Víkurfréttir - 16.10.1997, Side 10
Útgerðarfélag Akureyrar kaupir Aðalvík KE og Njarðvík KE ásamt 1500 tonna kvóta Landsbankans:
Suöurnesjaaðstoöin endar á Akureyri
„skattfrjáls“ hagnaður Landsbankans á sölu skipanna 255 milljónir
„Þetta voru mikil vonbrigði
en það er hægt að sjá það
eftir á að Suðurnesjamenn
áttu ekki að fá skipin og
kvótann. Þetta var bara góð
leiksýning hjá Landsbank-
anum að halda hér fund og
segja að öllu jöfnu ættu
Suðurnesjamenn að ganga
fyrir í þessum viðskiptum“,
sagði Eyþór Jónsson, út-
gerðarmaður hjá Valbirni
hf. í Sandgerði sem ásamt
Fiskanesi hf. í Grindavík
áttu næst lægsta tilboðið í
Aðalvík og Njarðvík ásamt
1500 þorskigildistonnum.
Kaldafell, sem alfarið er í
eigu Útgerðarfélags Akur-
eyrar var með hæsta tilboð-
ið og var gengið frá kaupun-
um í fyrradag.
„Það er auðvitað súrt og mikil
vonbrigði að verða af öllunr
þessum kvóta og síðan að
horfa upp á svona lítinn mun
á tilboðunum. Við teygðum
okkur eins langt og hægt var‘,
sagði Eyþór.
Sérkennilegt mat
Friðrik J. Arngrímsson, lög-
fræðingur og skipasali sem
endurmat skip og aflaheimild-
ir Islenskra aðalverktaka þeg-
ar fyrirtækið var gert að hluta-
félagi í vor er stjómarmaður
og framkvæmdastjóri Kalda-
fels ehf, sem átti hæsta tilboð-
ið í Aðalvík KE og Njarðvík
KE ásamt 1500 þorskígildum.
Gengið var frá kaupum
Kaldafels á skipunum og
kvótanum sl. þriðjudag. Selj-
andinn var Regin hf. dóttur-
fyrirtæki Landsbanka fslands
og auglýsti það „pakkann" til
sölu fyrir skömmu. Þrjú tilboð
bárust. Það hæsta var frá
Kaldafelli upp á 1110 millj.
kr. Næst hæsta var frá Suður-
nesjafyrirtækjunum Fiskanesi
hf. og Valbimi hf. um 50 m.kr.
lægra eða samtals 1050 millj.
kr. Þriðja tilboðið og það
lægsta var frá Vinnslustöðinni
í Vestmannaeyjum.
Friðrik mat skipin og veiði-
heimildirnar í aprfl sl. á 855
milljónir en í ársreikningum
ÍAV um sfðustu áramót voru
þau metin á 358 milljónir.
Óeðlilegt
„Það hlýtur að vera í hæsta
máta óeðlilegt að sami aðili
meti þessar eignir á 855 millj-
ónir í aprfl en er síðan leppur
fyrir Akureyrarfyrirtæki sem
býður rúmar ellefu hundruð
milljónir", sagði ónefndur að-
ili í viðskiptalífinu á Suður-
nesjum í samtali við blaðið.
Þessi sami aðili telur að mat
Friðriks hljóti að orka tvímæl-
is. I mati Friðriks frá 9. aprfl
upp á 855 millj. kr. er gert ráð
fyrir aukningu á veiðiheimild-
um á nýju fiskveiðiári. Því sé
það sérkennilegt að hann sé í
forsvari fyrir 255 milljónum
kr. hærra tilboði aðeins
nokkrum mánuðum síðar.
Miðað við það er ljóst að
eigendur IAV hafa tapað
verulega, ríkið mest auðvitað,
sem meirihlutaeigandi í ÍAV.
Alla vega er það mörgum
óljóst hvernig 855 milljóna
króna mat í vor gat hækkað
um 255 milljónir á rúmum
fimm mánuðum.
Landsbanki hagnast
Landsbankinn, sem fékk skip-
in og aflaheimildimar í sinn
hlut við breytingu á IAV í
hlutafélag, hagnast um 255
millj. kr. við söluna. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
þarf bankinn eða dótturfyrir-
tæki hans ekki að greiða
skatta af hagnaðinunt þar sem
hann á óráðstafað tap.
Aðilar á Suðumesjum buðu í
skipin og veiðiheimildir fyrir
tveimur árum síðan en fengu
það svar þá að þeir yrðu látnir
vita þegar þau yrðu boðin til
sölu. „Við höfunt ekki heyrt í
þeini ennþá“, sagði Eyþór
Jónsson, útgerðarmaður Val-
bjamarhf. f Sandgerði.
„Af hverju voru skipin og
kvóti ekki seld áður en Lands-
bankinn fékk þau í sinn hlut.
Hefði ekki verið eðlilegast að
slíkt hefði verið gert ekki síst í
ljósi þess að Islenskir aðal-
verktakar eignuðust skipin og
hófu útgerð í framhaldi af
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um fjárhags-aðstoð til Suður-
nesja í efnahagslægð á svæð-
inu fyrir nokkrum árum síð-
an“, sagði Þorsteinn Erlings-
son, formaður Útvegsmanna-
félags Suðumesja.
Ríkið notaði IÁV við „fram-
kvæmdina“. Loforðið hljóð-
aði upp á 500 millj. kr. sem
reyndar urðu ekki nema 350
milljónir. Þessar milljónir hafa
síðan hækkað í verði tæplega
þrefalt. Bæði ríkið og Lands-
bankinn hafa því hagnast vel á
Suðurnesja-aðstoðinni. Hún
endar að vísu endanlega á Ak-
ureyri hjá fyrirtæki sem á síð-
asta einu og hálfu ári hefur
tapað mörg hundruð milljón-
um á rekstri sínum en getur
fjármagnað kaupin á Suður-
nesjaskipunum með 200
milljón króna hlutafjárútboði
á genginu fjórum. Til að
tryggja að allt gengi upp
keypti Landsbréf, verðbréfa-
fyrirtæki í eigu Landsbankans
öll bréfin. „Ótrúleg flétta“,
varð einum útgerðannannin-
um að orði.
Erfítt verkefni
Óhætt er að segja að nýráðinn
Landsbankastjóri á Suðumesj-
um, Viðar Þorkelsson fær ekki
auðvelt verkefni á sínu fyrsta
starfsári sem svæðisstjóri LÍ á
Suðurnesjum. Blaðið hefur
heimildir fyrir því að nokkrir
útgerðarmenn í fremstu víg-
línu á svæðinu hafi hótað því
að færa viðskipti sín úr bank-
anum verði kvóti verktaka-
skipanna ekki áfram svæðinu.
Viðar fær það erfiða verkefni
að sætta sára Suðumesjamenn
sem telja sig svikna í þessu
máli.
Fréttir um ad tilboði ÚA í Landsbankaskipin og kvótann hafi verid tekid var eins og köld vatnsgusa
framan í útgerðarmenn á Suðurnesjum í upphafi aðalfundar þeirra i Vogum á þriðjudagskvöldið. Á
myndinni sést i bakið á Valbjarnarstjoranum Eyþóri Jónssyni á tali við Þorstein Erlingsson, formann
Útvegsmannafélagsins og Dagbjart Einarsson, Fiskanesi. Þeir Jón Ægir Ólafsson, HB. & Co, Eiríkur
Tómasson, Þorbirni hf„ bróðir hans Stefán framkvæmdastjóri Útvegsmannafélagsins og Pétur
Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík blaða ísímbréfstilkynningu um niðurstöðu útboðsins.
Áhafnarmeðlimir á Þuríði GK fengu hlýjar móttökur hjá að-
standendum við heimkomuna á sunnudagskvöldið. VF/pket.
Þuríðup GK frá veiðum í mánuð
Tjón á annan tug milljóna varð í
Þuríði Halldórsdóttur GK 94,
sem er í eigu Valdimars hf. í
Vogum þegar eldur kom upp í
skipinu þegar það var á leið á
veiðar síðdegis á sunnudag.
Mesta tjónið er þó vegna nrán-
aðarstopps sem verður vegna
óhappsins að sögn Andrésar
Guðmundssonar, skipsstjóra.
Skipið var komið um 10 sjómfl-
ur norð vestur af Garðskaga
þegar skyndilega blossaði upp
eldur á millidekki. Honum
fylgdi fljótt mikill reykur. Skip-
verjar gátu forðað sér út og að
sögn Agústar Guðmundssonar,
skipsstjóra var áhöfnin aðeins
þrjár mínútur að koma sér út,
loka lofttúðum og fara í flot-
galla en mannskapurinn var ný-
kominn af námskeiði hjá slysa-
varnaskóla sjómanna. Þegar
slökkviliðsmenn komu á vett-
vang en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flutti þá þangað, var eldur
kafnaður og reykur að mestu
koðnaður niður.
Agúst Guðmundsson GK, skip
frá sömu útgerð, var einnig á út-
stými á sama tíma og skammt
frá þegar óhappið varð. Hann
var kominn að Þuríði eftir
nokkrar mínútur og fór öll
áhöfnin yfir í hann þegar búið
var að tengja á milli skipanna,
að skipstjóra og stýrimanni
undanskildum sem voru eftir í
Þuríði til að taka á móti slökkvi-
liðsmönnum. Varðskip var
einnig á nálægum slóðum og
var komið að skipunum rétt á
eftir þyrlunni. Ágúst GK tók
Þuríði í tog og dró hana til
Njarðvíkur. Varðskipið fylgdi
skipunum sem komu í Njarð-
víkurhöfh rétt fyrir miðnætti.
Ágúst skipsstjóri segir að
áhöfnin hafi aldrei verið í hættu
og segist ánægður með hvað
allt gekk vel. Þuríður sem er
270 tonna togari var á leið á
karfaveiðar eftir vikutíma í
slipp.
10
Víkuifiéttir