Víkurfréttir - 01.12.1994, Síða 14
14
1. DESEMBER 1994
VlffURFRÉTTIR
„Svo lengi lærir sem lifir"
Myndbandaleiga Knattspyrnu-
ráðs Keflavíkur er orðin stað-
reynd.
Eins og flestir vita höfum við
eigendur myndbandaleiga í
Keflavík, mótmælt þessu ótrú-
lega siðleysi sem opnun þessarar
myndbandaleigu er.
„Svo lengi lærir sem lifir“.
Það er sko alveg öruggt, allavega
hefði okkur aldrei dottið í hug að
styrkja íþróttahreyfinguna, á
frá Siemens, Fagor,
Creda og Ufesa
Ljós og lampar
Aðventuljós frá kr. 1.750.-
Uti - og inniseríur á góðu verði!
Litaðar ljosaperur
RAFLAGNAVINNUSTOFA
Sigurðar Ingvarssonar
GARÐi-SÍMI 27103
rneðan þeir voru að vinna í því að
grafa undan okkar rekstri.
Jóhannes Ellertsson segist
„ekki líta svo á að Knattspyrnu-
ráð sé að koma aftan að eigend-
um myndbandaleiga". Hann segir
ennfremur „Þetta er búið að vera
í deiglunni vel á annað ár, og er
loks að verða að veruleika", þetta
er sem sagt búið að vera í undir-
búningi t „vel á annað ár“ og hafa
þeir á meðan leitað eftir styrkjum
frá okkur, er þetta ekki rýtingur í
bakið? I sömu viku, og ég undir-
ritaður styrkti þá síðast, frétti ég
hvað væri á döfinni hjá þeim og
pent til orða tekið þá get ég sagt,
að það gladdi mig ekki.
Jóhannes sagði í viðtali á Stöð
2 þann 27/l 1 að það sé búið að
breiða út miklum misskilningi,
og að þetta sé alls ekki sannleik-
urinn. Við spyrjum. Hver er
sannleikurinn?
Er sannleikurinn sá að Knatt-
spyrnuráð borgi húsaleigu, starfs-
kraft, allar spólur, skatta og
skyldur? Ef svo er. Hvaða „-
Gróða“ ætlið þið að fá út úr því?
Þegar öllu er á botninn hvolft,
sýnist manni sem ekki hafi knatt-
spyrnuráð bara tapað styrkjum
hér og þar, heldur það sem verra
er íþróttahreyfingin hafi misst
brot úr virðingu sinni. Hversu
stórt það brot er, á eftir að koma í
Ijós síðar.
I skrifum og viðtölum okkar
eigenda myndbandaleiga, höfum
við aldrei viðhaft skítkast í garð
IBK, enda hvorki vilji né löngun
til, hins vegar finnst okkur þetta
hart og í raun ósvífið. Að lokum
langar mig að vitna í grein sem
birtist í Morgunpóstinum þann
21/11, þar sem tekið var viðtal
TILBOÐSHORN
Glæsilegar gjafavörur
við öll tækifæri!
við Margréti Sigurðardóttur, rit-
ara Knattspyrnuráðs Keflavíkur.
Margréti finnst viðbrögð okkar
hlægileg, (sitt sýnist hverjum) og
segir „Ef menn eru ósáttir við
starf fþróttahreyfingarinnar eiga
þeir bara að koma hreint fram og
segja það“. Er það ekki það sem
við höfum verðið að gera? Svo
segir hún: „Þeir hugsuðu ekki
svona þegar þeir fóru að selja
Lottó einn af öðrum“, við þessu
viljum við segja, að Margrét er
velkomin til okkar hvenær sem er
til þess að Lotta, því miður getum
við ekki selt henni þessa týpísku
Lottómiða þar sem enginn okkar
hefur Lottókassa, en við bjóðum
Margréti betur, það er „Lottó-
vinningur" á hverjunt miða hjá
okkur sem er, að veita henni sem
öðrum góða og ánægjulega þjón-
ustu.
Keflavík l.desember
Kristján Vilberg Guðnt.
♦ Forráðamenn Knattspyrnu-
ráðs, þeir Birgir Runólfsson og
Jóliannes Ellertsson ásamt
Skiila Skúlasyni form. Iþrótta-
og ungmennafélagsins Keflavík-
ur. mynd: pket.
K-Video
hefur opnað
K-video, myndbandaleiga
Knattspymuráðs Keflavíkur opn-
aði sl. laugardag í íþróttavallar-
húsinu við Hringbraut í Keflavík.
Við opnunina fluttu þeir Jó-
hannes Ellertsson, formaður
Knattspymuráðs og Skúli Skúla-
son, formaður Iþrótta- og ung-
mennafélagsins Keflavíkur stutta
tölu. Sögðu þeir m.a. að umræð-
an frá öðrum eigendum mynd-
bandaleiga í bænum hafi verið
einlit og ósanngjöm.
Samhliða opnun K-video í
vallarhúsinu í Keflavík voru
gerðar verulegar breytingar á
húsinu að innan, þannig að fé-
lagsaðstaða er aðskyld frá leig-
unni. Auk reksturs leigunnar
verður áfram boðið upp á sölu á
lottó, getraunaseðlum og bingó-
lottói.
12 volta kasliskápur í jeppann,
sumarbústaðinn eða hjólhýsið.
Verð áður kr.. 22.900,-
Verð nú kr, 13.500,-
SJÓNAUKAR
10x25, litlir en góðir.
Verð kr. 4.750,-
Fóðraðar grillyfirbreiðslur - J0LATIL30Ð - Aðeins kr. 1.790,-
Kælibox - margar etærðlr
VERPHRUN - allt að 50% afsl.
Frábært box og óbrjótandi hitabrúsi.
Gott á vélsleðann eða í veiðitúrinn.
Verð áður kr. 2.975.- NÚ kr. 1.650.-
HITABRÚSI
Verð áður 5.750.-
Nú kr. 3.250,-
Mikið úrval af fallegum
og vönduðum
útivistarfatnaði á góðu
verði.
Sterkar og vandaðar barnakerrur og
vagnarfrá Britax. Einnig fallegir
kerrupokarog skiptitöskur.
Verð áður 19.690,- án poka.
VERÐ NÚ 12.500,-