Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.10.1997, Page 17

Víkurfréttir - 29.10.1997, Page 17
Frá undirritun þjónustusamnings Reykjanesbæjar og OK sam- skipta. F. v. Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari, Ellert Eiríksson, bæjarstjóri og Jón Fannar Karlsson, stjórnarformaður OK. Nýtt upplýsingakerfi Reykjanesbæjar. Það viðamesta sem gert hefur verið fyrir sveitafélag eða opinberan aðila að færa inn fundargerðir beint á Netinu og hver stofnun og hver starfsmaður hefur sína eigin upplýsingasfðu sem hægt er að uppfæra á einfald- an hátt. Jafnframt hafa starfsmenn að- gang að dagbók þar sem þeir skrá fjarverur sínar þannig að þeir sem leita til þeirra heima- síðu viti hvenær þeir eru væntanlegir aftur. Gjaldskrár vegna þjónustu bæjarins eru birtar og upp- Reykjanesbær og OK sam- skipti ehf. kynntu sl. mið- vikudag nýtt upplýsinga- kerfi bæjarfélagsins sem er eitt það viðamesta sem gert hefur verið fyrir sveitarfélag á Islandi. Upplýsingakerfið veitir öllum almenningi auðveldan aðgang að upplýsingum um Reykja- nesbæ og er einnig hugsað sem vinnuumhverfi fyrir starfsmenn Reykjanesbæjar. Stór hluti kerfisins er því ein- ungis sýnilegur og ætlaður starfsmönnum en upplýsingar gagnlegar almenningi og öðr- um notendum kerfisins eru dregnar á sjálfvirkan hátt út úr því og birtar þar sem við á. Fullkomið vefkerfi sem býð- ur upp á einfalda stjórn og þægilega uppfærslu Vinna við upplýsingakerfið hófst sl. haust og var hún í höndum fyrirtækisins OK samskipti ehf. í Keflavík sem sérhæfir sig m.a. í framsæk- inni heimasíðugerð. Akveðið var að byggja kerfið upp á gagnagrunnum sem er nýtt af nálinni og telja forráðamenn OK samskipta að óvíða megi finna jafn fullkomið vefkerfi sem býður upp á eins einfalda stjóm og þægilega uppfærslu. Þegar komið er í upplýsinga- kerfi Reykjanesbæjar blasir fyrst við sjálfvirkt fréttabréf bæjarins þar sem fram koma fréttir og tilkynningar sem starfsmenn hafa fært inn. Nefndarmönnum er gert kleift ta, f. v. Sigurður Pétursson, Fannar Karlsson, Pór Pétursson og Ásgeir Jónsson. aldar og ég tel að það hafi tek- ist frábærlega vel til með hönnun og gerð kerfisins. Grunnur þess er Handbók Reykjanesbæjar sem gefin var út á vegum bæjarfélagsins. Nútíma tækni býður upp á þessa nýjung sem Intemetið | er og við vonumst til að upplýsingakerfið eigi eftir að verða bæði starfsmönnum og bæjarbúum gott verkfæri til að koma upplýsingum á fram- færi sem og að nálgast þær“, sagði Ellert Eiríksson, bæjarstjóri. Við þetta tækifæri undin ituðu j forráðamenn bæjarfélagins og j OK samskipta þjónustusamn- j ing sem felur í sér að OK samskipti hafi yfirumsjón með upplýsingakerfinu og uppfæri það í samvinnu við staifsmenn Reykjanesbæjar. -tíJa imtda&ci r á 'TElecqa n & DIACOLOR hárskol gefur fallegan glans í hárið, án ammoniaks Tilbob: Skol +15 ml. ilmvatn frá KOOKAI eða MAROUSSIA Stutt hár kr. 1600.- Milli sítt kr. 1800.- Sítt hár kr. 2000.- ’&*?«** \oska mm m Shompo e®m Tilbp05- Vatnsnestorgi - Keflavík - Sími 421-4848 Skref inn í upplýsinga- samfélag nýrrar aldar -segir Ellert Eiríksson, bæjarstjóri um internetevæðingu bæjarins færðar af viðkomandi um- sjónaraðila. Fjárhagsáætlanir eru birtar á aðgengilegu formi og þær uppfærðar um leið og nýjar berast. A upplýsingakerfinu má finna nöfn allra skráðra fyrirtækja, samtaka, stofnanna og félaga í Reykjanesbæ og helstu upp- lýsingar um þau. Fyrirtækin eru flokkuð eftir atvinnu- greinaflokkun Hagstofu Is- lands og eru uppfærð reglu- lega. Almenningur getur tekið þátt í bæjarmálaumræðum Margs konar kort eru birt af Reykjanesbæ. Má þar nefna götu- og gönguleiðakort auk strætisvagnaleiða og helstu bygginga. Menningarviðburðir eru skráðir jafnóðum og geta skipuleggjendur slíkra við- burða áætlað tímasetningu miðað við aðra skráða við- burði. Ekki má gleyma áhrifum al- mennings sem getur sent inn fyrirspurnir, ábendingar og tekið þátt í umræðum um ýmis málefni á sérstökum umræðugrunni í upplýsinga- kerfinu þar sem erindi eru flokkuð eftir málefnum og málaflokkum. Ótalin eru margvísleg atriði sem auð- velda leit í kerfinu. Hægt er að nálgast upplýsingar beint í gegnum stjórnkerfishlutann og aðra hluta kefisins eða í gegnum síður þar sem efnið hefur verið flokkað niður á mjög aðgengilegan hátt. í þriðja lagi er svo hægt að nálgast efni beint í leitarvél. „Við emm að stíga skref inn í upplýsingasamfélag nýrrar Leikfélag Keflavíkur: Starfsemin að hefj- ast í nýju leikhúsi Nú fer starfsemi Leikfélags Keflavíkur að hefjast að nýju en eins og flestir vita hafa fé- lagsmenn unnið hörðum höndum undanfarna mánuði við uppbvggingu leikhúss að Vesturbraut 17. í Keflavík. Nú þegar leikhúsið er tilbúið er ekki eftir neinu að bíða og mun félagið halda almennan félagsfund laugardaginn 1. nóvember n.k. kl. 13.00 í nýja leikhúsinu þar sem kynnt verður næsta \erkefni. Fundurinn er öllum opinn og eru félagsmenn og allir sem áhuga hafa á að vera nieð og kynnast starfsemi leikfélags- ins hvattir til að mæta. V íkurfréttir 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.