Víkurfréttir - 29.05.1997, Blaðsíða 21
Þau Eydís KonráÖsdótlir og Þrándur Sigurjón Ólafsson sönkuóu aft
scr vcrftlaununi vift útskrill vorannar í Fjölbrautaskóla Sufturncsja sl.
laugardag. Svo skcmmtilcga vill til aft þau cru bæfti böm sérhæfra
lækna á Sufturncsjum, þcirra Konráfts Lúftvíkssonar og Ólafs
I lákanssonar, kvcnsjúkdónialækna vift Sjúkraluís Suftumcsja.
GpHMt
SkógraBktarfébg í mótun
Félagar í Skógræktarfélagi
Suðurnesja hafa að undan-
förnu unnið við gróðursetn-
ingu í Vatnsholti en félagið
fékk þetta svæðið úthlutað
til ræktunar.
Stjórnarmenn í Skógræktar-
félaginu voru á þriðjudag í
síðustu viku að planta skjól-
belti í Vatnsholti. Að sögn
Konráðs Lúðvíkssonar, for-
manns félagsins er ætlunin að
skipta svæðinu í landnema-
skika sem teknir verða í fóstur
og ræktaðir upp undir eftirliti
Skógræktarfélags Suðumesja.
Einstaklingar og félagasam-
tök geta fengið úthlutað skika.
Holtaskóli hefur þegar fengið
úthlutað svæði og hafist
handa. Búið er að skipuleggja
allt svæðið. Gert er ráð fyrir
temasvæði fyrir íþróttaiðk-
anir, leiksvæði og tjöm sem á
vetuma er hægt að hafa sem
skautasvell. Á milli verða
lagðar skokkbrautir.
Hef fyrir skógrækt er lítil á
Suðumesjum, fyrst og fremst
vegna þess að skilyrði em hér
mjög erfið. Konráð segir það
mjög mikilvægt að vanda vel
til verksins og taka heldur
minna fyrir í einu. Ef enginn
árangur sést dregur það úr
athafnagleði fólksins. Það
verður fróðlegt að fylgjast
með vexti skjólbeltisins sem
gróðursett var undir vistvæn-
an plastdúk í aðfluttan
jarðveg. Fyrirtækið Lava lét
félaginu í té mold og
verktakafyrirtæki Sigurjóns
Helgasonar og Halldórs
Magnússonar hjálpuðu við að
gera skurði og koma moldinni
fyrir.
Konráð sagði félagið vera í
mótun og hver hönd væri því
vel þegin. Hann vonaðist til
að Suðumesjamenn samein-
uðust í þörfinni fyrir því að
bæta umhverfið og leggja sitt
af mörkum fyrir móður jörð.
Ákveðið hefur verið að næstu j
þriðjudagar verði nýttir til
gróðursetningar. Fólk er beðið
að mæta með skóflu upp úr
kl. 17 og vinna frameftir
kvöldi. Fyrirhugað er kvöld-
námskeið í skógrækt 3.-4.
júní og hefst með námskeiði í
bóklegri kennslu í Iðn-
sveinafélagshúsinu kl. 20.30 á |
þriðjudagskvöldið. Kvöldið
efitir verður svo verklegt nám-
sekið í Vatnsholtinu á sama
tíma. Þátttaka tilkynnist
Halldóri Leví ísíma421 3800
eða Rebekku Guðfinnsdóttur í
síma 421 3233 eða 5155.
Hlaut gæðaviðurkenningu
Fyrirtækid Haraldur Böðvarsson og Co. í Sandgerdi hlaut nýverid gædaviðurkenn-
ingu frá Coldwater Seafood í Bandaríkjunum fyrir síðasta ár. Ad þessu sinni hlutu 6
frystihús vidurkenninguna og 5 frystitogarar. Þar affóru tvær þeirra til Sudurnesja
en fyrirtækid V. Sveinbjörnsson í Grindavík hlaut einnig gædavidurkenningu.
Keflvíkingurinn Páll Pétursson afhenti fyrirtækinu vidurkenninguna að viðstöddum
starfsmönnum fyrirtækisins sem tóku sér hlé frá vinnu aftilefninu.
VF-mynd: Dagný.
Glóðin kynnir varnarliðsmönn-
um íslenska sjávarrétti
Varnarliðsmenn hafa verið með betri viðskipta-
vinum Glóðarinnar frá því hún opnaði. Þeim finnst
íslenskir sjávarréttir Ijúffengir og þeir tóku því
kynningu frá Glóðinni vel sem veitingahúsið bauð
upp á, í húsnæði kirkjunnar á Keflavíkurflugvelli
nýlega. Þeir fjölmenntu þangað og smökkuðu á
hinum ýmsu réttum, s.s. „flamberuðum" skelfiski,
marineruðu hvalkjöti, laxi, djúpsteiktum rækjum
og fleira góðgæti. Víkurfréttaljósmyndarinn leit
við og smakkaði í leiðinni á Ijúffengum sjávarrétt-
um og var sammála varnariiðsmönnunum um að
þessi matur slægi allt út!
Læknabörní
verðlaunum
o
Víkurfréttir
21