Víkurfréttir - 01.12.1994, Side 6
6
1. DESEMBER 1994
VllfUHFRBTTIR
■HH Stœrsta frctta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
wtíKUR
vWtm
f FRÉTTIR
Útgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,
15717. Box 125,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777.
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717.
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064, bflas. 985-42917.
Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir.
Víkurfréttum er dreift ókeypis um öil Suðumes.
Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna.
Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt
nema heimildar sé getið.
Útlit og umbrot: Víkurfréttir lif.
Filmuvinna og prentun: Stapaprent hf., Njarðvík
Leiðarí
Gleðifrétt
Það er óhætt að taka undir orð Hrafnkels Óskarssonar, yfirlækn-
is Sjúkrahúss Suðumesja á fundi á Glóðinni sl. laugardag þegar
hann sagði frá því að bygging D-álmu við Sjúkrahús Suðumesja
væri loks í höfn. Hrafnkell sagði við þetta tækifæri: „Það þarf víst
ekki að koma neinum á óvart hvað þetta er mikill gleðidagur fyrir
mig og aðra“.
Barátta fyrir viðbyggingu við Sjúkrahús og Heilsugæslustöð
Suðumesja hefur staðið yfir í um tvo áratugi. Árið 1986 gaf þáver-
andi heilbrigðisráðherra, Ragnhildur Helgadóttir út yfirlýsingu um
að framkvæmdir yrðu hafnar en án árangurs. I vor sem leið gerði
Guðmundur Ámi Stefánsson hið sama, sendi boltann yfir til sveit-
arfélaga á Suðumesjum sem spörkuðu ekki til baka, hvað varðaði
frágang á samningi um fjármögnun. Nú hefur enn einn ráðherrann
afgreitt málið og það vonandi loks fyrir fullt og allt. Sighvatur
Björgvinsson hefur sent sveitarstjómum á Suðumesjum bréf þar
sem hann óskar eftir því að ganga frá samningi um fjármögnun og
þá hefur hann gefið út fyrirskipun um að ganga frá lokahönnun
byggingarinnar og bjóða hana síðan út.
Með D-álmu mun þjónusta á sjúkrahúsi og heilsugæslu aukast.
Hægt verður að taka á móti sjúklingum í endurhæfingu og hjúkrun
auk þess sem sérfræðiþjónusta mun aukast enn frekar. Það er heid-
ur ekki slæmt að fá verk í bæjarfélagið sem mun kosta nálægt 300
milljónum króna. Heilbrigðisráðherra lagði þó á það áherslu í
samtali við blaðið að samþykkt á byggingu D-álmu væri ekki til
komin vegna verkefnaskorts byggingaverktaka á svæðinu. Hér
væri fyrst og fremst um stórt hagsmunamál fyrir Suðurnes að
ræða. Undir það skal tekið en engu að síður helst þetta í hendur og
því er þetta sannarlega gleðifrétt fyrir Suðumesjamenn.
Páll Ketilsson
OPNUNARTÍMI
VERSLANA í DESEMBER
Laugardagur 03. des.KI. 10-16
Laugardagur 10. des.KI. 10-18
Sunnudagur 11. des.KI. 13-17
Laugardagur 17. des.KI. 10-22
Sunnudagur 18. des.KI. 13-17
Mánudagur 19. des.KI. 10-18
Þriðjudagur 20. des.KI. 10-18
Miðvikudagur 21. des.KI. 10-19
Fimmtudagur 22. des.KI. 10-22
Þorláksmessa 23. des.KI. 10-23
Aðfangadagur 24. des.KI. 09-12
Þriðjudagur 27. des.LOKAÐ
í flestum verslunum
Gamlársdagur 31. des.KI. 09-12
Geymið auglýsinguna
Fyrirsæta: Lovísa Guömundsdóttir
Förðun: Helga Jóns frá NO NAME
Hár: Þel Hárhús
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
Umsjón: Siddý
Helga Margrét Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÞS:
„ Viljum þakka þeim sem
hjálpa okkur að byggja upp
atvinnu fyrir fatlaða"
Opið hús hjá
Þroskahjálp
- 3. desember nk.
Opið hús verður hjá Þroska-
hjálp 3. desember og gefst fólki
tækifæri á að kynna sér starf-
semi félagsins bæði í Dósaseli
við Iðavelli, sem er vinnustaður
fyrir fatlaða og í Ragnarsseli
við Suðurvelli sem er dagvist-
arheimili fyrir fötluð börn,
sjúkraþjálfun og Leikfanga-
safn.
Dósasel verður opið næsta
laugardag 3. des. frá kl. 10-16
og verður sérstakt dósasöfn-
unarátak í gangi hjá félaginu
þann dag.Vinir og velunnarar
Þroskahjálpar verða á ferðinni
og sækja drykkjarumbúðir
heim, ef fólk óskar þess.
Einnig viljum við hvetja fólk
til að koma í heimsókn og
þiggja kaffiveitingar í Ragnars-
seli á laugardaginn frá kl. 14:00
- 16:00. Sérstakur jólabasar
verður í Ragnarsseli kl. 13:00
þennan sama dag. Þar verða á
boðstólum ýmsar jólavörur.
Allur ágóðinn af þeirri sölu
rennur í söfnunarsjóð fyrir
þjálfun í vatni í Ragnarsseli.
Við bjóðum Suðurnesjabú-
um í heimsókn í tilefni af al-
þjóðlegum degi fatlaðra. 3.des-
ember n.k.
Þroskahjálp á Suðurnesjum
rekur Dósasel við Iðavelli og að
sögn Helgu Margrétar Guð-
mundsdóttur framkvæmdastjóra
félagsins er bullandi samkeppni
á dósamarkaðnum.
„I því slæma atvinnuástandi
og samdrætti sem er hér á Suð-
urnesjum finna öll félagasam-
tök fyrir minnkandi styrkjum
frá fyrirtækjum og einstakling-
um og þá harðnar samkeppnin.
Svo virðist sem flest félaga-
samtök á Suðumesjum hafi tek-
ið upp þá fjáröflun sem við
byrjuðum með fyrir mörgurn
árum sem er söfnun drykkjar-
umbúða og er þá sama hvort
um er að ræða íþróttafélög,
skátastarf, kórastarf eða annað.
Við erum sársvekt yfir því að
önnur félög ráðist þannig að
þessum mikilvæga þætti í okkar
starfsemi. Við höfum t.d. ekki
farið út í flugeldasölu eða ann-
að sem önnur félög eru með“
sagði Helga Margrét.
„Gjafadósir, gjafafé og ýmsir
styrkir er það sem félagið bygg-
ir starfsemi sína að verulegu
leyti á. Við erum á ferðinni
með bfi allan daginn og sækjum
heim til fólks ef það vill. Við
erum líka með fastar ferðir í öll
sveitarfélögin á Suðurnesjum
og sérstaka umboðsmenn þar,
sem fólk getur komið dósum til.
það sem hefur bjargað okkur er
að við eigum dygga stuðnings-
menn í öllum sveitarfélögunum
á Suðurnesjum og hafa þeir
styrkt okkur þó sótt hafi verið
að þeim úr mörgum áttum und-
anfarið. Við viljum þakka þeim
sem styðja okkur í að byggja
upp atvinnu fyrir fatlaða. Því
það er sorgleg staðreynd að at-
vinnuleysi bitnar harðast á
þeim“ sagði Helga Margrét að
endingu.