Víkurfréttir - 29.05.1997, Síða 12
ÚTBOÐ
Eftirtalin útboðsgögn verða til
sölu á skrifstofu Reykjanesbæjar,
Tjarnargötu 12, Keflavík frá og
með fimmtudeginum
28. maí 1997.
GRUNNSKÓU í
HEIDARBYGGÐ
JARDVINNA - ÚTBOD 1
Um er að ræða jarðvegsskipti undir
væntanlegum skóla og bílastæðum
við Heiðarhvamm.
Hetstu magntölur eru:
Gröftur: 9000 m3
Fyllingar: 8600 m3
Sprengingar: 200 m2
Verki skal lokið 15. ágúst 1997.
Verð útboðsgagna er kr. 1000.
Tilboð verða opnuð að Tjarnargötu
12, fimmtudaginn kl. 11.00.
VEGUR UM
NICKELS VÆDI
Um er að ræða gerð malargötu, um
svokallað Nickelsvæði sem tengja á
Flugvallarveg við Smiðjuvelli.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 450 m3
Fylling: 2000 m3
Verki skal lokið 15. julí 1997.
Verð útboðsgagna er kr. 0.
Tilboð verða opnuð að Tjarnargötu
12, fimmtudaginn 5. júní kl. 11.30.
HREINSUNAR-
DAGAR 1997
Hreinsunardagar standa yfir til
5. júní. Nánari upplýsingar í síðasta
tbl. Víkurfrétta og í Áhaldahúsi
bæjarins, sími 421 1552.
Moldarbanki við Berg er opinn
alla daga kl. 10-22 og um helgar
kl. 13-16. Þar er tekið á móti
garðúrgangi, afklippum og grasi.
HREINN BÆR - BETRI BÆR!
Bæjarstjóri
Menntun og metnaður
Ég undirritaður, kennari við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
hef mikið orðið var við metn-
aðarlausa nemendur undan-
fama mánuði. Ég á við nem-
endur sem nenna naumast að
mæta í tíma, fylgjast með og
sinna heimanámi. Ég hef
reynt hvað ég get til að hvetja
þá og leiða þeint fyrir sjónir
að með sama áframhaldi muni
þeir annað hvort falla eða
skríða með lélega einkunn og
hvorugur kosturinn sé góður.
Margir láta slík orð sem vind
um eyru þjóta og halda upp-
teknum hætti. Síðan rætast
spádómar mínir, því miður.
Margir falla, margir skríða og
margir gefast upp á miðri önn.
Mér finnst ég eyða of miklum
kröftum í að reyna að tosa lata
og áhugalausa nemendur
áfram.
Mér finnst kröftum mínum
best varið til að leiðbeina
áhugasömum nemendum sem
eru staðráðnir í að ná árangri
og haga sér samkvæmt því.
Sem betur fer eru margir dug-
legir og metnaðarfullir nem-
endur í skólanum okkar, en
þeir mættu vera fleiri. Upp til
hópa eru nemendur okkar
ljúfir og elskulegir, en marga
skortir vilja og metnað til að
læra.
Hvers vegna skortir metn-
að?
Ég hef leitað skýringa á þessu
ástandi. Er ég að missa ttugið
sem kennari eða er þetta eins
og hver önnur óheppni að fá
svo marga slaka nemendur
þessa önn? Er þetta bara
svona hjá mér? Ég ræddi mál-
ið við nokkra samkennara og
flestir höfðu svipaða sögu að
segja: Ovenju ntikið er um
áhugalausa nemendur sem
sitja heilu áfangana án þess að
læra neitt.
Hvað er eiginlega að gerast?
Er Fjölbrautaskólanum að fat-
ast ttugið? Þessi mál verða at-
huguð á umræðufundum okk-
ar nú í lok skólaársins og von-
andi verðum við maigs vísari.
En er það á okkar valdi að
leysa þennan vanda? Við
kennararnir mótum líf og
áhugamál unga fólksins ekki
nema að litlu leyti.
Hvaða skýringar finnum við
utan skólans; í þjóðfélaginu,
byggðarlaginu og á heimilun-
um?
Setur rfkisstjórnin mennta-
málin á oddinn? Vill hún veg
skóla og kennara sent mest-
an? Svo er ekki ef marka má
fjárveitingar til framhalds-
skóla. Þar ríkir efnahag-
skreppan enn þótt rofi til ann-
ars staðar í þjóðfélaginu. Rík-
ið sýnir því furðu lítinn áhuga
að gera við okkur kjardsamn-
ing. Ef launakjör okkar sitja
eftir verður erfiðara að fá hæf-
asta fólkið til starfa í skólun-
um.
Vilja Suðurnesjamenn men-
nta börnin sín?
Eru menntamál í öndvegi hér
á Suðurnesjum? Er rætt um
menntun æskunnar og vinnu-
afls framtíðarinnar í fyrirtækj-
um, hjá sveitarstjómum og á
heimilum? Hafa margir
áhyggjur af því að Suðumes
venna botnsætin í könnunum
sem gerðar hafa verið á kunn-
áttu grunnskólanemenda? Jú,
sumir létu í Ijós áhyggjur í
vetur fyrstu vikumar eftir að
tölurnar birtust. En hvað er
verið að gera til að auka gæði
menntunar hér? Er verið að
stíga djörf skref? Svari nú
hver sem getur.
Er það almennt viðtekin skoð-
un að góð menntun sé lykill
að framtíð og hamingju bama
okkar? Fær menntun meira
pláss í Suðurnesjablöðunum
en t.d. fegurðarsamkeppnin?
Trúa menn því í alvöru að á
næstu öld verði gerðar aðrar
og meiri kröfur um menntun
fólks heldur en á öldinni sem
senn fer að kveðja?
Hver er hlutur heintilanna?
Hvetja foreldrar bömin sín til
að láta námið ganga fyrir?
Sýna allir foreldrar nemenda
okkar námi þeirra áhuga? Er
rætt um það á heimilum þeir-
ra? Fá þeir yfirleitt jákvæða
hvatningu? Treysta foreldrar
okkur fyrir því að mennta
bömin þeirra?
Gera allir sér grein fyrir því að
skólanám er meira en fullt
starf þær vikur sem skólinn
starfar?
Menntun eða neyslufvllerí?
Nú fer atvinnuástandið batn-
andi, sem er í sjálfu sér gott,
en þá eykst eftirspurn eftir
vinnuafli nemenda. Fróðlegt
væri að kanna hve margir
nemenda okkar vinna með
námi og hve margar stundir í
viku að jafnaði. I viðtölum við
nemendur mína hef ég komist
að því að margir vinna ótrú-
lega mikið með námi, jafnvel
á mörgum stöðum. Það bitnar
að sjálfsögðu á heimanáminu
og þeir mæta þreyttir og sljóir
í kennslustundir. Margir eru
að vinna sér inn fyrir bíl. enda
verður þrengra á bílastæði
skólans nteð hverju árinu sem
líður. Samt ganga ódýrir
strætisvagnar og rútur til og
frá skólanum.
Hvort skyldi vera skynsam-
legri framtíðarfjárfesting fyrir
unga fólkið; góður námsár-
angur eða bfll til að rúnta á?
Hvort ætli sé varanlegra vega-
nesti til nýrrar aldar? Fróðlegt
væri að kanna vísindalega
hvaða áhrif vinna með námi
hefur á námsárangur. Mín til-
finning er sú að námsárangur
hafi verið töluvert betri við
Fjölbrautaskólann fyrir 2-3
árum þegar kreppan og at-
vinnuleysið var í algleymingi.
Þá kom t.d. í ljós að nemend-
ur luku að jafnaði fleiri náms-
einingum á önn en áður.
Brátt verða birtar niðurstöður
alþjóðlegrar könnunar á kunn-
áttu framhaldsskólanema f
stærðfræði og náttúrufræði
(raungreinum). Ég býst ekki
við neinum húrrarhrópum hér
á Suðurnesjum þá frekar en
þegar grunnskólaniðurstöð-
umar birtust í vetur.
Ég vil sjá hærra hlutfall af
áhugasömum og vel undibún-
um nentendum hetja nám við
Fjölbrautaskólann. Við þurf-
um að veita þeirn eins góða
kennslu og unnt er og útskrifa
meira af góðu, metnarðara-
fullu fagfólki og stúdentum
sem eru tilbúnir að takast á
við háskólanám þar sem ntikl-
ar kröfur eru gerðar. Þá getum
við verið vongóð um að men-
nig og atvinnulíf blómstri hér
á Suðumesjum á næstu öld.
Átaks er þörf
Við þurfum að taka á!
Ástandið batnar örugglega ef
allir Suðumesjabúar leggjast á
eitt, jafnt nemendur og kenn-
arar sem foreldrar og ráða-
menn. Er almennur áhugi á að
taka á þessum málum í fullri
alvöru?
Þoiraldur Örn Arnason
líffrœðingur og kennari
við Fjölbraulaskóla
Suðurnesja.
12
Víkurfréttir