Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 26
Rewrite desk kallast þetta skrifborð frá GamFratesi. Það var kynnt til sögunnar 2009 og er ein fyrsta hönnunin sem
ætlað er að bæta hljóðvist starfsmanna. Borðið er nú framleitt af Ligne Roset.
Hood frá Form Us With Love
sem kynnt var fyrst árið 2013
var einnig til sýnis á hús-
gagnasýningunni í Stokkhólmi
2016. Þessi hljóðeinangrandi
skermur sem hangir fyrir ofan
skrifborð er góður fyrir hópa-
vinnu.
Veggfestir klef-
ar frá sænska
merkinu Form2
eiga að þjóna
farsímanotend-
um sem þurfa
næði til að tala í
símann.
Íslenski hönnuður-
inn Bryndís Bolla-
dóttir er skapari
Kúlu sem er að
finna víða. Í vöru-
línu hennar KULA
er meðal annars að
finna hljóðdempara
og hljóðdreifara.
Grunnformið er
alltaf hálf eða heil
kúla þar sem efsta
lagið er þæfð ull.
PearsonLloyd hannaði
skrifstofulínuna Zones
fyrir Teknion. Mark-
miðið er að auka næði
í opnum skrif-
stofurýmum
og hvetja til
aukins sam-
starfs.
Hönnun fyrir
opin rými
Þeir sem vinna í opnum rýmum kannast sjálfsagt við
stöðuga truflun frá umhverfishljóðum sem skemma
einbeitingu og minnka framleiðni. Æ fleiri hönnuðir
hafa kveikt á því að úrbóta er þörf og hafa hannað
húsgögn sem eiga að bæta hljóðvist og persónulegt
næði starfsmanna.
Fjölmargar rannsóknir og kann-
anir hafa sýnt fram á að opin rými
eru ekki ákjósanlegustu starfs-
aðstæðurnar. Slík rými eru hins
vegar vinsæl meðal fyrirtækja
enda eru þau ódýrari í rekstri.
Þó hefur verið sýnt fram á að
framleiðni starfsmanna minnk-
ar við það áreiti sem verður í slík-
um rýmum og því spurning hver
sparnaðurinn er til langframa.
Í tveimur nýlegum könnun-
um sem gerðar voru á Bretlandi
á síðasta ári kom fram að skortur
á næði og persónulegum rýmum
hamli bæði sköpun og framleiðni
starfsmanna. Í könnun ráðgjafa-
fyrirtækisins Gensler kom í ljós
að starfsmenn voru líklegri til að
sýna frumleika og frumkvæði í
starfi ef þeir höfðu aðgang að fjöl-
breyttum vinnuaðstæðum, þar á
meðal rýmum sem nýta mætti til
persónulegra samtala.
Önnur könnun á vegum Savills
og breska skrifstofuráðsins leiddi
í ljós að minna en tveir þriðju hlut-
ar starfsmanna voru sáttir við
framboð af hljóðlátum vinnurým-
um. Fjórðungur taldi að núverandi
starfsaðstæður drægju úr fram-
leiðni þeirra.
Hönnuðir hafa komist að því að
nokkur vöntun er á hugvitssam-
legum húsgögnum fyrir opin skrif-
stofurými og það mátti til dæmis
glöggt sjá á árlegu húsgagnasýn-
ingunni í Stokkhólmi á síðasta
ári þar sem hljóðvist var eitt af
megin viðfangsefnum hönnuða. Á
sýningunni gaf að líta fjölda vara
sem tengdust hljóðvist, allt frá
hefðbundnum hljóðeinangrandi
skilrúmum og yfir í frumleg
skilrúm fyrir skrif-
borð, veggskýli
fyrir farsíma-
notendur og
hljóðein-
angrandi
hvelfing-
ar sem
hanga
niður úr
loftinu.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Focus frá sænska merk-
inu Zilenzio var sýnt á
húsgagnasýningunni
í Stokkhólmi. Merkið
sérhæfir sig í húsgögn-
um sem miða að betri
hljóðvist. Forsvarsmenn
fyrirtækisins segjast
finna fyrir aukinni eftir-
spurn eftir vörum þess í
kjölfar þess að fyrirtæki
fóru að bjóða starfs-
mönnum upp á opin
skrifstofurými.
Tomako frá finnska merkinu Vivero tekst á við
þörfina fyrir hljóðlátara vinnuumhverfi. Tomako er
skermur sem festur er við súlu sem býr til nokk-
urs konar lampaskerm sem fólk getur setið inni í.
Hannað fyrir opin skrifstofurými og móttökurými.
SKRiFSToFAn Kynningarblað
13. janúar 20174
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-4
6
4
0
1
B
E
F
-4
5
0
4
1
B
E
F
-4
3
C
8
1
B
E
F
-4
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K