Víkurfréttir - 05.01.1995, Page 4
4
5. JANÚAR 1995
VllfURFRÉTTIR
SUÐURNESJUM
Útskurðarnámskeið
á vegum félagsins hefst strax í næstu viku.
Skráning hjá Gunnari Jónatanssyni
s. 12658 eða í s. 11869.
Stjórnin
HÆTTUM
AÐ REYKJA!
Heilsugæslustöð Suðurnesja í Keflavík
stendur fyrir námskeiði og meðferð gegn
reykingum. Leiðbeinandi verður Þóra G.
Geirsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Innritun
og forviðtöl standa fyrir.
Yfirvélstjóra vantar
á Bergvík KE 65. Upplýsingar á skrifstofu í
síma 14774 og á kvöldin eða eftir skrif-
stofustíma í síma 11976.
Lámarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.
Námskeiðið byrjar 9. janúar 1995.
Upplýsingar og skráning er í síma 20500
hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 9-12.
Heilsugæslustöðin í Keflavík.
Fasteignaþjónusta
~ , Fasteigna &
Suournesja hf. skiPasaia
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 13722 - Fax 13900
Fífumói 5b, Njarðvík
Tveggja herbergja íbúð í fjölbýli.
3.800.000,-
Mávabraut 2, Keflavík
Rúmgóð fjögurra herbergja neðri
hæð í fjölbýli. Góður staður.
5.600.000.-
Baldursgata 8, Keflavík
Eldra einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt bílskúr. 4 svefnher-
bergi, tvöföld stofa. Hagstætt
áhvílandi. Skipti möguleg á
minni eign.
6.000.000,-
Hraunholt 8, Garði
129 ferm. einbýlishús ásamt 46
ferm. bílskúr. 4 svefnherbergi,
sjónvarpshol og stofa. Hagstætt
áhvílandi. Skipti möguleg á
minni eign.
10.400.000.-
Akurbraut 1, Njarðvík
Rúmgott parhús ásamt bílskúr. 3
svefnherbergi, tvöföld stofa,
ásamt sólstofu. Mjög hagstætt
áhvílandi.
10.000.000.-
Heiðarholt 5, Keflavík
120 ferm. parhús ásamt 28 ferm.
bílskúr. 3 svefnherbergi, sjón-
varpshol, stofa og sólstofa.
9.900.000.-
Vesturgata 21, Keflavík
Fjögurra herbergja efri
hæð í tvíbýli ásamt bíl-
skúr. 3 svefnherbergi.
Lagnir, gluggar og gler
endurnýjað að hluta. Mjög
hagstætt áhvílandi.
7.000.00«.-
Heiðarhvammur 9, Kcflavík
Vönduö þriggja herbergja íbúð í
fjölbýli..
5.200.000,-
Efstaleiti 57, 59, 65,
Keflavík
100 ferm. raðhús í bygg-
ingu ásamt 30 ferm. bíl-
skúr. Húsin skilast fok-
held, fullbúin að utan. Til-
búin til atbendingar. Hag-
stætt áhvílandi. Teikning-
ar á skrifstofu.
6.300.000,-
Varnarliðið
Laust starf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að
ráða starfskraft til Ijósmyndaframköllunar
og þjónustu við viðskiptavini hjá Verslun
Varnarliðsins.
Umsækjendur hafi þekkingu á Ijósmyndun
og framköllun. Mjög góðrar enskukunnáttu
er krafist.
Um tímabundið starf er að ræða til
6 mánaða.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar
Varnarmálaskrifstofu, Brekkustíg 39,
Njarðvík, sími 92-11973. eigi síðar en
16. janúar 1995.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar
fyrir umsækjendur og er þeim bent á að
lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama
stað.
VIÐTALSTÍMAR
BÆJARFULLTRÚA
í kvöld fimmtudaginn 5. janúar kl. 20:00-22:00,
verða bæjarfulltrúarnir Sólveig Þórðardóttir og
Þorsteinn Erlingsson til viðtals á bæjarskrifstofun-
um að Tjarnargötu 12, II hæð.
Bæjarstjóri.
FRETTIR
Ágætu félagsmenn. Gleði-
legt ár og bestu þakkir fyrir
gott samstarf á árinu, sem nú
hefur kvatt eins og öll hin
mörgu sem hlaupa nú frá okkur
með sífellt meiri hraða og týn-
ast okkur flestum að fullu. En
það er með nýja árið eins og
flest annað sem við fáum, að
við þurfum að nota það vel og
nota það okkur til gagns og
gleði. Ég hvet ykkur til að nýta
það sem best sem félag okkar
hefur upp á að bjóða og nefndi
hér sumt af því sem nú er á
döfinni.
Fastir liðir
Á mánudagskvöldið 9. jan.
hefst svo vikulegt bingó að
Suðurgötu 12-14 kl. 20. Á
þriðjudaginn er svo boccia kl.
10:30 í íþróttahúsinu í Njarðvík
og kl. 16 spilum við bridge á
Suðurgötu 12-14 kl. 14. Þann
11. jan. breytum við til með fé-
lagsvistina okkar og spilum þá
á Glóðinni kl. 15.
Útskurðarnámskeið
Félagið gengst fyrir útskurð-
arnámskeiði strax í næstu viku
og njóta félagsmenn okkar þar
góðra kjara. Verkfæri, efni og
góð aðstaða er á Holtsgötu 8
þar sem námskeiðið verður, en
kennari verður Gunnar Jón-
atansson, útskurðarmeistari.
Ég veit að marga langar til
að prófa þetta. Nú er tækifæri,
skráið ykkur strax. Að hika er
sama og tapa.
Opið hús
Ég veit að þið lítið oft á dag-
skrána okkar en samt vil ég
minna ykkur á opið hús í Sam-
komuhúsinu í Sandgerði þann
14. þ.m.
Bókargjöf
Að lokum vil ég geta þess að
félaginu hefur borist rausnarleg
bókargjöf frá Dagrúnu Þór-
lindsdóttur og vil ég fyrir hönd
félagsins færa henni bestu
þakkir.
Sigfús Kristjánsson.