Víkurfréttir - 01.12.1994, Síða 19
VlffUUFRÉTTIR
1. DESEMBER 1994
19
AIÞJÓDUGUR BARÁTTU■
DAGUR FATIADRA 3. DES.
Alþjóðlegur dagur fatlaðra
verður í annað skipti haldinn
hátíðlegur víða um heim á
laugardaginn. Allsherjarþing
Sameinuðu Þjóðanna ákvað
árið 1992 - í lok aðgerða á ára-
tug fatlaðra 1983-1992 - að 3.
desember á ári hverju skyldi
helgaður fötluðum og barátt-
unni fyrir réttindum þeirra.
Hér á Suðurnesjum hefur sl.
17 ár verið starfrækt sérstakt
hagsmunafélag fatlaðra og er
það Þroskahjálp á Suðurnesj-
um. Félagið var stofnað 10.
október 1977 og er aðaltilgang-
ur félagsins að berjast fyrir rétt-
indum fatlaðra og efla þátttöku
þeirra í samfélaginu hér á Suð-
umesjum.
Félagið hefur einnig barist
fyrir því að í boði sé einstak-
lingsbundin sveigjanleg þjón-
usta fyrir fatlaða og hefur í
þeim tilgangi séð um rekstur á
þjónustutilboðum fyrir fatlaða.
Foreldrar fatlaðra
barna voru frumkvöðlar
Segja má að það fólk sem
stofnaði Þroskahjálp á Suður-
nesjum hafi rutt brautina og
skapað þær aðstæður og þá
þjónustu sem þroskaheftir nú
njóta hér á Suðurnesjum. Það
gerðist ekki átakalaust og ljóst
er að sú barátta sem hófst árið
1975 er enn í gangi.
Það voru fyrst og fremst for-
eldrar þroskaheftra barna sem
stóðu að stofnun félagsins.
Hófu þeir þá í sameiningu
mikla baráttu til að tryggja rétt
barna sinna og er aðdáunarvert
hvernig þau með baráttuvilja
og samvinnu náðu að knýja
fram úrbætur í málefnum fatl-
aðra og koma upp þjónustu í
heimabyggð. Einn liður í þeirri
baráttu og ekki sá minnsti var
að berjast við fordóma gagn-
vart þroskaheftum. Einnig að fá
fagfólk til starfa og auka skiln-
ing sveitarstjórnarmanna og
annarra valdhafa á þessu mikil-
væga réttindamáli.
Fyrsta þjónustan sem Þ.S.
kom á fót var starfsemi Leik-
fangasafns. Þar fer fram mark-
viss þroskaþjálfun, útlán á leik-
föngum og eftirfylgd inná leik-
skóla með þeim börnum sem
sótt hafa þjónustu í safnið.
Endurhæfingarstöð Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum sér um
sjúkraþjálfun fyrir fatlaða og
var stórum áfanga náð þegar sú
þjónusta færðist heim í hérað.
Arið 1984 var svo Ragnarssel
stofnað en þar er enn í dag rek-
in dagvist fyrir fötluð böm.
Að rjúfa félagslega
einangrun fatlaðra
og styðja foreldra
Undanfarin ár hefur Þroska-
hjálp á Suðumesjum stuðlað að
auknu félags- og tómstunda-
starfi fyrir ungt fólk og einn
liður í því var að koma á fót
umræðuhópum. Umræðuhópur
ungmenna á Suðurnesjum „7
vinir" hittist einu sinni í viku.
Þar ræða þau sín mál auk þess
að skemmta sér saman. Um-
ræðuhóparnir miða að því að
efla fullorðið þroskaheft fólk í
að hafa áhrif á eigið líf. Gengið
,er út frá þeirri meginhugmynd
að allir eigi rétt á að ráða eigin
lífi og að þroskaheftir hafi til
þess mun meiri hæfileika en
hafa fengið að njóta sín til
þessa.
Foreldrauppbygging og for-
eldrastarf hefur alltaf verið
mikilvægur og nauðsynlegur
þáttur í starfsemi félagsins. Það
er sú rót sem félagið sprettur af.
Félagið hefur því lagt sig fram
um að starfa með foreldrum og
fyrir þá. Eitt af merkustu ný-
mælum í starfi Þroskahjálpar er
foreldraráðgjöfin „Frá foreldri
til foreldris“. Um er að ræða
nokkurs konar nærhópa for-
eldra. Þar sem foreldrar veita
hver öðrum stuðning og miðla
reynslu sinni.
Ekki má gleyma þeim ómet-
anlega þætti sem Iþróttafélagið
NES, sem er íþróttafélag fatl-
aðra sér um í tómstundastarfinu
hér á Suðurnesjum.
Atvinnumöguleikar
fatlaðra
Nýjasta verkefni Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum var að
setja upp vinnustað fyrir fatlaða
DOSASEL og er hann staðsett-
ur að Iðavöllum 9 í Keflavík.
Þar starfa nú 4 þroskahamlaðir
ungir menn auk tveggja starfs-
leiðbeinenda. Aður var aðeins
einn fatlaður í starfi við dósa-
söfnunina. Þó hér sé talað um
dósir þá er einnig söfnun á öll-
um plastdrykkjarumbúðum og
flöskum. Margir virðast ekki
vita að Dósasel tekur á móti
öllum umbúðum frá A.T.V.R.
Söfnun á drykkjarumbúðum
hefur verið ein aðaltekjulind fé-
lagsins undanfarin ár en fyrir
rúmu ári síðan var ákveðið að
taka fleiri fatlaða í vinnu og
hefja móttöku gegn skilagjaldi.
A sama tíma hefur samkeppni
við Þroskahjálp á dósasöfnun-
armarkaðinum harðnað veru-
lega.
Rétt er að geta þess að Véla-
deildin í Dósaseli er eins konar
umboðsaðili fyrir Endurvinnsl-
una í Reykjavík. Fyrir hvert
ílát sem fer í gegnum vél fær
viðskiptavinurinn kr.7 en Þ.S.
fær ákveðin umboðslaun á ein-
ingu. Þannig munar Þ.S. um
allt sem þama fer í gegn. Eftir
sem áður eru gjafadósir, plast
eða flöskur það sem kemur sér
best fyrir félagið og skapar
vinnu fyrir fatlaða auk þess að
vera mikilvægur þáttur f um-
hverfisvemd á svæðinu.
Helga Margrét
Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri
Þroskahjálpar
á Suðurnesjum
msmmi
CTTIMA A SÚLARHRING
AKTU - TAKTU „
% MEÐHEIM! t
Kínversk stemmning hjá Matarlyst á aðventu
Frá og með næsta laugardegi bjóðum yið
aftur KINA-réttina vinsælu á góðu verði
sem þú tekur með þér heim eða í
vinnuna...
Meðal rétta:
Súrsætar rækjur
Urbeinaður kjúklingur í sterkri karrýsósu
Súrsætt svínakjöt
Lamb í ostrusósu
Lamb í sterkri plómusósu
Opið frá kl. 11:00 til 20:30
t
IÐAVOLLUM 5 - KEFLAYIK
SÍMI 14797
VÍKURFRÉTTIR- ‘
BBfcB ■ ■■■ næsta fimmtudegi
ólatrjámviðhátíðlegaathöC
er nk. rHöfnnm, Ajarðvík o
• Lúðrasveit
Tónlistarskóla
Njarðvíkur leikur
aoventu- og jólalög.
• Sönghópur
Keflavikurkirkju syngur
jólasálma.
• Jólasveinar mæta,
syngja og ræða við
yngstu gestina.
• Nemendur Myliu-
bakkaskóla garma í
kringum jólatréo ásamt
jólasveinunum.
• Nemendur Holtasóla
hjóða upp á heitt kakó.
• Nemendur Grunn-
skóla Njarðvíkur hjóða
upp á piparkökur. ‘
í lliiíniini við kirkjunn kl. 15:1.
- Avarp: Forseti bæjarstjórnar, frú Drífa
Sigfúsdóttir
- Ljósin tendrar: Olafur Sindri Ólafsson
nemi úr Höfimm í Grumiskóla
Njarðvíkur.
- Sérstakir gestir: Nemendur 2. bekkjar
Myllubakkaskóla og Grunnskóla
Njarðvíkur
í Njarðvík við kirkjuna í Ytri-Njarðvík kl. 16:30
- Ávarp: Bæjarfulltrúi, frú Anna Margrét
Guðmundsdóttir
- Ljósin tendrar: Sigurður Guðmundsson,
neini í Grunnskóla Njarðvíkur
í Keílavík á Tjarnargötntorgi
kl. J8:00, vinartré Ira Kristiansaml
- Ávörp: Hr. Öyvind Stokke,
sendiráðsritari Noregs á íslandi
Formaður bæjarráðs, frú Jónína A.
Sanders.
- Ljósin tendrar: Katrín Marsi Aradóttir,
nenii í Myllubakkaskóla
EJ yi 1 m Q m l '/tj: rrb m
arstjwrinn ■ H^.«^i*Ha«'^*H*. -
r^ijja*■-«>'%/áH«. - HH«»t'i*■■■■■