Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 45
S umartískan verður rosalega karamellu-beige-lituð og hlý. Hárið mun styttast. Stelpur með mjög sítt hár fara í millisídd og þær sem eru með millisídd eiga eftir að verða djarfar og klippa sig mjög stutt, það verður gaman að sjá. Stuttu klippingarrnar verða mjög stuttar og glannalegar,“ útskýrir Her- mann sem heldur úti vefnum har- vorur.is. Þar er hægt að kaupa hár- og snyrtivörur frá nokkrum vinsæl- ustu vörumerkjum heims. Þó að náttúrulegir og hlýir litir verði áberandi í sumar halda bleik- ir, bláir og fjólubláir litir í hárið ennþá sínum sess. „Kóngablár verð- ur líka sérstaklega vin- sæll.“ Fastar fléttur koma sterkar inn í sumar Hjá herr- unum hefur hártískan sjaldan verið jafnflott og núna að mati Hermanns. „Það er gaman að sjá hversu vel snyrtir herramenn hafa ver- ið. Svo trúi ég því að fastar fléttur komi sterkar inn í sumar, bæði hjá konum og körl- um.“ Að lokum vill Hermann minna á mikilvægi þess að nota góðan hármaska til að viðhalda heilbrigðu og fallegu hári þegar sum- arið lætur sjá sig. „Ég mæli með að eiga einn góðan hármaska, til dæmis Intense Hydra Mask frá Moroccanoil, og nota hann einu sinni til tvisvar í mánuði.“ Hárið styttist og litirnir hlýna HÁRTÍSKAN Í SUMAR Hárið verður styttra og litirnir hlýrri að sögn Hermanns Óla Bachmann Ólafssonar, hárgreiðslumanns og eiganda Modus hár- og snyrtistofu í Smáralind. Hingað til hafa kaldir hárlitir verið áberandi og þeir verða það áfram en þegar nær dregur sumri koma hlýir karamellulitir sterkir inn. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Hermann Óli Bachmann Ólafsson. Vörurnar frá Moroccanoil þykja afar góðar. Fastar fléttur verða vinsæl- ar í sumar. Mynd frá tískuvikunni í New York af sýningu Isa- bellu Rose Taylor. AFP Stelpur geta verið óhræddar við að klippa sig stutt í sumar. Byrjaðu á að úða hitavörn í hárið og blása það og slétta með góðu sléttujárni. Athugaðu að best er að slétta hárið vel og vandlega til að út- koman verði sem fallegust. Því næst er hárinu skipt í tvo parta, á með- fylgjandi mynd má sjá hvar er best að skipta hárinu. Efri hlutinn er greiddur í tagl. Til að fá þessa sléttu áferð er gott að nota mót- unarefni eða serum í hárið sem gefur því glans og temur úfin hár. Eftir að efri parturinn hefur verið settur í tagl er hann festur með teygju í sama lit og hárið. Því nest er neðri parturinn greiddur vandlega og hann settur í tagl en athugið að festa efra taglið með í það neðra. Að lokum er gott að setja punktinn yfir i- ið með góðu hárlakki sem heldur öllu á sín- um stað. Tvískipt tagl í anda Rooney Mara AFP Signature Styler-sléttujárn frá HH Simonsen, kostar 27.600 á www.beautybar.is. AFP Rooney Mara með einfalda en eftirtektarverða hárgreiðslu. Leikkonan Rooney Mara skartaði afar flottri hárgreiðslu á SAG-verðlaunahá- tíðinni sem fór fram í seinasta mánuði. Þessi greiðsla er einföld í framkvæmd svo lengi sem réttu hárvörurnar eru hafðar við höndina. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Leikkonan Roo- ney Mara skartaði þessari flottu greiðslu á SAG- hátíðinni. SKREF FYRIR SKREF Toni & Guy Creative Extreme Hold-hárspreyið held- ur öllu á sínum stað, kostar 2.369 krónur í Hag- kaup. Glimmer Shine-úðinn frá Morrocanoil gefur hárinu fallegan glans og kemur í veg fyrir að það verði úfið. Kostar 4.225 krónur á www.harvorur.is. MORGUNBLAÐIÐ 45 Fyrir konur á öllum aldri Margir litir • Stærðir S-XXXXL Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Velúrgallar Verið velkomin TAX FREEaf öllum snyrtivörum út febrúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.