Fréttablaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 4
Smiðjuvegi 2, Kópavogi (við hliðina á Bónus) - Sími 544 2121 - www.rumgott.is
Veldu
það besta
fyrir þig
Öll erum við mismunandi og með ólíkar þarfir.
Þess vegna bjóðum við upp á fría legugreiningu
og aðstoðum þig við val á réttu rúmi.
Vaxta-lausar rað- greiðskur til allt að 12mánaða
Janúar útsala
allt að 50% afsláttur
Smiðjuvegi 2, Kópavogi (við hliðina á Bónus) - Sími 544 2121 - www.rumgott.is
Veldu
það besta
fyrir þig
Öll erum við mismunandi og með ólíkar þarfir.
Þess vegna bjóðum við upp á fría legugreiningu
og aðstoðum þig við val á réttu rúmi.
Vaxta-lausar rað- greiðskur til allt að 12mánaða
Janúar útsala
allt að 50% afsláttur
Samfélag Bakpoki með nokkur
hundruð skrifuðum geisladiskum, í
eigu rokkömmu Íslands, Andreu
Jónsdóttur, hvarf af skemmtistaðnum
Dillon snemma á nýja árinu og syrgir
Andrea pokann mjög. Í pokanum
voru fjórar geisladiskamöppur með
þúsundum laga sem Andrea hefur
verið dugleg að nota við að þeyta
skífum og var pokinn langt frá því að
vera léttur og meðfærilegur.
„Þetta er ekki fjárhagslegt tjón en
tilfinningalegt og er alveg rosaleg
óþægindi,“ segir Andrea en hún deildi
upplifun sinni á Facebook og vonar
að máttur samfélagsmiðilsins verði til
þess að pokanum verði skilað aftur á
réttan stað. „Ég er svo gamaldags að ég
skrifa mína diska sjálf. Sit bara heima
og tek bestu lögin frá hljómsveit-
um og set á einn disk. Mesti skaðinn
er að ein mappa er með safndiskum
frá alls konar tímabilum og tónlistar-
stefnum. Ég get nefnilega spilað víðar
en á Dillon,“ segir hún og hlær.
Andrea er ein reyndasta útvarps-
kona landsins og hefur spilað tónlist
um árabil um helgar á Dillon
Í pokanum eru þrjár stórar möpp-
ur, ein hvít, önnur gul og sú þriðja
rauð, en allar eru af sömu tegund. Sú
fjórða er minni, svört og þykk. „Ég var
Skrifuðum geisladiskum stolið af Andreu Jónsdóttur
StjórnSýSla Sýslumannsembættið
á Suðurlandi segir ríkissjóð vera rétt-
mætan eiganda Fells við Jökulsárlón
og verður gengið frá afsali til ríkis-
sjóðs á næstu dögum. Embættið telur
yfirlýsingu ríkissjóðs hafa komið
innan lögbundins frests. Stjórnar-
formaður Fögrusala ehf. segist ætla
með málið fyrir dómstóla.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að frestur ríkisins til að ganga inn
í kauptilboð Fögrusala ehf., á jörð-
inni Felli í Suðursveit, hafi verið
liðinn þegar ríkið gaf út tilkynningu
um að það hygðist nýta forkaupsrétt
sinn. Sýslumaðurinn á Suðurlandi,
Anna Birna Þráinsdóttir, sagði
málið í vinnslu innan embættisins.
Álit sýslumannsins á Suðurlandi
er að ekki sé rétt að miða frest
ríkisins við þann dag þegar tilboði
Fögrusala var tekið þann 4. nóvem-
ber heldur ætti að miða frest ríkis-
ins við 11. nóvember, viku seinna,
því þá var gengið frá samningi við
fyrirtækið. Þess vegna hafi frestur
ríkisins verið til 11. janúar.
Þessa túlkun gagnrýnir Gísli
Hjálmtýsson, stjórnarformaður
Fögrusala ehf., en í lögum um nátt-
úruvernd er skýrt kveðið á um að
ríkið hafi sextíu daga til að nýta for-
kaupsrétt á jörðum á náttúruminja-
skrá frá þeim degi þegar tilboði er
tekið. „Við unum að sjálfsögðu ekki
þessu áliti sýslumannsins á Suður-
landi og munum leita réttar okkar
fyrir dómi,“ sagði Gísli.
„Í mörg ár hefur verið beðið eftir
uppbyggingu á svæðinu sem enn
mun tefjast á meðan málið er fyrir
dómstólum. Við ætluðum okkur
stóra hluti en þurfum að bíða enn
um sinn,“ bætir Gísli við.
Jökulsárlón er ein helsta náttúru-
perla Íslands og einn af fjölsóttustu
ferðamannastöðum. Ört stækkandi
Sýslumaður segir ríkið fá Fell
Ágreiningur um hvort forkaupsréttartilboð ríkisins í Fell sé löglegt fer fyrir dómstóla. Óttast er að á meðan
frestist nauðsynleg uppbygging . Sýslumaður segir ekki rétt að frestur ríkisins til að ganga inn í kauptilboðið
hafi verið liðinn. Fresturinn hafi verið frá því að samningur var gerður en ekki frá því að tilboði var tekið.
lögreglumál Maður sem grunaður
er um að birta myndir af íslenskum
ólögráða stúlkum á netinu og tengja
við vændisvefsíður er grunaður um
að halda uppteknum hætti. Maður-
inn sætti gæsluvarðhaldi í nóvem-
ber en lögregla hefur undir höndum
gögn sem sýna hann áreita stúlkur á
netinu eftir að gæsluvarðhaldi lauk.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa 26 kærur borist lög-
reglu vegna myndbirtinga manns-
ins en í frétt RÚV frá því í nóvember
segir að maðurinn hafi birt myndir
af 88 stúlkum en þær hafi þá ekki
allar gefið sig fram til lögreglu. Mað-
urinn hélt þá úti sérstakri vefsíðu
undir myndbirtinguna og þegar
smellt var á myndirnar opnaðist
svæsið klámefni sem tengdist stúlk-
unum ekki.
Flestar stúlkurnar eru búsettar
í Reykjanesbæ en þó ekki allar.
Í nýjum gögnum málsins sést að
maðurinn, sem er á fimmtugsaldri,
Ítrekar óviðeigandi skilaboð
Maðurinn er meðal annars sakaður um að gefa í skyn að stúlkurnar séu vændis-
konur. Fréttablaðið/Ernir
gerir athugasemdir við myndir af
stúlkunum á Facebook og biður
þær um kynferðislega greiða við sig.
Stúlkurnar sem hann herjar á eiga
það sammerkt að aðgangur þeirra
á Facebook er öllum opinn og ekki
þarf að vera vinur til að sjá myndir
eða gera athugasemdir. Þá hefur
Fréttablaðið heimildir fyrir því að
maðurinn hafi þegar verið kærður
fyrir tilraun til að tæla ólögráða
stúlku til að hitta sig. – snæ
Heimavöllur andreu er á Dillon. MynD/aðsEnD
andrea
Jónsdóttir
að vona að einhver myndi skila þessu
fljótlega en það hefur ekki gerst, því
miður. Þetta eru ekki verðmæti fyrir
neinn nema mig, nema viðkomandi
ætli að fara þeyta skífum með geisla-
diskum. Ég vona bara að diskunum
hafi ekki verið fleygt og trúi að ég fái
þá aftur,“ segir Andrea. – bb
Umhverfisráðherra vonar að Jökulsárlón verði allt innan þjóðgarðs Vatnajökuls. Fréttablaðið/Valli
ferðaþjónusta kallar á frekari upp-
byggingu á landinu öllu og þá einna
helst á helstu viðkomustöðum
ferðamanna á ferð sinni um landið.
„Við höfum lengi beðið eftir
uppbyggingu við Jökulsárlón sem
er löngu orðin brýn. Mikill fjöldi
ferðamanna sækir Jökulsárlón
heim á hverjum degi og því mikil-
vægt að hafist verði handa sem
fyrst við uppbyggingu,“ segir Helga
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar. „Ef
rétt reynist að uppbygging frestist
um lengri tíma er það auðvitað
slæmt fyrir ferðaþjónustuna í heild
sinni.“
Fjármálaráðuneyti, umhverfis-
ráðuneyti og forsætisráðuneyti
munu nú skoða málið í framhaldi
af áliti sýslumanns á Suðurlandi og
fara yfir það hvernig jörðinni verður
stýrt. Ekki hefur enn verið ákveðið
hjá hinu opinbera hvernig eigi að
ráðstafa jörðinni eða hvernig eigi
að nýta hana. Kaupverðið var 1.520
milljónir króna.
sveinn@frettabladid.is
tækni Alphabet, móðurfélag
Google, tilkynnti í gær að hætt hefði
verið við áform um að halda úti
internetþjónustu sem hefði byggst
á því að senda þráðlaust merki til
jarðar með drónum.
Verkefninu, sem kallaðist Titan,
var ætlað að koma á netsambandi
á stöðum þar sem slíkt væri ekki til
staðar.
Alphabet rannsakar þó fleiri leið-
ir til þess að láta þennan draum sinn
verða að veruleika. Til að mynda
vinnur hópur innan fyrirtækisins
að verkefni sem kallast Loon. Hug-
myndin er svipuð en í stað dróna á
að notast við loftbelgi.
Talið er að Loon sé hagkvæmari
leið til þess að koma á netsambandi
á afskekktum stöðum. – þea
Google hættir
við netáform
húSnæðiSmál Byggingafélag náms-
manna hyggst byggja 250 til 300 íbúð-
ir á næstu árum og hefur vegna þess
gefið út viljayfirlýsingu ásamt Reykja-
víkurborg. Að því er fram kemur í til-
kynningu er horft til fjögurra svæða.
Fyrsti áfanginn verður bygging 100
íbúða við Stakkahlíð. En þá segjast
Reykjavíkurborg og Byggingafélag
námsmanna vilja ræða við ríkissjóð
um að fá afnot af hluta af lóð Sjó-
mannaskólans við Háteigsveg og
endur skoða fyrirliggjandi deiliskipu-
lag á lóð félagsins þar hjá. „Í leigu-
samningi um lóðirnar verður kvöð
þess efnis að á lóðunum skuli byggðar
eða reknar leiguíbúðir fyrir náms-
menn og að eignarhald þeirra skuli
ávallt vera óbreytt, nema að fengnu
samþykki Reykjavíkurborgar.“ – gar
Ætla að byggja
hundruð íbúða
Hættir vði títan. norDicpHotos/aFp
Í mörg ár hefur
verið beðið eftir
uppbyggingu á svæðinu sem
enn mun tefjast á meðan
málið er fyrir
dómstólum.
Gísli Hjálmtýsson,
stjórnarformaður
Fögrusala
Við höfum lengi
beðið eftir uppbygg-
ingu við Jökulsárlón sem er
löngu orðin brýn.
Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 f ö S t u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-2
D
9
0
1
B
E
F
-2
C
5
4
1
B
E
F
-2
B
1
8
1
B
E
F
-2
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K