Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 44

Morgunblaðið - 12.02.2016, Page 44
Color Wow-rótarliturinn hefur far- ið sigurför um heiminn og unnið til ótal verðlauna enda um snilld- arvöru að ræða. Color Wow Root Cover Up er í púðurformi og tvö- faldur bursti fylgir með púðrinu. Varan virkar þannig að púðrið er einfaldlega sett í rótina til að fela grá hár eða náttúrulegan háralit- inn. Þetta er púður er hugsað sem redding á milli þess sem fólk lætur lita á sér hárið. Co- lor Wow kemur í nokkrum litum þannig að hver sem er ætti að finna lit við hæfi. Raunveruleg redding Rótinni reddað á nokkrum sekúndum Ljósmynd/ Saga Sigurðardóttir. Hvernig farðar þú þig dags daglega? „Ég reyni að sleppa því en annars nota ég lífrænar snyrtivörur sem heita RMS og fást hjá Freyja Boutique.“ En þegar þú ert að fara eitthvað spari? „Það fer eftir tilefninu hvað ég nota og líka eftir ástandi húð- arinnar. Ég á nokkur meik í nokkrum litum en oftast legg ég mesta áherslu á húð og augu.“ Hvað tekur þig langar tíma að jafnaði að gera þig til? „Vanalega svona tíu mínútur til korter, en getur tekið miiiklu lengri tíma ef ég er þannig stemmd og er að fara eitthvað fínt.“ Áttu þér uppáhaldssnyrtivörumerki? „Já, ég á það til að vera alltaf að prófa ný merki og vörur en í þessum kulda og harkalegu birtu er ég rosalega ánægð með Lancome. Meikin eru sérstaklega falleg og eðlileg.“ Hvað gerir þú til að halda húðinni við? „Ég reyni að takmarka notkun eða nota náttúrulegar vörur sem næra húðina. Svo tek ég djúphreinsunarskorpur og þá með eitthvað sem húðlæknir mælir með. En ekkert gerir jafn góða hluti fyrir húðina og hreyfing og hollur matur. Vatn, vatn, vatn og góður svefn!“ Hvert er þitt uppáhaldskrem? „Núna er það Biotherm, húðlæknir mælti með þeim vörum og þær eru æði.“ Er eitthvað sem þú myndir ekki gera í förð- un? „Nei, ég er leikkona sko, það er hægt að plata mig í allt.“ Hver er skoðun þín á fegrunaraðgerðum? „Úff. Ætli þær séu ekki jafn misjafnar og þær eru margar. Að sjálfsögðu sorglegt ef fólk með geðræn vandamál og lágt sjálfsmat dettur í ruglið en vissulega eru margir sem láta laga eitthvert svona lítilræði og þá er það bara allt í lagi.“ Áttu þér eitthvert fegrunarleyndarmál? „Ekki eyða tíma eða orku í dýr krem, fara frekar til húðlæknis ef ein- hver vandamál eru. Já og sofa, hoppa, borða og vera glaður, þegar maður er „happy“ þá er maður sætastur.“ „Þegar maður er „happy“ þá er maður sætastur“ Leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir mælir meðal annars með að hoppa, sofa og vera glaður til að öðlast fallegt útlit. Ágústa Eva kveðst hreyfa sig reglulega og borða hollt til að halda húðinni við og heldur snyrtivörunotkun í lágmarki. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is FÖRÐUNARRÚTÍNAN MÍN … Ágústa Eva er hrifin af vör- unum frá RMS. Uppáhaldskrem Ágústu Evu þessa stundina er frá Biotherm. Meikin frá Lan- come þykja gefa húðinni sérlega fallega áferð. 44 MORGUNBLAÐIÐ Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Dömuskór í úrvali Gæði & glæsileiki Púðrið er ein- faldlega borið í rótina með burstanum sem fylgir með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.