Víkurfréttir - 01.12.1994, Qupperneq 17
VfmiHFRÉTTIR
1. DESEMBER 1994
17
Ekki ætlunin að ásaka neinn
Hver er
ástæian ?
I Víkurfréttum liðinnar viku
mátti lesa fréttir, viðtöl og leið-
araskrif um lélega aðsókn að
sýningum Leikfélags Keflavík-
ur á „Syndaselnum Snorra".
Vonbrigði forsvarsmanna Leik-
félagsins eru skiljanleg og ljóst
að félagið kemur til með að
tapa miklu fé vegna þessa. Af
skrifunum mátti skilja að fólk
hefði brugðist skyldu sinni og
að íbúar svæðisins kysu helst |
að horfa á sjónvarpið, undir-
fatasýningar eða fylgjast með
söngvakeppnum.
Stóra spurningin
Mér þykir leitt að heyra um
slæmt gengi söngleiksins.
Sjálfur skemmti ég mér vel
þegar ég fór að sjá þetta verk
en fann á fólki í kringum mig
að ekki höfðu allir jafn gaman
af. Það er nú einu sinni svo að
smekkur manna er misjafn. Það
sem einum kann að líka getur
öðrum mislíkað.
I viðskiptafræðunum eru
ánægðir viðskiptavinir taldir
besta auglýsingin . Einn
ánægður viðskiptavinur segir
öðrum o.s.frv. En það er líka
talið að óánægðu viðskiptavin-
irnir láti hærra. Þeir segja fleir-
um frá óánægju sinni og von-
brigðum. Stóra spurningin er
því þessi: „Getur verið að
ástæðan fyrir lélegri aðsókn að
sýningunum sé sú að verkið
hafi, fyrir of marga gesti, verið
torskilið, langdregið eða fólki
ekki iíkað það af öðrum sök-
um?“ Það er eflaust erfitt fyrir
þá, sem fullir af eldmóði og
sannfæringu hafa lagt nótt við
dag í marga mánuði við æfing-
ar og undirbúning, að spyrja
sjálfa sig slíkra spuminga. Það
er hins vegar óhjákvæmilegt að
sú umræða fari fram innan {
Leikfélagsins áður en skuldinni
er skellt á íbúana.
Að veðja á réttan hest
Almenningur hefur úr mikilli
afþreyingu að velja. Þess vegna
er mikilvægt fyrir þá, sem
keppa um athygli almennings
t.d. með tónleikahaldi og leik-
sýningum, að veðja á réttan
hest þegar verkefni eru valin. Á
undanförnum mánuðum hafa
margir skemmtilegir listvið-
burðir farið fram í sveitarfélag-
inu s.s.myndlistasýningar, tón-
leikar o.fl. og þykjast menn
merkja aukna aðsókn að menn-
ingarviðburðum. En það er nú
einu sinni svo að fólk verður að
fá að velja hvað það gerir í frí-
tíma sínum og aldrei megum
við ætlast til þess að fólk komi
á slíka viðburði fyrir aðra en
sjálft sig.
Látið ekki deigan síga
Leikfélag Keflavíkur hefur
fyrir löngu sannað tilverurétt
sinn og yfirleitt fengið góða að-
sókn að sýningum sínum. Það
er svo sannarlega þörf fyrir
starfsemi sem þessa. Bæði á
það við um okkur sem höfum
þörf fyrir að fara stöku sinnum
í leikhús og einnig fyrir þá sem
vilja fá útrás í Ieiklistinni. Að
reka áhugamannaleikfélag er
kostnaðasamt og krefst mikillar
sjálfboðavinnu og fórna. Að-
standendur Leikfélagsins eiga
hrós skilið fyrir öflugt starf
undanfarinna ára. Þeir mega
ekki láta deigan síga þótt á
móti blási heldur þvert á móti
að þjappa sér enn frekar saman
og halda starfinu áfram. Með
tilliti til þess að áhorfendur eru
forsenda þess að hægt sé að
standa undir rekstri Leikfélags-
ins ættu forsvarsmenn þess að
hafa þarfir markaðarins enn
frekar í huga með því sýna að-
gengileg verk sem höfða til al-
mennings. Inn á milli má síðan
taka „áhættur“ en þá verða
menn líka að vera við öllu bún-
ir.
Kjartan Már Kjartansson.
Vegna umfjöllunar um Leikfé-
lag Keflavíkur í síðasta tölublaði
Víkurfrétta vill stjórn L.K. taka
fram eftirfarandi:
Uppsetningin á„Syndaselnum
Snorra" var ekki dýrari en marg-
ar aðrar sýningar sem, félagið
hefur sett upp til þessa. Einnig
hefur það áður gerst hjá félaginu
að sýningar hafa ekki skilað þeim
áhorfendafjölda sem væntingar
stóðu til og félagið hefur lifað
það af og mun einnig gera það
nú.
Stjómin vill taka það fram að
ekki var ætlunin að ásaka einn
eða neinn um hvernig fór og
verður hver einstaklingur að hafa
sitt val til leikhúsverka sem og
annarrar afþreyingar.
Engu að síður er góð aðsókn
það sem heldur félagi eins og
L.K. gangandi þegar til lengri
tíma er litið.
Við viljum þakka öllum þeim
sem komu á sýninguna „Synda-
selinn Snorra" og vonumst til að
sjá sem flesta bæjarbúa á sýning-
um félagsins í framtíðinni.
Einnig viljum við þakka fjölmiðl-
um á svæðinu fyrir góða umfjöll-
un, en það er mikill og áhrifarík-
ur þáttur varðandi boðleiðir milli
félagsins og áhorfenda.
Stjórn Leikfélags Keflavíkur.
líltioú o lierlðslifBiitinguni
föshidag. lougardag og sunnudag
HÐEINS HR. 850,-
15% AF5LATTUR
af jóla-
styttum!
BLOMABUÐIN
>> >*■
HAFNARGÖTU 6 - SÍMI 14722
KRAFTAVERKID
gegnum
tárin
Unglingasaga sem gerist í
Keflavík og nágrenni!
mm
Hugljúf barnasaga um
Maríu og Þór, sem bæði
eru 6 ára. Þau eru vinir.
En rétt fyrir jólin verður
slys. María slasast þegar
hún verður fyrir bú. Þá er
það Þór sem reynir að fá
Guð í lið með sér til að
bjarga Maríu.
Höfundur bókanna er
HELGI JÓNSSON
sem hefur skrifað nokkrar
unglingabækur,
þ.á.m. Nótt í borginni og
Englakroppa.
Spennandi unglingasaga um Sóleyju sem finnst hún
Ijót þar til henni er boðið að taka þátt í
fegurðarsamkeppni. Pabbi hennar er aldrei heima og
stjúpan er henni vond. En allt breytist þegar hún
tekur þátt í fegurðarsamkeppninni. Skyndilega er hún
orðin vinsæl og eftirsótt.
Hún eignast nýja vini, ekki síst Píu sem líka tekur
þátt í keppninni, og kynnist Hólma, miklum
töffara á jeppa. En það er ekki fyrr en Sóley
kynnist Sævari að hún verður ástfangin og lífið
breytist til hins betra.
Helgl Jónsson