Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 30
Hollensku arkitektarnir Alrik Koudenburg og Joost Van Bleis- wijk hönnuðu heila skrifstofu úr bylgjupappa inn í hundrað fer- metra rými. Skrifstofunni var einungis ætlað að standa tíma- bundið og fengu hönnuðirn- ir 30 þúsund evrur til verks- ins. Bylgjupappinn var af sterk- ari gerðinni, 15 mm að þykkt, og leiserskorinn í form sem var svo raðað saman í borð, hillur, veggi, súlur. Við samsetninguna var hvorki notuð ein einasta skrúfa né límdropi. Skrifstofan var unnin árið 2009 fyrir fyrirtækið Nothing í Amsterdam sem gerði út á aug- lýsingaþjónustu og nýsköpun „beint úr kassanum“. Hugmynd- in að baki þess að nota einung- is bylgjupappa var að sýna fram á hvað fyrirtækið Nothing gæti boðið upp á með því að umbreyta „engu í eitthvað“. Að hægt væri til dæmis að skapa heilt rými sem samanstóð af fundarher- bergi, skrifstofum, bókasafni og vinnustofum, úr efni sem væri yfirleitt fargað. Ef borðplata skemmdist til dæmis væri henni bara kastað og ný skorin út úr pappa um leið. Pappaskrifstofan var drifin upp í stóru opnu, hvítu rými og vakti talsverða athygli. www.homedsgn.com Hollensku arkitektarnir Alrik Kou- denburg og Joost Van Bleiswijk hönnuðu heila skrifstofu í hundrað fermetra rými úr bylgjupappa. Fundarherbergi, skrifstofurými og bókasafn var meðal þess sem pappaskrifstofan innihélt. Hönnuðirnir vildu sýna fram á hugmyndaauðgi og að hægt væri að gera „eitthvað úr engu“. Veggirnir skreyttir í vinnunni. Notaleg fundaraðstaða. Tímabundin skrifstofa Þykkur bylgjupappi var notaður á skemmtilegan máta við hönnun skrifstofurýmis í Amsterdam. Borð, stólar, veggir og fleiri form voru leiserskorin út úr pappanum og raðað saman án þess að lím eða skrúfur kæmu við sögu. Gott skipulag og líflegt vinnurými eykur andagift og vellíðan á skrifstofunni. NordicpHoTos/GeTTy Taktu til og skipuleggðu Áður en hafist er handa skaltu eyða nokkrum mínútum í upphafi hvers dags í að taka til á skrif- borðinu og skipuleggja pappíra. Það auðveldar skýra hugsun og þú finnur frekar það sem þú leitar að. Lífgaðu upp rýmið Litir geta haft bætandi áhrif á skapið. Blár er róandi og rauður á að auka fókusinn. Plöntur hjálpa fólki einnig með einbeitingu. Persónulegt rými Að skreyta skrifborðið með nokkrum persónulegum munum gerir fólk afslappaðra. Byrjaðu á því erfiða Ef þú kvíðir einhverju verkefni, byrjaðu þá á því. Þar með er kvíðavaldi rutt úr vegi og verk- efnið vofir ekki lengur yfir. Forgangsraðaðu og útvistaðu verkefnum Raðaðu verkefnum upp eftir mikilvægi. Sinntu mikilvægustu verkefnunum fyrst. Reyndu að koma verkefnum yfir á aðra sem þú sérð ekki fram á að geta sinnt. Slökktu á tilkynningum Í stað þess að lesa hvern tölvupóst þegar hann berst skaltu slökkva á tölvupóststilkynningum og reyna að lesa póstinn á tilteknum tíma dagsins. Stöðugar tilkynningar úr tölvunni geta haft truflandi áhrif og rannsóknir sýna að það tekur manneskju 64 sekúndur að jafna sig eftir truflun frá tölvupósti. Taktu stuttar pásur Stuttar pásur geta bætt frammi- stöðu. Afkastagetan minnkar eftir því sem þú situr lengur við án pásu. Margt má gera, til dæmis ganga hring í hverfinu, stökkva á kaffihús eða lesa tímarit. Hreyfðu þig Hreyfing er ekki aðeins góð fyrir líkamann, hún hefur einnig jákvæð áhrif á frammistöðu í vinnunni. Hlustaðu á tónlist Heyrnartól gera þig ekki ófélags- legan. Að hlusta á uppáhaldstón- list við vinnu getur komið fólki í stuð til að ryðjast í gegnum „to do“-listann. Þá benda heyrnartólin einnig vinnufélögum á að þú viljir síður láta trufla þig. Skiptu um umhverfi Ef vinnuveitandinn leyfir er gott að breyta stundum til og vinna annars staðar, til dæmis á bóka- safninu eða hljóðlátu kaffihúsi. Það getur verið uppspretta nýrra hugmynda. Skrifaðu markmiðin niður Það er ekki alltaf auðvelt að fylgjast með öllu sem þarf að gera. Byrjaðu daginn á því að skrifa niður markmið dagsins. Hættu að „múltítaska“ Að gera fleiri hluti í einu hljómar kannski eins og góð leið til að komast yfir mörg verkefni en það hefur iðulega slæm áhrif á fram- leiðnina. Uppskrift að góðum vinnudegi Vefsíðan www.businessnewsdaily.com tók saman tólf góð ráð fyrir skrifstofufólk til að auka einbeitingu og auðvelda því vinnudaginn. pappaskrif- stofan var sett upp í opnu hvítu rými og vakti talsverða athygli. sKriFsToFAN Kynningarblað 13. janúar 20178 1 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :5 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B E F -3 7 7 0 1 B E F -3 6 3 4 1 B E F -3 4 F 8 1 B E F -3 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.