
starfað í bjútíbransanum
frá unglingsaldri en hún
er bæði naglasérfræð-
ingur og förðunarfræð-
ingur að mennt. Hún er
líka hússtjórnarskóla-
gengin og kann því að
þrífa, baka og búa til mat.
Ólíkt flestum ungum kon-
um þráir hún ekkert heit-
ar en að verða húsmóðir.
Þegar ég spyr hana út í ástarlífið játar hún að hana langi í mann.
„Að sjálfsögðu langar mig alltaf í samband. Draumurinn minn væri að finna
maka sem maður elskar og gæti lifað hamingjusömu lífi með,“ segir Snædís
Yrja og bætir við: „Ég er mjög hrein og bein og vil hafa allt uppi á borðum. Ég
hef svo sem fengið ýmis tilboð frá karlmönnum en ég nenni ekki neinum leikj-
um og nenni alls ekki neinum leyndarmálum. Íslenskir karlmenn eru forvitnir
og eru oft að biðja um eitthvað sem mig langar ekki til að gera. Mig langar að
finna mér strák sem er yndislegur og góður og kemur eðlilega fram við mig.
Hann þarf að vera opinn fyrir því hver ég er og hvað ég er búin að ganga í
gegnum,“ segir hún. Þegar við ræðum frekar um karlmenn kemur í ljós að hún
hrífst af ákveðnum týpum.
„Hann þarf að vera sterkur, hávaxinn, dökkhærður og með brún augu.“
Þegar við ræðum um framtíðarsýn og hvernig hún sjái sjálfa sig fyrir sér eft-
ir tíu ár skortir ekki svör.
„Ég vona að ég verði í hamingjusömu sambandi og mig langar að njóta þess
að vera kona. Eins fáránlega að það hljómar þá langar mig að vera heimavinn-
andi húsmóðir með tvö börn. Mig hefur alltaf dreymt um það! Það er draum-
urinn,“ segir hún.
MORGUNBLAÐIÐ 41
NÝTT
Fjórir rauðir litir innblástnir frá hinni
goðsagnakenndu Marilyn. Loks finnur
þú fullkomna rauða litinn þinn
Candice er förðuð með eftirfarandi vörum:
Lasting performance farði, Mastertouch consealer,
Creme puff Blush, Masterpice Max maskari, Marilin
Monroe Ruby Red varalitur, High Definition eyeliner
penni, Smokey Eye augnskuggapalletta.
Ný Marilyn MonroeTM varalita lína
4 RAUÐIR,
1 FULLKOMINN FYRIR ÞIG
M
ar
ily
n
M
on
ro
e™
;R
ig
ht
s
of
Pu
bl
ici
ty
an
d
Pe
rs
on
a
Ri
gh
ts
:T
he
Es
ta
te
of
M
ar
ily
n
M
on
ro
e
LL
C.
„ Hann þarf að vera
opinn fyrir því hver ég
er og hvað ég er búin
að ganga í gegnum,“
segir hún. Þegar við
ræðum frekar um
karlmenn kemur í ljós
að hún hrífst af
ákveðnum týpum.
„Hann þarf að vera
sterkur, hávaxinn,
dökkhærður og með
brún augu.“
SNYRTIDÓTIÐ MITT
Snædís Yrja notar
maskann frá Blue
Lagoon mikið.
Snædís notar alltaf
þetta brúnkukrem því
hún segir að hún verði
ekki appelsínugul í
framan af því. Það fæst
í NYX í Hafnarfirði.
Snædís Yrja
notar Studio
Fix Fluid farð-
ann frá MAC.
Silica Mud
Mask frá Blue
Lagoon.
Krullujárnið
ROD7 frá HH
Simonsen er í
miklu uppá-
haldi hjá
Snædísi Yrju.
Rich Nourishing
Cream frá Blue
Lagoon er í miklu
uppáhaldi.