Víkurfréttir - 01.12.1994, Síða 4
4
- ->vTV\- - -
►ROSKAH|ÁLP A SUÐURNISIUM
JÓLABASAR
verður í Ragnarsseli
Suðurvöllum 7, Keflavík laugardaginn
3. desember kl. 13:00.
Mikið úrval handunna jólavara sem hafa verið út-
búnar í Ragnarsseli sem er dagvistarheimili fyrir
fötluð börn.
Allur ágóði rennur í söfnunarsjóð fyrir
þjálfun í vatni fyrir fötluð börn.
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja Hf. Skipasala
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 13722 - Fax 13900
Suðurgata 22, Keflavík
Þriggja herbergja et'ri hæð ásaml
35 ferm. bílskúr. Sérinngangur.
Mjög hagstætt áhvílandi. Skipti
möguleg.
5.500.000.-
Heiðarhvammur 9, Keflavík
Þriggja herbergja vönduð íbúð í
fjölbýli.
5.200.000,-
Akurhraut 1, Njarðvík
Rúmgott parhús ásamt bílskúr. 3
svefnherbergi, tvöföld stofa og
sólstofa. Mjög hagstæð lán
áhvílandi.
10.000.000,-
Smáratún 14, Keflavík
200 ferm. einbýlishús ásamt 42
ferm. bílskúr. 6-7 svefnherbergi,
tvöföld stofa. Góður staður.
Skipti möguleg á minni eign.
10.900.000.-
Heiðarholt 14, Keflavík
Tveggja herbergja vönduð íbúð í
fjölbýli. Hagstætt áhvílandi.
Skipti möguleg.
4.900.000,-
Mávabraut 4, Kellavík
Tveggja herbergja íbúð á fyrstu
hæð í fjölbýli.
3.700.000,-
Efstaleiti 57-65, Kcflavík
130 ferm. fokheld raðhús ásamt
bílskúr. Húsbréf áhvílandi. Til-
búið til afhendingar.
6.300.000.-
Hrekkustígur 14, Njarðvík
143 ferm. mikið endurnýjað ein-
býlishús. Möguleiki að leigja út
kjallarann. Góður staður.
8.000.000,-
Sóltún 18, Kcflavík
3ja-4ra herbergja neðri hæð í
tvíbýli ásamt 66 ferm. bílskúr.
Hagstætt áhvílandi.
6.000.000,-
Fífumói 22-24,
Njarðvík
105 ferm. parhús í
smíðum ásamt 35 ferm
bflskúr. Húsin skilast
fokheld. Teikningar á
skrifstofunni.
7.200.000.-
1. DESEMBER 1994
VÍKURFRÉTTm
Hart barist í Karaokekeppni Stapans:
Sameinaða sveit-
arfélagið sigraði
-læknirinn Stefán Eggertsson
kjörinn besti söngvarinn
♦ Birta Rós söng lagið
- Nothing compares to you
- semfærði henni sigurinn.
Birta Rós Arnórsdóttir sigr-
aði f Söngvagleði Suðurnesja á
Ránni. Urslitakvöld í þessari
vinsælu karaokekeppni fór
fram á skemmtistaðnum sl.
föstudagskvöld.
„Þetta var mjög skemmtilegt
og ánægjulegt að sigra“, sagði
Birta Rós sem hefur sungið
með hljómsveitinni Grænum
vinum af og til á Ránni. Hún
var því eiginlega á heimavelli
enda söng hún lagið - Nothing
compares to you - eftir
Sinead O’Connor nánast
óaðfinnanlega á úrslita-
kvöldinu. Birta Rós
keppti fyrir Aðalstöðina í
Keflavík. í 2. sæti varð
Sveinn Sveinsson frá
Keflavíkurverktökum.
Hann söng lagið - Smoke
gets in your eyes. I 3.
sæti varð svo Jórunn D.
Olsen frá Miðnesi hf. í
Sandgerði. Hún sögn - I will
survive.
Birta Rós fékk glæsileg
verðlaun, m.a. verðlaunagrip
hannaðan af Karli Olsen jr.,
utanlandsferð frá Samvinnu-
ferðum-Landsýn og starfsmenn
Aðalstöðvarinnar sem fylgdu
henni fengu kvöldverð á Ránni
með fordrykk. Sveinn fékk Ak-
ureyrarferð með gistingu og
bílaleigubíl og Jórunn fékk
kvöldverð á Ránni fyrir fjóra.
Meðal skemmti-
latriða var frumleg
íundirfatasýning
frá Gallerý Förðun.
Úrslit Söngvagleði Suðurnesja á Ránni:
Birta Rós best
Það er óhætt að segja að það hafi verið hart barist í úrslitum karaokekeppni
Stapans en þeim lauk sl. föstudagskvöld. Fulltrúar sameinaða sveitafélagsins
og Sjúkrahúss Suðumesja áttust við og eftir jöfnustu keppni frá upphaft var
Sameinaða sveitarfélagið úrskurðaður sigurvegari því liðin tvö fengu nákvæm-
lega sama stigafjölda bæði í fyrri og seinni umferð. Dómnefnd varð því að úr-
skurða annað liðið sigurvegara. Sjúkrahúsið sigraði í keppninni fyrr á árinu eft-
ir úrslitakeppni við Njarðvíkurbæ.
Fimm bestu söngvarar kvöldsins fengu viðurkenningar. Það kom fáum á óvart
að Stefán Eggertsson skyldi hljóta titilinn „söngvari kvöldsins". og það í sjö-
unda sinn. Söngvarinn í 2. sæti kom einnig frá Sjúkrahúsinu, Bryndís Haralds-
dóttir. í næstu þremur sætum voru söngvarar frá sigurliðinu sem vann senni-
lega vegna þess að það þótti jafnara. í 3. sæti varð Steinunn Karlsdóttir, fjórði
varð Steinar Guðmundsson og fimmti
Kjartan Már Kjartansson sem lét sig
ekki muna um að syngja lagið Skóla-
ball, eftir bróður sinn. Magnús, og það
auðvitað án þess að hafa texta fyrir
framan sig á skjánum.
Sigurliðið fagnaði vel og innilega í
leikslok en ljóst er að það eru margir
frambærilegir söngkandidatar hér á
i Suðumesjum.
♦ Sigurlið Sameinaðs sveitarfélags
♦ Steinar Guðmundsson í léttri
Sinatra sveiflu
♦ Stefdn er lang bcsti karaokc-söngvari d Suðumesjum. Um það
deila sennilega fáir. I öll skipti sem hann hefur tekið þátt hefur
liann sigrað. Hann tók lögin - Crasy little thing called love - og -
You are the sunshine of my life.
Keflavtkur, Njarðvíkur og Hafna á
gleðistund með verðlaunagripinn. F.v.
Steinar Guðmundsson, Steinunn Karls
dóttir, Stefán Bjarkason, Helga lngi-
mundardóttir og Kjartan Már Kjart-
ansson. mynd: pket.