Víkurfréttir - 01.12.1994, Síða 3
Wkupfrbttir
1. DESEMBER 1994
3
♦ Hópurinn saman kominn í Leifsstöð á þriðjudagsmorguninn á
leið til fyrrverandi lýðvelda Júgóslavíu.
Hef ekki haft tíma til
ab hugsa um hræðslu
- segir Birgir Guðbergsson, þrítugur Keflvtkingur sem
fór ásamt þrettán öðrum Islendingum til starfa sem
friðargæsluliði hjá SÞ í fyrrum Júgóslavni
Þrítugur Keflvíkingur, Birgir
Guðbergsson fór sl. þriðju-
dagsmorgun ásamt 13 öðrum
Islendingum til lýðvelda
fyrrverandi Júgóslavíu að vinna
sem friðargæsluliði fyrir
Sameinuðu þjóðimar.
♦ Birgir Guðbergsson pakkaði
niður á mánudaginn. Hann gaf
sér þó tíma til að líta upp til
ljósmyndara. A myndinni er
hann ásamt börnum sínum,
Jónu Kristínu og Hjálmtý.
Þungavopn í fyrsta farmi
„Eg á að keyra flutningabíl
milli Króatíu og Bosníu. Þetta
eru bílalestir sem flytja allt
fyrir Sameinuðu þjóðirnar inn í
landið. Fyrsti farmur minn
verður þungavopn og eldsneyti.
Vinnuvikan er 40 stundir og ég
á frí um helgar. Mér er útvegað
herbergi á hóteli í Zagreb og fæ
svo til frítt uppihald. Ég verð
þama í eitt ár en fæ sex vikna
sumarfrí og þá er okkur ráðlagt
að fara úr landinu.
Vantaði fjölhæfa bílstjóra
-Hvemig datt þér þetta í hug?
„Það var auglýst eftir fólki í
ágúst og ég sótti um. Ég fékk
ekki vinnu þá en þeir voru með
nafn mitt á lista og hringdu í
mig fyrir hálfum mánuði, sagði
Birgir."
Það er írskt fyrirtæki sem
auglýsti eftir fólki á íslandi.
Sérstaklega var leitað eftir
vönum og reynslumiklum bíl-
stjórum með meirapróf sem
geta ekið við erfið skilyrði,
sérstaklega í snjó og ís.
Hlakkar til
-Nú geysar þarna blóðugt
stríð. Ertu ekki hræddur?
„Nei, ég fékk svo stuttan
undirbúning að ég hef haft nóg
fyrir stafni. Ég hef hreinlega
ekki haft tíma til að hugsa um
hræðslu en ég hlakka bara til
og er spenntur".
Birgir sagði að störf þeirra
sem færu á þetta ófriðarsvæði
væru vel launuð. Islendingarnir
verða þó ekki alveg inn f
eldlínu stríðsins. „Við eigum
ekki að vera í neinni hættu. Svo
er okkur sagt“, sagði Birgir.
íslendingamir fjórtán fóru frá
Leifsstöð snemma á þriðu-
dagsmorgun. Þeir flugu fyrst til
Oslo og þaðan beint niður til
Zagreb. Hluti hópsins gistir þar
en hinn í borginni Split. I þeirn
báðum hefur ekkert stríð
geysað.
Eins og fyrr greinir eru störf
Islendinganna vel launuð og
þeir sem halda út heilt ár frá
„bónus“ við starfslok.
Stórsýning Tölvuvæðingar
Tölvuvæðing og Tæknival
verða nreð stórglæsilega sýn-
ingu á tölvum og tölvubúnaði
þann 2.og 3.des í verslun
Tölvuvæðingar að Hafnargötu
35, Keflavík. Kynntar verða
Hyundai tölvur Hewlett
Packard prentarar, Multi-
media búnaður Soundblaster
hljóðkort og geisladrif, Oki
Laser prentarar og Oki Laser-
fax. Tölvuskóli Suðurnesja
verður á sama tíma nteð opið
hús og kynningu á starfsemi
skólans, þá kynna Miðheimar
Mosaic (grafíska skell á Inter-
net gagnaflutninganetið).
Hugbrot frá Keflavík kynnir
hið bráðskemmtilega fjöl-
skylduforrit Gagn og Gaman
sem ma. inniheldur ættfræði,
félagatal, tungumál og leiki
og Ráðhugbúnaður mun
kynna Ráð Fjárhags-, Laun-,
Viðskiptamanna-tollskýrsiu-
forritið Tollráð og Markaðs
og leitarforritið Kompass-95.
AFSLATTUR
AFSLATTUR
AFSLATTUR
ccfá&OLé^tccc&cccPC
a&tccecc