Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 34
Gott er að hrista saman starfsfélagana
með reglulegu millibili. Ýmsar leiðir eru til
þess. Til að hita upp fyrir bjórkvöld er til
dæmis hægt að hafa leikjadag í vinnunni.
Einn leikur gæti verið svokallaður dauða-
leikur. Allir starfsmenn draga miða. Einn
fær miða með bókstafnum M (morðingi)
en annar fær bókstafinn L (rannsóknar-
lögregla). Á öðrum miðum sem allir aðrir
starfsmenn draga stendur F (fórnarlamb).
Sá sem er rannsóknarlögregla þarf að
finna morðingjann sem á meðan leikur
lausum hala við að myrða fólk. Morðing-
inn drepur fólk með mjög lúmsku augn-
blikki. Fórnarlömb sem ná augnsambandi
við blikkið detta niður dauðir um leið.
Leiknum lýkur þegar morðinginn er fund-
inn.
Þessi leikur getur verið mjög fyndinn og
valdið mikilli kátínu á vinnustaðnum.
Annar leikur til að létta lund er hláturleik-
ur. Allir starfsmenn standa saman í hring
og segja ha ha, ho ho eða hee hee. Eng-
inn má hlæja þótt þetta sé vissulega mjög
fyndinn leikur. Sá sem skellir upp úr er úr
leik.
Leikir á skrifstofunni
Atvinnuveitendur ættu að hafa það
í huga að það er mikilvægt að huga
vel að heilsu starfsfólks síns. Það
hefur sýnt sig að þegar atvinnurek-
endum er umhugað um starfsfólk
sitt og heilsu þess verður starfs-
ánægja í fyrirtækinu meiri, fram-
leiðni og öryggi eykst og fjarvistum
fækkar.
Atvinnutengd heilsufarsskoð-
un er því eitthvað sem stjórnend-
ur fyrir tækja ættu að íhuga fyrir
starfsfólk sitt. Hægt er að leita til
fyrirtækja sem leggja slíkt sér-
staklega fyrir sig. Meðal annars
má benda á í þessu samhengi að
Hjartarannsókn býður fyrirækjum
og hópum að sérfræðingar Hjarta-
rannsóknar haldi fyrirlestur um eðli
hjartasjúkdóma, áhættuþætti þeirra
og greiningu. Á fyrirlestrinum er
einnig fjallað um þá þætti sem hver
og einn getur haft áhrif á í sínu lífi
og skipta svo miklu máli í baráttunni
við hjarta- og æðasjúkdóma, eins
og mataræði, hreyfingu og lífsstíl.
Heilsa starfsfólks
er afar mikilvæg
Janúar er oftar en ekki mikill átaks-
mánuður og margir sem reyna að
halda í við sig í mat og drykk. Þá
er gott að hafa eitthvað hollt að
maula á milli mála enda dregur það
úr líkum á að falla í freistni.
Hví ekki að gleðja samstarfs-
félagana með því að mæta með
stútfulla krukku af heimagerðu
hnetukurli sem hægt er að gæða
sér á yfir daginn. Það er orku- og
næringarríkt og sannkallað heila-
fóður.
Hér er uppskrift sem má leika
sér með að vild og laga krydd og
sætumagn að smekk.
Hnetumix í krukku
Hnetur og fræ að eigin
vali (til dæmis möndlur,
sólblómafræ, graskersfræ,
pekanhnetur og
cashewhnetur).
Kókosflögur
Þurrkuð ber að eigin vali. (Til
dæmis gojiber eða saxaðar
apríkósur).
Ólífuolía
Smjör
Hlynsíróp eða hunang eftir
smekk
Chiliflögur eftir smekk
Þurrkað timían eftir smekk
Kanill ef vill
Sjávarsalt eftir smekk
Skvettið smá ólífuolíu á pönnu
ásamt smjörklípu og skvettu af hun-
angi eða hlynsírópi. Bætið kryddi út
í og látið malla í stutta stund. Hellið
hnetum og kókosflögum út á pönn-
una og brúnið. Hellið hnetumix-
inu í víða skál og látið kólna. Hrærið
til að hneturnar festist ekki saman.
Bætið þurrkuðum ávöxtum út í ef
vill. Hellið á krukkur með góðu loki
og takið með í vinnuna.
Heilafóður fyrir
samstarfsfólkið
SPARI
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir
STOFNAÐ 1956
Íslensk hönnun
& handverk
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
skrifstofan kynningarblað
13. janúar 201712
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
F
-5
E
F
0
1
B
E
F
-5
D
B
4
1
B
E
F
-5
C
7
8
1
B
E
F
-5
B
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K