Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 18
Þjóðir með flesta þjálfara
á síðustu stórmótum
karla í handbolta
HM 2017
Spánn 5
Ísland 4
Króatía 3
ÓL 2016
Spánn 3
Ísland 2
EM 2016
Ísland 3
Króatía 2
Serbía 2
Spánn 2
HM 2015
Ísland 4
Króatía 3
Spánn 3
EM 2014
Ísland 2
Króatía 2
Svíþjóð 2
Handbolti Fjórir íslenskir þjálf-
arar stýra liðum á HM í handbolta
sem hófst í Frakklandi í gær. Tveir
þeirra þekkja vel til á stórmótum
sem þjálfarar og hafa unnið slík
mót. Það eru auðvitað Evrópu-
meistarinn Dagur Sigurðsson,
þjálfari Evrópumeistara Þýska-
lands, og Guðmundur Guðmunds-
son, þjálfari Ólympíumeistara
Dana.
Tveir Íslendingar þreyta frum-
raun sína í Frakklandi. Annar
er Geir Sveinsson sem þjálfar
íslenska liðið en hinn er Kristján
Andrésson, þjálfari Svíþjóðar. Allir
nema Geir voru saman á stórmóti
árið 2004 þegar Ísland tók þátt á
Ólympíuleikunum í Aþenu. Dagur
og Kristján voru leikmenn, Guð-
mundur þjálfari en skórnir voru
komnir upp í hillu hjá fyrrverandi
landsliðsfyrirliðanum Geir Sveins-
syni.
Þrátt fyrir frábæran árangur á
síðasta ári verður HM í Frakklandi
kveðjumót bæði Dags og Guð-
mundar. Dagur hefur ákveðið að
taka við japanska landsliðinu og
búa þar til samkeppnishæft lið
fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið
2020 en Guðmundur stóð í ströngu
í kringum Ólympíugullið og ákvað
að segja starfi sínu lausu. Hann
verður ekki í miklum vandræðum
með að finna sér aðra vinnu.
Þriðji Íslendingurinn sem þjálfar
annað landslið en Ísland á HM,
Kristján Andrésson, er á sínu fyrsta
stórmóti með þessa miklu hand-
boltaþjóð. Kristján er fyrsti Íslend-
ingurinn sem þjálfar Svía en hann
var þjálfari Guif frá Eskilstuna í
níu ár frá 2007-2016. Hann kom
liðinu þrisvar sinnum í úrslitaleik
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S t U d a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
Dagur Sigurðsson, Þýskalandi
43 ára
Tók við þýska landsliðinu
í ágúst 2014
Fjórða stórmótið með Þjóðverja
7. sæti á HM 2016
1. sæti á EM 2016
3. sæti á ÓL 2016
Dagur Sigurðsson varð að þjóð-
hetju í Þýskalandi á síðasta ári
þegar hann gerði ungt og meiðslum
hrjáð lið Þjóðverja að Evrópumeist-
urum. Hann bætti svo um betur
og skilaði bronsi í hús á Ólympíu-
leikunum. Dagur hefur oft tekið
áhugaverðar ákvarðanir á sínum
ferli og eina slíka tók hann undir
lok síðasta árs þegar kom í ljós að
hann myndi hætta með Þýskaland
eftir HM. Hans næsta verkefni er að
þjálfa Japan. Hann er á sínu fimmta
stórmóti sem þjálfari en áður stýrði
hann Austurríki á EM þar í landi
árið 2010. Á stórmótunum hafa
Þjóðverjar unnið 19 af 25 leikjum (5
tapleikir) síðan hann tók við. Þetta
gerir 78 prósent sigurhlutfall.
Hvað segir Gaupi um Dag og
Þýskaland? „Þjóðverjar eru eitt
þriggja liða ásamt Dönum og
Frökkum sem koma til greina sem
sigurvegarar. Þessi þrjú lið spila
besta varnarleikinn og eru með
bestu markverðina. Það veikir
þýska liðið að Steffen Weinhold
er ekki með. Það er áfall og veikir
möguleika þeirra. Þýska liðið kom á
óvart á EM í fyrra en er núna þekkt
stærð og mótherjar þeirra vita
frekar að hverju þeir ganga.“
Guðmundur
Guðmundsson,
danmörku
56 ára
Tók við danska landsliðinu
í júlí 2014
Fjórða stórmótið með Dani
5. sæti á HM 2015
6. sæti á EM 2016
1. sæti á ÓL 2016
Reynsluboltinn Guðmundur Guð-
mundsson er á sínu þrettánda
stórmóti sem þjálfari en hann
stýrði Íslandi níu sinnum og skil-
aði tvisvar sinnum verðlaunum.
Hann byrjaði ekki nógu vel með
Dani þegar kom að því að safna
verðlaunum en hann datt úr leik í
átta liða úrslitum á HM í Katar og
á EM í Póllandi. Hann bætti upp
fyrir allt saman með því að vinna
Ólympíuleikana í erfiðu og ósann-
gjörnu starfsumhverfi á síðasta
ári. Danir hafa aðeins tapað fimm
keppnisleikjum af 37 undir stjórn
Guðmundar og á stórmótum
hafa Danir unnið 16 af 24 leikjum
(5 tapleikir) síðan hann tók við.
Þetta gerir 73 prósent sigurhlut-
fall.
Hvað segir Gaupi um Guðmund
og Dani? „Danir eru með mjög
heilsteypt lið sem getur unnið
mótið. Það veikir liðið hrikalega
mikið að Mads Christiansen gaf
ekki kost á sér. Guðmundur gerði
vel á síðasta ári með því að velja
Morten Olsen í liðið fram yfir
Rasmus Lauge. Olsen var lykil-
maður í því að Danir unnu ÓL.
Hann er miðjumaður úr smiðju
Guðmundar. Þarna tók Gummi
einu sinni sem oftar stóra en rétta
ákvörðun.“
Kristján Andrésson, Svíþjóð
35 ára
Tók við sænska landsliðinu
í september 2016
Fyrsta stórmótið sem þjálfari
Svíar voru í 11. sæti á síðasta stór-
móti sínu (ÓL 2016)
Kristján var leikmaður líkt og hinir
þrír íslensku þjálfararnir en náði
aldrei jafn langt á þeim ferli. Hann
þurfti að leggja skóna á hilluna
fyrir þrítugt vegna þrálátra hné-
meiðsla en hefur í staðinn gert
það gott sem þjálfari í Svíþjóð.
Hann er fæddur í Svíþjóð en er
með íslenskan ríkisborgararétt.
Bróðir hans, Haukur Andrésson, á
einnig leiki fyrir íslenska landsliðið
en hann spilaði lengi undir stjórn
bróður síns hjá Guif. Hann hefur
stýrt Svíum fimm sinnum, þar af í
tveimur mótsleikjum, og unnið þá
alla.
Hvað segir Gaupi um Kristján og
Svía? „Svíar eru í endurbyggingar-
fasa og hafa misst mikið af góðum
leikmönnum á síðustu mánuðum.
Svíar hafa samt engan skilning á
uppbyggingu og gera kröfur um
að komast að minnsta kosti í átta
liða úrslit. Undanúrslit væru bónus.
Ég er spenntur fyrir því að sjá Svía
undir stjórn Kristjáns því ég held
að hann sé betri þjálfari en sumir
halda. Pressan á honum verður ekk-
ert minni en hjá Guðmundi þegar
hann tók við Dönum. Þó hann sé
fæddur í Svíþjóð er hann Íslend-
ingur og því er það mikið afrek og
meðmæli að hann hafi yfirhöfuð
fengið starfið sem landsliðsþjálfari
Svíþjóðar.“
Tveir kveðja en einn stimplar sig inn
Guðmundur Guðmundsson Ólympíumeistari og Dagur Sigurðsson Evrópumeistari eru að stýra Dönum og Þjóðverjum á sínu síðasta
stórmóti. Báðir hafa sínar ástæður fyrir því. Kristján Andrésson stýrir Svíum á sínu fyrsta stórmóti á HM í Frakklandi.
sænsku úrvalsdeildarinnar en ber
nú ábyrgð á því að lyfta fjórföldum
heimsmeisturum Svía aftur upp í
hæstu hæðir.
Ísland á næstflesta þjálfara á
mótinu á eftir Spánverjum. Sex
Spánverjar þjálfa fimm lið en Katar
eru með tvo slíka að stýra silfurliði
síðasta heimsmeistaramóts.
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
Pressan á Kristjáni
verður ekkert minni
en hjá Guðmundi þegar
hann tók við Dönum.
Guðjón Guðmundsson
5
Fimm sinnum hafa íslenskir
þjálfarar mæst á stórmótum.
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-3
7
7
0
1
B
E
F
-3
6
3
4
1
B
E
F
-3
4
F
8
1
B
E
F
-3
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K