Víkurfréttir - 05.01.1995, Page 14
14
5. JANÚAR 1995
VlffURFRÉTTIR
• Barn ársins:
„Það var
stúlka..."
Nýársbarnið
1994 var stúlka.
fædd 2. janúar
kl. 22:08. Barn-
ið var stúlka.
3440 grömm og 50 sentimetr- |
ar. Foreldrarnir eru Margrét
Sigurðardóttir og Kjartan Jóns-
son. Til hamingju með eins árs
afmælið sl. mánudag!
• Flopp ársins:
„Smíða skútu,
skerpi skauta..."
Hafin var framleiðsla á BB 12
seglskútum hjá Ventusi hf. í í
Keflavfk. Haldin var sýning og
fjölmargir lögðu leið sína á
sýninguna. Skútan var send
utan til sýningar í Þýskalandi. j
Þjóðverjinn skyldi heillaður.
Eitthvað hefur farið hljótt um
BB 12 síðan í ársbyrjun 1994.
- Hvers vegna?
• Ráðning ársins:
„Við
komum
bara
rebbaú
þing..."
Friðjón Einarsson hlaut ráðn-
ingu ársins þegar hann var ráð-
inn í starf forstööumanns
markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofu sameinaða sveitarfélags-
ins. Valið stóð á milli Friðjóns
og Kristjáns Pálssonar. Hvort
Friðjón safnaði liði til að koma
Kristjáni á þing er ekki vitað,
en Kristján kom með ágætum
út úr prófkjöri um svipað leyti
og dró atvinnuumsókn sína til
baka.
• Bygging ársins:
„Setjum bara þak ú
skurðinn • ••
Bygging ársins var aldrei
byggð. Hún er hins vegar hug-
mynd á blaði um að byggja
hvolfþak yfir gömlu grjót-
námurnar vestan Keflavíkur.
Þar gæla menn við yfirbyggð-
an fjölnotaíþróttavöll. Hug-
myndin hefði þurl't að koma
miklu fyrr vegna HM-95.
• Nöfn ársins:
„Nú, mú það ekki
heita..."
Suðurnesjabær, Hafnavík,
Reykjanes og fleiri nöfn komu
í umræðuna á sl. ári. Suður-
nesjabær er örugglega nafn
ársins. Sameinað sveitarfélag
má ekki heita því nafni og
mannanafnanefnd getur ekkert
gert í málninu þó reglur um j
nöfn liafi verið gefnar frjálsari.
Suðurnesjabær er nefnilega
ekki mannanafn...
• Maður ársins:
„Ég keypti
það í kaup-
félaginu • ••
Guðjón Stefáns-
son, kaupfélags-
stjóri, var kjörinn
maður ársins af Víkurfréttum á
síðasta ári. Þá voru einkunnar-
orðið „Sókn er besta vörnin"
hjá kaupfélagsstjóra og Kaup-
félag Suðurnesja hefur haldið
áfram að sækja í sig veðrið.
Svona var...
• Mannraun ársins:
„Og hann bara
bakkaði.."
Starfamaður Pósts og Síma
komst í hann krappann á árinu
þegar bifreið sem hann ók fór
út af veginum upp á Þorbjörn
og bíllinn rann unt 100 metra
niður snarbratta hlíðina án þess
að velta. Bíllinn skemmdist
ekkert en tvö dekk affelguðust
og einn hjólbarði eyðilagðist.
• Fegurð ársins:
„Og fegurðardrottn-
ing Suðurnesja er..."
Lovísa Aðalheiður Guðmunds-
dóttir var kjörin Fegurðar-
drottning Suðurnesja 1994.
Sólrún Björk Guðmundsdóttir
var valin vinsælasta stúlkan.
Tvær Birgittur, önnur Unnars-
dóttir og hin Vilbergsdóttir
urðu í 2. og 3. sæti.
• Fnykur ársins:
„Er þetta nýja ilm-
vatnið þitt?..."
Farþegar í Flugleiðaþotum í
aðflugi að Keflavíkurflugvelli
fundu mikinn ýldufnyk í flug-
vélunum á vormánuðum þegar
flugvöllurinn nálgaðist. Skýr-
ingin var sú að verið var að
bræða dragúldna loðnu í
bræðslunni í Sandgerði og
reykurinn fór í loftræstikerfi
flugvélanna. Nammi namm...
• Endurkoma ársins:
„Eiga ekki fyrir
salti í grautinn • ••
Saltverksmiðjan á Reykjanesi
gaf upp öndina á árinu en í
stað þess að setja salt í sárin
tók starfsmenn fyrirtækið á
leigu eftir að Hitaveitan keypti
allt klabbið og hófu fram-
leiðslu á eðalsalti í nýjum um-
búðum.
• Vonleysi ársins:
„Halló, er einhver
að hlusta..."
Útvarpsstöðin Brosið var í fjár-
hagsvandræðum á árinu. I bréfi
frá fyrirtækinu til stjórnar
Sambands sveitarfélaga á Suð-
urnesjum sagði að reksturinn
væri vonlaus. Brosið fór fram á
styrk frá sveitarfélögunum og
fékk. Utvarpsstjórinn hætti
hins vegar nú um síðustu ára-
mót. Það er því uppsögn árs-
ins.
• Þjónusta ársins:
„Sjúiði brjóstin
ú þessari • •••
H r a f n k e 11
Oskarsson og
hans fólk á
Sjúkrahúsi
Suðurnesja
veitir þjón-
ustu ársins.
Nú er hægt
að fá stærri
brjóst eða láta fitusjúga sig í
stóra húsinu við Skólaveginn
og sérfræðingar eru í hverju
horni.
• Ánægja ársins:
„Við höldum úfram
að berjast..."
Félagsvísindastofnun gerði
skoðanakönnun á meðal Suð-
urnesjamanna á árinu 1994 þar
sem kemur fram að 82% Suð-
urnesjamanna voru mjög
ánægðir eða frekar ánægðir
með Víkurfréttir, en 0,6% voru
frekar óánægðir með blaðið.
Sömu sögu er að segja af
spurningu um fréttaþjónustu
Víkurfrétta fyrir Stöð 2 og
Bylgjuna.
• Púður ársins:
„Trítlapakki ekki
nóg fyrir mig •••
Um tveir tugir ungra drengja
úr Keflavík lögðu undir sig
flugeldalager Björgunarsveit-
arinnar Suðurnes í desember
og nær tæmdu lagerhúsnæðið
(eða allt að þvf). Púðrið kom í
leitirnar rétt fyrir áramót og
það gerði líka 5 kg.
dýnamíttúpa sem horfði hafði
úr Helguvík nýverið.
• Sameining ársins:
„Berjumst saman
bræður, berjumst •••
Þrjú sveitarfélög voru samein-
uð í eitt á árinu og þar verður
að teljast sameining ársins. Þá
sameinuðust öll íþróttafélög í
Keflavík í eitt undir nafninu í-
þrótta- og ungmennafélagið
Keflavík. Sameinaða sveitarfé-
lagið heitir hins vegar...(það er
nú það...).
• Hátíð ársins:
„Ein I'íjóð... ú
sama vegi"
Hátíð ársins var haldin á Þing-
völlum. Fjölmargir Suður-
nesjamenn komust alla leið en
einnig komust margir bara f
Artúnsbrekkuna. Þeir sem
komust bara þangað fóru því
bara á Vúddstokk-hátíðina á
Höskuldarvöllum. Þar urðu
mótshaldarar þó ekki rfkir af
skemmtuninni.
• Sopi ársins:
„Tvo lítra takk..."
Vatnsfélag
Suðurnesja
gerði góða
hluti á árinu
og kom Suð-
urnesjavatn-
inu á markað
í Bandaríkj-
unum. KÖNIC of Iceland er nú
fáanlegt í 1600 bandarískum
stórmörkuðum. „Besta vatn í
heimi,“ segir framkvæmda-
stjórinn og klerkurinn Oddur
Einarsson.
• Leikari ársins
„Allt satt svo
langt sem......."
Bezzzti blaðamaðurinn á
Bezzztablaðinu er leikari
ársins. Sannleikur er aukatriði
en þrátt fyrir það fékk leikari
ársins á Suðumesjum hlutverk
í Sannleika-sagt þætti áramóta-
skaupsins en hefði betur komið
fram í hlutverki Gosa. Allt satt
....svo langt sem nefið nær...
• List ársins:
„Svo mólum við sól
hér í hornið..."
Það rak hver listviðburðurinn
annan á því herrans ári 1994.
Menningarvökur og stórglæsi-
legar sýningar Höllu Haralds-
dóttur og Aka Gráns vöktu at-
hygli og einnig fjölmargir aðrir
smærri en ekki síðri listvið-
burðir. 1994 var listaár á Suð-
urnesjum.
• Hegðun ársins
„Njarðvíkurkrakk-
arnir eru svo
góðir..."
Já, fimmhundruð nemendur
Njarðvíkurskóla eru svo prúðir
að þeir fá verðlaun nánast
árlega fyrir góða hegðun. Það
kom vel í ljós þegar Aki Gránz
hélt listsýningu sína á sal
skólans með marga verðmæta
listmuni og hluti. „Bara horfa,
ekki snerta eða taka“.. voru
kjörorð krakkanna sem eiga
heiður skilið..."
• Bruni ársins:
„Af litlum neista..."
Stóra blokkin og atburðirnir
þar í byrjun júní fá nafngiftina
Bruni ársins 1994. Af litlum
neista varð eitt mesta bál sem
komið hefur upp í fjölbýlishúsi
á Islandi fyrrog sfðar. Ennþá
hafa ekki allir flutt inn í íbúðir
sínar að nýju. Tjónið nam á
annað hundrað milljónum
króna.
• Fiskar ársins:
„Við ólumst upp sam-
an bræðurnir..."
Fiskar ársins voru flakaðir hjá
Trosi í Sandgerði. Þar var um
að ræða svokallaða „fóstur“-
þorska sem er undirmálsþorsk-
ur alinn upp í sjókvíum fyrir
austan. Einfalt og ódýrt og gef-
ur mikla möguleika í verð-
mætaaukningu segir Logi Þor-
móðsson, fiskverkandi.
• Bað ársins:
„í botninum stendur:
Reykingar bannaðar..."
Aldrei í sögunni hafa eins
margir fengið sér sundsprett í
sundmiðstöð Keflavíkur.
Grindvíkingar opnuðu nýja
sundlaug og Garðmenn og
Vogamenn fögnuðu eins árs
afmæli sinna lauga. Þá voru
gestir Bláa lónsins nær ótelj-
andi og þar var líka allt fullt af
fyrirsætum.
• Skemmdarvargur
ársins:
„Bregðum blysum
ú loft..."
Skemmdarvargur ársins hafði
viðkomu á lögreglustöðinni í
Keflavík í ársbyrjun. Hann
henti logandi blysi inn á gólf
stöðvarinnar, skemmdi gólf-
dúkinn og hljóp á brott en
svartklæddir menn með der-
húfur náðu kauða og stungu í
steininn.