Víkurfréttir - 01.12.1994, Qupperneq 22
22
1. DESEMBER 1994
VllCIIPPRÉTTIR
SFS með 35 mef
Sundfélagið Suðumes varð í 4. sæli
í Bikarkeppninni í sundi sem fram fór í
Sundhöll Reykjavíkur um síðustu
helgi. Liðið var aðeins tólf stigum á
eftir Sundfélagi Hafnarfjarðar sem
varð í þriðja sæti og 58 stigum frá 2.
sæti.
Bestutn árangri Suðurnesjaliðsins
náði Magnús Konráðsson í 200 m fjór-
sundi með tímann 2:08,35 og komst í
A-hóp Sundsambandsins fyrir tvær
keppnir, annars vegar til þátttöku í
opnu móti í Danmörku í janúar og hins
vegar í Hcimsmeistaramótinu í
Finnlandi. Systir hans, Eydís hafði
þegar náð þeim lámörkum sem þurftu.
Sigrar sundfólks Suðumesja á mót-
inu um síðustu helgi voru þessir:
Magnús Konráðsson í 200 m fjór og
100 m bringusundi.
Eydís Konráðsdóttir í 100 og 200 m
baksundi.
Berglind Daðadóttir í 100 m bringu-
sundi.
Svavar Kjartansson í 200 m skrið-
sundi.
A-stúlknasveit í 4x100 m fjórsundi.
A-karlasveit í 4x100 m skriðsundi.
Góður sigur Reynis á léff/
Reynismenn unnu öruggan sigur
á Létti sl. mánudag með 108 stig-
um gegn 84. Staðan í hálfleik var
50-37.
Leikurinn var jafn í byrjun og
skiptust liðin á að hafa forystu.
Þegar staðan var 29-28 fóru heima-
menn í gang og náðu þrettán stiga
forskoti fyrir leikhlé.
I síðari hálfleik var aldrei spum-
ing hvort liðið væri sterkara og
Reynismenn hreinlega „völtuðu"
yfir „létta" Léttismenn. Besti mað-
Reynismenn stóðu
Úrvalsdeildarlið Hauka lenti í
basli ineð 2. deildarlið Reynis í
bikarnum sl. föstudag. Reynis
menn leiddu fyrstu mínúturnar og
komust í 8-12 en eftir það skiptust
liðin á að hafa forystu í fyrri
hálfleik. Staðan í hálfleik var 33-28
fyrir Hauka. I seinni hálfleik misstu
Reynismenn Hauka framúr en
komu samt aftur með baráttu og
ur Reynis var Sigurþór Þórarinsson
en skoraði 27 stig og hitti mjög vel.
William Key skoraði 28 stig og tók
11 fráköst og Sveinn var einnig
sterkur í vörn og sókn, skoraði 19
stig og tók 16 fráköst. Næstir í
stigaskori voru Anthony Stissy og
Jón Guðbrandsson, báðir með 10
stig.
Reynismenn leika við Gróttu 4.
des. í Sandgerði kl. 17 og í Garði 6.
des. leika Víðismenn og Reynir kl.
20.
í hárinu á Haukum
náðu að jafna 65-65 þegar um 7
mín. voru eftir. Síðustu mínútumar
voru æsispennandi en Haukar
reyndust sterkari og skoruðu síðus-
tu fjögur stigin og unnu með sjö
stiga mun 84-77. Reynismenn
börðust eins og ljón allan leikinn
með William Key sem besta mann
og Gest Gylfason sem hirti 12
fráköst.
r- Svæðisskrifstofa
Reykjaness
FOTLUN OG SAMFELAG 3
Efni:
FÖTLUN OG SKÓLI.
Efnistök:
Fyrirlestur og umræður um orsakir fötlunar, mis-
munandi tegundir fatlana og áhrif þeirra á skóla-
göngu barna. Fjallað verður um innkomu fatlaðra
barna í skólann. Rætt verður m.a. um mikilvægi
sérstuðnings, samvinnu við foreldra og sérfræð-
inga, símenntunar fyrir þá aðila sem veita sér-
stuðning. Þá verður talað um blöndun og sérúr-
ræði og þátt Svæðisskrifstofu í þjónustu við fötluð
börn í grunnskóla.
Tími:
Dags: 05.12.1994.
Tími: 20:00-22:00.
Staður:
Hæfingarstöðin Hafnargötu 90, Keflavík.
Þátttakendur:
Foreldrar fatlaðra barna og starfsfólk grunnskóla.
Fyrirlesarar:
Hanna Björnsdóttir, deildarsérfræðingur.
Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur.
Sigríður Daníelsdóttir, forstöðumaður.
Áskell siglinga-
maður ársins
Áskell Agnarsson úr
Keflavík var kjörinn
siglinganraður ársins af
Siglingasambandinu. Innan
siglingageirans fékk hann
einnig titilinn besti kjöl-
bátamaður ársins. Hann
hefur stýrt Evu II ásamt
fleiri Ketívíkingum.
Áskell mun ásamt fleiri
siglingantönnum vera þessa
dagana að undirbúa stofnun
siglingafélags í Keflavík.
Gestrísnir Dalvíkingar
Það var vel tekið á móti Islandsmeisturum Njarðvíkur en liðið kom til
Dalvíkur á föstudaginn og lék gegn heimamönnum í 16-liða úrslitum
bikarsins í körfuknattleik.
Að sögn eins stjórnarmanns Njarðvíkurliðsins voru inóttökurnar
frábærar og létu heimamenn, sem leika í 2.deild, sig engu skipta þó að
Njarðvík hreinlega valtaði yfir þá en lokatölur urðu 55-160.
Þegar leikmenn hlupu inn á völlinn tóku heimamenn, sem troðfylltu
húsið, vel við sér og buðu gestina velkomna með húrra lirópum og lófa-
klappi sem ætlaði aldrei að linna.
Rondey Robinson hafði í nógu að snúast eftir leikinn en þá þusti að
honum krakkahópur sem vildi fá eiginhandaráritun frá kappanum.
Njarðvíkingum var boðið á herrakvöld hjá Dalvíkingum eftir leikinn og
nutu þeir þar frábærrar gestrisni en á boðstólum var bæði matur og drykkur
og frábær undirfatasýning kórónaði síðan allt í lokin. Dalvíkingar eiga
heiður skilið fyrir gestrisnina en kannski mættu önnur lið taka þetta til
fyrirmyndar hvað gestrisni varðar.
Umsjón: Freyr Sverrisson
W barna og unglinga
Körfubolti
Glæsilegt hjá fim-
leikafélaginu
Það var mikið um að vera hjá okkar
unga íþróttafólki um síðustu helgi.
Þar ber hæst glæsilegur árangur
Fimleikafclagsins á KR vinamótinu
sem haldið var í Ármannsheimilinu í
Reykjavík. I Keflavík fór fram Sam-
vinnuferða-Landsýnarmótið í
knattspyrnu, og Sundfélag Suður-
nesja tók þátt í bikarkeppni Sund-
sambands Islands.
Úrslit úr þessum mótum birtast hér í
dag ásamt úrslitum úr fjölliðamótum
í körfu.
Sund
Sundfélag Suðumesja lenti í 4. sæti í
bikarkeppni 1. deildar í sundi. Aðeins
vantaði hársbreidd að það næði 3. sæti.
Margir góðir sigrar unnust á þessu
móti, og er framtíðin björt hjá okkar
unga sundfólki.
Knattspyrna
Keflavík sigraði í Samvinnuferða-
Landsýnarmótinu í 7. flokki sem haldið
var í íþróttahúsinu í Keflavík um síðustu
helgi. En samanlagður árangur A og B
liða réði úrslitum. Njarðvík varð í öðru
sæti, Reynir í þriðja og Víðir í fjórða.
Sigurvegararnir fengu bikar, og allir
keppendur verðlaunapening. Það voru
því ánægðir en þreyttir keppendur sem
héldu heim eftir velheppnað mót.
Fimleikar
Fimleikafélag Keflavíkur tók þátt í
vinamóti KR laugardaginn 26. nóv. Á
því móti er keppt í áhaldafimleikum
eftir íslenska fimleikastiganum. Það er
að segja stökki, tvíslá, jafnvægisslá, og
gólfæfingum. Árangur stúlknanna var
frábær. Þær fengu 30 verðlaun af 50.
Halldóra Þorvaldsdóttir fékk silfur á
jafnvægisslá og tvíslá, og brons í stökki
það nægði henni til sigurs í saman- -
lögðu í 3. þrepi. Ásta S. Tryggvadóttir
lenti í öðru sæti í samanlögðu en hún
sigraði á tvíslá. Ragnheiður Pétursdóttir
sigraði í stökki og gólfæfingum. Hjör-
dís B. Hjartardóttir fékk brons á tvíslá
og einnig í gólfæfingum. Ragnhildur Ó.
Ámadóttir fékk silfur í stökki. I fjórða
þrepi A sigraði Tinna Ósp Káradóttir
7. Flokkur. B lið
Keflavík b - U.B.K.40-15
Keflavík b - Grótta ) 34-25
Keflavík b - Fjölnir 30-33
Stigahæstir hjá Keflavík.
Stefán Páll Sigurþórsson32 stig
Guðmundur Skúli Margeirsson 25 stig
Þessi mynd cr tekinn á innanfélags-
móti Ujá Fimleikafélaginu Keflavik,
en um síðustu helgi var Italdin
keppni fyrir byrjendur. Keppt var á
fjórum áhöldum ogfengu allirviður-
kenningu fyrir þátttökuna.
glæsilega í samanlögðu. Hún fékk gull
í stökki, tvíslá og gólfæfmgum og silfur
á jafnvægisslá. Erna Geirmundsdóttir
fékk brons í stökki og gólfæfingum.
Helga Auðunsdóttir fékk gull á jafn-
vægisslá. Jóhanna Pálsdóttir fékk silfur
á tvíslá, og Lilja Ösp Daníelsdóttir
brons á jafnvægisslá. I fjórða þrepi B
„sigraði Alda Kristjánsdóttir í saman-
lögðu hún fékk brons í stökki og tvíslá
og silfur í gólfæfingum. Heiðrún R.
Þórðardóttir sigraði í stökki og tvíslá,
en Rut Skúladóttir sigraði í gólfæfing-
um.
Drengjaflokkur
B. Riðill
Grindavík - U.B.K. 59-57
Grindavík - Valur 65-63
Grindavík - Snæfell72-60
Stigahæstur hjá Grindavík
Páll Vilbergsson 64 stig
Stöngin inn
Jói litli sat á besta stað í
stúkunni. Maðurinn við hliðina
á honum spurði hvernig hann
hefði náð í miða á svona góð-
um stað. „Það er allt honum
pabba að þakka, og hvar er
pabbi þinn? „Heima” af hverju.
Hann er að leita að miðanum".
Vissir þú..............
. ..a5 95 strákar og 3 stelp-
ur kepptu á 7. flokksmótinu
um síoustu helgi.
...aö fimleikastúlkur fara
tvisvar sinnum i mánuði inn
í Reykjavík til æfinga.
...a& þær stúlkur sem lengst
eru komnar í áhaldafimleik-
um æfa 16-20 klst. á viku
,...að þeir sem dæmdu á 7.
flokks mótinu í fótbolta voru
knattspyrnumenn úr 3.
flokki Keflavíkur.
Guðmundur
Ingi Skúluson
Keflavík
Fótbolti
Brasilía
Pulsur
Spurt á 7. flokks mótinu:
♦ Hvað er skemmtilegasta íþróttin? ♦ Hvað erbesta lið í heimi?
♦ Uppáhaldsmaturinn? ♦ Hvað er skemmtilegast ískóianum?
Kristinn
Björnsson
Njarðvík
Fótbolti
A.C. Milan
Pulsur
Jóhann Ingi
Sævarsson
Reynir
Fótbolti
Brasilía
Kjúklingur
Sigurður
Elíasson
Víðir
Fótbolti
Víðir
Slátur
Leikfimi
Læra
Frímínútur
Allt