Morgunblaðið - 12.02.2016, Side 42
fulla af fötum sem ég er búin að end-
urbæta, kjóla, pils, buxur, skó og
fleira. Þannig að í lokin fara
allir heim með fullt af nýj-
um hugmyndum hvað er
hægt að gera til að
endurnýja.
Hægt að klúðra flottu
dressi með
röngum aukahlutum
Þessa stundina er Olga hrifnust af hvers-
dagslegu tískubylgjunni. „Ég er mjög upptekin
af því að vera þægilega klædd, svo hvers-
dagslegur stíll er eitthvað sem ég fíla mjög
vel,“ útskýrir Olga sem segir mikilvægt að
nota skart og aukahluti á réttan hátt, óháð
því hvaða tískubylgja verður fyrir valinu.
„Fylgihlutir eru það sem þú notar til að
dressa fötin þín upp og niður, svo það er
mjög mikilvægt að kunna að nota fylgi-
hluti og flottur fataskápur verður að hafa
svona lykilaukahluti,“ útskýrir Olga.
„Það er alveg hægt að klúðra flottu dressi
með röngum aukahlutum, en það er eins
og með allt, maður þarf að geta lesið í að-
stæður og kunna klæða sig eftir því.“
O
lga segir ýmis mistök vera
hægt að gera þegar kemur að
fatakaupum. „Það geta til
dæmis verið mistök að reyna
fylgja tískustraumum, það
sem er í tísku þýðir ekki að
það henti öllum. Ekki kaupa flíkur bara af því
að einhver önnur kona var flott í þeim, það rík-
ir svolítil hjarðhegðun hér á Íslandi. Og ekki
fara á útsölur bara til að fara, veltu fyrir þér
hvað þig vantar. Útsölur eru góðar til að kaupa
dýra hluti svo sem yfirhafnir, skó eða veski,“
segir Olga sem heldur úti vefsíðunni www.olga-
.is.
Áður en Olga fer með viðskiptavin að versla
kannar hún fataskápinn hjá viðkomandi. Það
sparar bæði tíma og peninga að hennar sögn.
„Það er ástæða fyrir því að ég vil byrja heima í
fataskápnum áður en ég fer með konum að
versla, því þá erum með eitthvað ákveðið í
huga sem vantar inn í skáp, hvort sem það er
ný yfirhöfn, skór eða jakki við einhvern ákveð-
inn kjól. Þarna erum við að spara tíma og pen-
inga í stað þess að fara í verslunarferð bara til
að versla.“ Eins og áður sagði leggur Olga
áherslu á að kenna konum að endurnýta fötin
sín. „Á hópnámskeiðunum mæti ég með slá
Stílistinn Olga Einarsdóttir býður upp á stílistaþjónustu þar sem hún
heldur ýmist námskeið fyrir hópa eða veitir einkaráðgjöf. Í námskeiðinu
fer hún meðal annars yfir hvernig á að bera sig að í verslunarferðum og
hvernig er hægt að endurnýta það sem er nú þegar til í fataskápnum.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
„Ekki fara á útsölur
bara til að fara“
Rétta skartið og
aukahlutir setja
punktinn yfir i-ið
Armband frá
Pandora,
20.990 krónur.
Olga segir tilvalið að nýta útsölur í að kaupa sér dýra
hluti á borð við yfirhafnir, töskur og skó. Kápan kemur
frá Calvin Klein, skórnir frá Acne Studios og taskan frá
Chloé, allt fáanlegt á vef Net-a-porter.com.
Trefill úr Bianco,
6.490 krónur.
Árið 2009 sendi Guerlain frá sér ilminn La
Petite Robe Noire sem er innblásinn af litla
svarta kjólnum sem er oft sagður vera
skyldueign fyrir allar konur. Ilmurinn er orð-
inn klassík og hefur komið út í nokkrum út-
gáfum á seinustu árum. Nýjasta nýtt frá
Guerlain er svo snyrtivörulína innblásin af
ilminum La Petite Robe Noire. Línan, sem
ber sama heiti og ilmurinn, inniheldur 20
varaliti og átta naglalökk og umbúðirnar eru ein-
staklega stelpulegar og
fallegar. Varalitirnir hafa
mjúka og glansandi
áferð og léttan ávaxta-
ilm sem minnir á ilm-
vatnið. En rúsínan í
pylsuendanum hlýtur að vera ilmurinn af nagla-
lakkinu. Lakkið skilur eftir sig dásamlegan ilm af
meðal annars rósum, ávöxtum, sítrónu og lakkr-
ís á nöglunum í allt að 24 tíma eftir að lakkið hef-
ur verið borið á.
Fáðu ilm-
andi neglur
42 MORGUNBLAÐIÐ
Við önnumst
kvenleika og
fegurð með
lotningu
Síðumúla 34, stillfashion.is,
njóttu þess að koma...
Nýjasta nýtt
Litir nýju línunnar
frá Guerlain eru
einstaklega sum-
arlegir og bjartir.