Víkurfréttir - 29.05.1997, Blaðsíða 23
HOm KEFIA'-
]m//re
Boltinn liggurí netinu eftir skaflamark
Jóhanns Gudmundssonar. Albert
Sævarssonar. markvörður UMFG h,
angistaraugum á eftir boltanum. j
1(Ejnynd/Oddaeir.
TOPPNUM!
Keflvíkingar eru í efsta sæti
Sjóvá Almennra deildarinnar í
knattspyrnu eftir 2:0 sigur á
Grindvíkingum í þriðju umferð
sl. sunnudag.
Ragnar Steinarsson kom
heimamönnum í 1:0 með góðu
skoti fyrir utan vftateig. Jóhann
Guðmundsson bætti við öðru
marki skömmu síðar eftir að
Albert Sævarsson, markvöður
hafði varið en missti boltann frá
sér eftir skalla frá
Jóhanni.Ekkert mark var skorað
í síðari hálfleik.
Keflvíkingar voru miklu betri
aðilinn í þessum leik og hafa
leikið mjög vel í fyrstu þremur
leikjunum sem þeir hafa sigrað í
mjög sannfærandi. ,Jú, það er
búið að vera rólegt hjá mér.
Þetta hefur gengið vel og liðið
Itefur smollið saman. Fyrsta
markmiðið var að byrja vel í
deildinni og það hefur tekist.
Svo er bara að halda áfram á
sömu braut“, sagði Olafur
Gottskálksson, fyrirliði
Keflvíkinga eftir sigurleikinn
gegn UMFG.
Grindvíkingar léku ekki vel og
ljóst að þeirra bíður erfitt sumar.
Aðeins Milan Jankovic leikur
eftir getu.
Fjörlegt Landsbankahlaup
Hið árlega Landsbankahlaup
fór fram í 12 sinn laugardaginn
24. maí sl. Góð þátttaka var í
hlaupinu en samtals tóku þátt
222. Allir keppendur fengu
verðlaun fyrir þátttökuna í
hlaupinu og voru sérstök verð-
laun veitt fyrir þrjú efstu sætin í
hverjum aldursflokki.
Margt var gert sér til skemmt-
unar auk hlaupsins. Magnús
Scheving stjómaði dagskránni.
Öllum á staðnum var boðið upp
á pylsur og drykk og léku
krakkamir sér í leiktækjum sem
hafði verið komið fyrir á staðn-
um.
Stúlkur fœddar 1984 og 1985
1. Sigurlaug R. Guðmundsdóttir
6,23
2. Sunna Bjötg Reynisdóttir
6,45
3. Hjördís Emilsdóttir 6,47
Stúlkur fiLddar 1986 og 1987
1. Rut V. Stefánsdóttir 4,28
2. Sandra Helgadóttir 4,37
3. Tara Lind Jónsdóttir 4,54
Drengir l'æddir 1984 og 1985
1. Snorri Rirgisson 5,41
2. Elvar Ami Herjólfsson 5,48
3. Þórir Rafn Hauksson 5,52
Drengir fæddir 1986 og 1987
1. Jóhann Ámi piafsson 4,27
2. Einar Valur Ámason 4.28
3. Róbert Halldórsson 4.30
Friðrik K. Jónsson sigraði í
opna Schweppes mótinu sem
frani fór á Hólmsvelli í Leiru
sl. sunnudag. Þá átti GS sig-
urvegara í þremur flokkum á
móti eldri kylfinga á laug-
ardag. Sigurður Albertsson
var einn þeirra en hann gerði
sér lítið fyrir og fór holu í
höggi á 8. holu fyrr í vikunni.
Ekki alls fyrir löngu fór Ibsen
Angantýsson einnig holu í
höggi á 16. holu. Urslit í
Schweppes og LEK mótinu
urðu annars þessi.
Schweppes mótið
1. Friðrik K. Jónsson.46p
2. Guðni V. Sveinsson ..
3. Haildór Svanbergsson
4. Margeir Vtlhjálmsson
5. Ævar Pétursson .....
6. Sæmundur Hinriksson
,44p
. ,42p
. ,42p
. .41p
. .41p
7. Ivar Hauksson ...........40p
8. Jóhann Júlíusson ........40p
9. Ólafur Jóhannesson........39
10. Kristján Björgvinsson .. .39p
LEK mót án forgj.
1. SigurðurAlbertsson........75
2. Óskar Friðþjófsson .......78
3. Karl Þórðarson............79
Með forgjöf
1. Friðjón Þorleifsson ......64
2. Jón Ólafur Jónsson .......66
3. Karl Þórðarson............66
Konur - með forgj.
1. Hulda Guðmundsdóttir ... .71
2. Gerða Halldórsdóttir......72
3. Agústa Guðmundsdóttir .. .73
Karlar án forgj. yngri flokkur
1. Skúli Agústsson...........69
2. Þorsteinn Erlingsson .....69
3. Magnús Hjörleifsson.......72
Iþróttir f
hverri viku
Sumarblómasala
Unglingaráðs Víðis
verður hjá Sóley í Vík, Garði, helgarnar
30. máí til og með 1. júní, 6. júní til og
með 8. júní og 13. júní til og með
16. júní. Verð kr. 40 pr. stk.
Unglingaráð Knattspyrnudeildar Víðis
Innritun á
haustönn
Innritun vegna náms á
haustönn 1997 verður
dagana 3. -6. júní
kl. 10:00 - 15:00.
Skólameistari
Iþrótta og leikjaskóli
KEFLAVÍKUR
Fyrir stráka og stelpur fædd 1986-1991
Innritun verður dagana 2.-3. júní í íþróttahúsinu við
Sunnubraut kl. 10-16, sími: 421-1771.
Hægt er að velja um að vera kl. 9-12 eða kl. 13-16.
Fyrsta námskeið 4.-24 júní
Annað námskeið 26. júní - 16. júlí.
Námskeiðsgjald er kr. 2500 og greiðist við innritun.
Vegna mikillar aðsóknar eru foreldrar beðnir um að skrá börnin
sín á auglýstum tíma ef þau ætla að tryggja börnunum vist.
Dagskrá verður dreift við innritun.
Nánari upplýsingar í síma 421-3044.
V íkurfréttir
23