Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 54
„Það er mikið af nýju fólki og einnig margir sem hafa unnið fyrir hátíðina í gegnum tíðina sem kemur nú inn á nýjum forsendum. Það eru nýir eigendur að hátíðinni – þar inni eru Steinþór Helgi Arnsteinsson, yfirbókari og listrænn stjórnandi, Margeir Steinar Ingólfsson sem sér um markaðsmálin og ég er nýr fram- kvæmdastjóri. Ívar Kristjánsson er fjármálastjóri. Síðan erum við með Egil Tómas- son, Siggu litlu Ólafsdóttur, Söndru Barilli og Gyðu Lóu Ólafsdóttur sem er fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar. Við erum orðin þétt og reynslumikið teymi. Það er ótrúlega gaman að fara inn í þetta verkefni á traustum grunni með ótrúlega margt hæfi- leikaríkt fólk til að taka þessa hátíð enn þá lengra. Það þýðir ekkert að fara í felur með það að þegar nýir eigendur koma inn koma nýir stjórnarhættir og nýir samskiptahættir. Við, sem betur fer, höfum mætt miklum skilningi á öllum vígstöðvum og fólki þykir almennt vænt um þessa hátíð og þykir hún eiga erindi inn í íslenskt menningarlíf. Við erum lítið að horfa í baksýnisspegilinn og höfum bara horft fram á við. Sónar Reykjavík er komin í góðar hendur og verður áfram um ókomna tíð,“ segir Ásgeir Guðmundsson, nýr framkvæmdastjóri tónlistarhá- tíðarinnar Sónar Reykjavík. Má fólk búast við einhverjum nýjungum í ár? „Helsta nýjungin í ár er að meira púðri verður eytt í opnu svæðin. Við ætlum að leggja meira í fimmtudag- inn svo að hátíðin verði sterk þvert yfir alla dagana og einnig ætlum við að gera Hörpuna þannig að þú labb- ir ekki inn í Hörpuna þar sem Sónar er, heldur að þú labbir inn á Sónar sem er Hörpunni. Til þess höfum við fengið til liðs við okkur Þorgeir Frímann Óðinsson, sem mun sjá um þessi opnu svæði.“ Í dag tilkynnir hátíðin nýja lista- menn sem munu spila í Hörpunni í febrúar. Þetta eru breski grime- rapparinn Giggs, plötusnúðurinn og pródúserinn Blawan og einn- ig munu gestir hátíðarinnar fá að berja breska rapparann Nadiu Rose augum. Giggs er eitt þekktasta nafnið í bresku rappi en Bretarnir hafa verið að koma sterkir til leiks í alþjóðlegu rappsenunni síðustu ár og því góður möguleiki á að Giggs eigi eftir að verða enn stærri á þessu ári. Blawan er breskur plötusnúður og pródúser sem nú er búsettur í plötu- snúðahöfuðborg heimsins, Berlín. Þar hefur hann verið að pumpa út brennandi heitu teknói upp á síð- kastið. Hin 22 ára Nadia Rose er nýfædd inn í bresku rappsenuna, gaf út sinn fyrsta smell fyrir svona tíu mínútum og er strax búin að spila á tónlistar- hátíðum og komin með samning við Sony. Raunar er það sama í gildi með Nadiu og Giggs, við gætum verið að sjá stórstjörnu í fæðingu í Hörpunni. Þegar hafa verið kynntir til leiks tónlistarmenn eins og Fatboy Slim, Moderat, De La Soul, Sleigh Bells, GusGus, FM Belfast, Forest Swords, Sin Fang, Samaris, Tommy Genesis og fleiri. Hátíðin fer fram í Hörpunni 16. til 18. febrúar. stefanthor@frettabladid.is SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn. geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Við erum lítið að horfa í baksýnis- spegilinn og höfum bara horft fram á Við. sónar reykjaVík er komin í góðar hendur og Verður áfram um ókomna tíð. eru lítið að horfa í baksýnisspegilinn Hópurinn bak við Sónar hátíðina, þau Steinþór Helgi Arnsteinsson, Gyða Lóa Ólafsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Sigga litla Ólafsdóttir, DJ Margeir, Sandra Barilli og Egill Tómasson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nadia RoseGiggs Björgvin, Halli & Hjörtur Howser SÉRSTAKIR GESTIR MIÐASALA Á HARPA.IS · WWW.SENA.IS/LADDI70 Í ELDBORG 21. JANÚAR EGILS APPELSÍN KYNNIR MEÐ STOLTI TÓNLEIKAR KL. 20: UPPSELT AUKATÓNLEIKAR kl. 16: ÖRFÁIR MIÐAR EYÞÓR INGI GUNNLAUGSSON EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON BJARTMAR GUÐLAUGSSON SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR SIGRÍÐUR THORLACIUS sónar reykjavík er að taka á sig mynd og tilkynnir í dag nokkra nýja tónlistarmenn sem munu spila í Hörpunni í febrúar. Nýir eigendur eru komnir með hátíðina og bak- við sig hafa þeir teymi af reynsluboltum úr tónlistarsenu landsins. 1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E F -2 8 A 0 1 B E F -2 7 6 4 1 B E F -2 6 2 8 1 B E F -2 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.