Víkurfréttir - 16.10.1997, Page 15
ggjfo'
MM Islands /?»
pepsi adidas
DHL-DEILDINIKORFUKNATTLEIK:
r r
KEFLAVIK - KFI fimmtudagskvöld kl. 20
KEFLAVIK-KR laugardagskvöld kl. 20.
í ÍÞRÓTTAHÚSINU í KEFLAVÍK
70 millj. í betni
fótboltaaðstöðu
Fulltrúar bæjarstjómar Reykjanes-
bæjar og knattspymudeilda Kefla-
víkur og Njarðvíkur undirrituðu
verksamninga upp á samtals 68
milljónir króna vegna uppbygging-
ar knattspymusvæða við Iðavelli í
Keflavík og við Vallarbraut í
Njarðvík.
Gert er rað fyrir að kostnaður við
framkvæmdir að Iðavöllum sé um
40 millj. kr. Helstu framkvæmdir
þar verða uppbygging á nýjum
knattspymuvell, breyting á húsinu
Iðavelli 7 í búningsaðstöðu, bygg-
ing stálgrindarhúss fyrir tæki og
tól, girðing umhverfis svæðið,
stækkun á núverandi æfingasvæði,
skjólmanir ásamt frágangi og
snyrtingu.
Við íþróttasvæðið að Vallarbraut í
Njarðvík verður æfingasvæði
stækkað og tyrft, nýjar vatnslagnir
lagðar fyrir vellina, girt umhverfis
svæðið, settar upp skjólmanir
ásamt frágangi og snyrtingu.
Hlutur Reykjanesbæjar á báðum
samningunum er tæpar 55 millj. kr.
og em þeir til 5 ára.
Við þetta tækifæri var Knatt-
spymudeild Keflavíkur afhent 150
þús. kr. úr afrekssjóði Reykjanes-
bæjar fyrir bikartitilinn á dögun-
um.
KARFA næslu daga
í kvöld fá Grindvfldngar Akureyr-
inga í heimsókn og Keflvíkingar Is-
firðinga. A morgun mæta Njarðvík-
ingar Sauðkræklingum á útivelli.
Með „Stólunum“ leika 2 leikmenn
sem léku með Njarðvík í fyrra, þeir
Torrey og Sverrir, og gaman verður
að sjá þessa fyrrum samherja kljást.
Á laugardaginn fá Keflvfldngar Vest-
urbæinga í heimsókn og á sunnudag-
inn kljást Njarðvíkingar og Haukar
annarsvegar og Borgnesingar og
Grindvfldngar hins vegar.
Kvenfólkið á
undirhögg
að sækj'a í
körfunni og
liðum hefur
fækkað um
nær helming
á tveimur
árum.
Jóhannes
Kristbjörns
son tók
púlsinn á
kvenna-
körfunni.
■■■■
Islandsmót 1. deildar kvenna
hófst í síðustu viku og er 2
umferðum lokið. Deildin á
undir högg að sækja og hefúr
liðum fækkað enn. Nú eru
aðeins 6 lið í efstu deild en
vom 10 fyrir aðeins 2 árum
síðan. Sterkustu lið landsins,
Keflavík og Grindavík koma
af Suðumesjum. Þriðja lið
svæðisins, Njarðvík, sendir
ekki lið til keppni í meistara-
flokki að þessu sinni.
Grindvíkingar sem urðu
nokkuð óvænt Islandsmeist-
arar á síðasta ári hafa styrkt
lið sitt enn. Bima Valgarðs-
dóttir er komin frá Keflavík,
Hólmfríður Karlsdóttir frá
Njarðvík og Svanhildur
Káradóttir er byrjuð aftur eft-
ir hlé. Þá mun Anna Dís
Sveinbjörnsdóttir leika með
liðinu áfram en hún hugðist
leika erlendis í vetur. Lið
Grindavfkurstúlkna er ekki
árennilegt og ekki veikan
blett að fínna á því. Þjálfari
liðsins er Jón Guðmundsson
en hann þjálfaði Keflavíkur-
stúlkur á sfðasta ári. Að sögn
Jóns er ekki um annað að
ræða en að vinna báða titlana
sem eftir eru en stúlkumar
urðu á dögunum Meistarar
Meistaranna eftir viðureign
við lið Keflvíkinga.
Bikarmeistarar Keflvík-
inga tefla fram firnasterku
liði sem endranær. Þær hafa
þó orðið fyrir áföllum því
Björg Hafsteinsdóttir er hætt
og Bima Valgarðsdótúr gekk
helsta keppinaumum á hönd.
Liðið hefur þó endurheimt 2
leikmenn úr námi frá Banda-
ríkjunum þær Kristínu Þórar-
insdóttur og Kristínu Blön-
dal. Þá er Harpa Magnús-
dóttir komin frá Njarðvík.
Þjálfari liðsins er Anna María
Sveinsdóttir sem til margra
ára hefur verið talin besta
körfuknattleikskona landsins.
Keflavíkurstúlkur hafa á síð-
ustu 10 árum unnið samtals
15 Islands- og Bikarmeist-
aratitla og setja að sjálfsögðu
stefnuna á báða titlana. Þess-
ar stúlkur hafa verið stríðald-
ar á meistaratitlum vilja ekki
kost annan.
Ljóst er að baráttan um titl-
ana verður á milli okkar
stúlkna en K.R og I.S koma
þar næst á eftir og gætu hæg-
lega blandað sér í titilslagina.
Lið Í.R og Breiðabliks eru
getulega langt að baki topp-
liðunum og koma til með að
verma botnsætin.
Blóðtakan hefur verið Njarð-
víkurstúlkum um megn.
því þær töpuðu of mörgum
leikmönnum í nám erlendis
og önnur tímabundin verk-
efni til þess að þær sæju sér
fært að senda lið til keppni að
þessu sinni. Að sögn Gunn-
ars Þorðvarðarsonar, for-
manns kd. UMFN, er ekki
um neina uppgjöf að ræða
hjá félaginu. Blóðtakan hafi
verið liðinu um megn að
sinni en markviss uppbygg-
ing yngri flokka muni skila
sér í frambærilegu meistara-
flokksliði í náinni framtíð.
Keflvíkingurinn Þórarinn
„bjargvættur“ Kristjánsson hefur
síðustu daga dvalið við æfíngar
hjá stórliði Man. Utd. í Englandi
og fyrir nokkrum dögum höfðu
forráðamenn Arsenal samband
við Keflvíkinga og óskuðu eftir
því að fá að líta á Þórarinn.
Bjargvætturinn ntun því hugsan-
lega hitta fyrir Hauk Inga
Guðnason en hann er nú í
Liverpool og heldur síðan til
Arsenal og PSV Eindoven í
Hollandi.
Tveir Keflvíkingar, Jakob Már
Jónharðsson og Eysteinn
Hauksson eru nú hjá Velje f
Danmörku við æfingar og munu
eitthvað leika með liðinu. „Þeim
var tekið með kostum og kyn-
jum og þeir eru mjög ánægðir
með allt þarna", sagði Kjartan
Másson, framkvæmdastjóri
Knattspymudeildar Keflavíkur.
Jón Ingi ósameistari
Jón Ingi Ægisson, „Vogavélmenniö", hefur verið í miklu
stuði í snókermótunum undanfarið. Hann sigraði í 4. ásamót-
inu á Knattborðsstofu Suðumesja í fyrrakvöld. Hann lagði
Hólmar Tryggvason í úrslitaviðureign 3:2.
Jón Ingi er efstur að stigum eftir fjögur mót með 350 stig. |
Jón Olafur Jónsson annar með 240. I 3.-4. sæti koma þeir
Hólmar og Kristján með 155 stig hvor. Dropamótið verður
haldið um helgina og er skráning hafin í síma 41 3822.
Eggjabikarínn eftir bókinni
Úrslit í fyrstu umferð Eggjabikarsins voru eftir bókinni og mæt-
ast eftirfarandi lið í 8 liða úrslitum 23-26 okt.: ÍA-KR, Haukar-
Njarðvík, KFÍ-Keflavík og Tindastóll- Grindavík. 3 dómarar
dæmi leikina í Eggjabikamum og gaman verður að sjá hvemig
til tekst, kannski Eggert(í þriðja veldi) í Eggjabikamum. Brott-
hættir leikir þar.
Víkurfréttir
15