Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 29.10.1997, Qupperneq 27

Víkurfréttir - 29.10.1997, Qupperneq 27
Keflvikingar og Njarðvikingar Eggjabikarsins i Lið Reyknesbæinga tryggðu sér um síðustu helgi sæti í 4 liða úrslitum Eggjabikarsins. Keflvíkingar sigruðu í báðum leikjum sínum gegn ísfirðing- um. Sigur vannst á útivelli - 81-84 þar sem bakverðimir skoruðu 69 af 84 stigum liðs- ins. Tryggði Falur Harðar þeim sigurinn með 4 vítum á lokamínútunni. Stigahæstir voru Falur með 31 stig og Guðjón 19. A heimavelli sigruðu Keflvíkingar 84-72 í miklum áfallaleik því Banda- ríkjamenn beggja liða voru reknir í bað í kjölfar ryskinga innan vallar. Þá meiddist Birgir Ö. Birgis undir lok leiksins. Falur var stigahæstur eins og í fyrri leiknum með 25 en vert er að geta frammi- stöðu nýliðans Fannars Ólafs- sonar sem skoraði 13 stig og tók 8 fráköst í fjarveru Ding- les og Birgis. Lína leikjanna: Falur Harðar- son, 56 stig, 12 stoðsendingar og 3 stolnir boltar. Njarðvfkingar töpuðu fyrir Hafnfírðingum á útivelli 74- 70. Eftir jafnan fyrri hálfleik áttu Njarðvíkingar á brattann að sækja í seinni hálfleik og töldust heppnir að halda mun- inum í lágmarki. Stigahæstir voru Dalon með 29 og Friðrik 19. I Njarðvík reyndist vöm Njarðvfkinga of sterk fyrir Hauka sem gáfu eftir í seinni hálfleik enda með alla lykil- menn í villuvandræðum. Sóknarleikur heimamanna skilaði þó aðeins 77 stigum en vömin leyfði aðeins 64. Teit- ur Örlygs var með 23, Örvar 17 en Dalon og Páll 12 hvor. Lína leikjanna: Dalon Bynum 40 stig, 30 fráköst, 3 stoðsendingar og 5 stolnir boltar. Sauðkræklingar tóku Grind- víkinga í gegn á Sauðarkróki og unnu 88-68. Pétur Guð- mundsson, fyrirliði Grindvík- J.ólTannes Kriséjömsson inga, sagði sína með ekki hafa mætt með rétt hugarfar í leik- inn og úrslitin eftir því. Rúnar Sævarsson var frískastur Grindvíkinga en D.J Wilson skoraði mest 25 stig. Grind- víkingum tókst næstum hið ómögulega á heimavelli er þeim tókst að vinna upp tutt- ugu stiga forskot Sauðkræk- linga frá þvf í fyrri leiknum 96-76. Allt púður var úr skyttum Grindvíkinga í fram- lengingunni enda Helgi, Wil- son, Pétur famir af velli með 5 villur og Unndór Sigurðsson meiddur. Lauk leiknum 106- 100 og fögnuðu Sauðkræk- lingar fyrstu ferð sinni í úr- slitaleiki Eggjabikarsins. Lína leikjanna: Torrey John, 72 stig og 20 fráköst. Urslit Eggjabikarsins verða helgina 13-15 nóvember. Leika Keflvíkingar gegn KR- ingum og Njarðvíkingar gegn Sauðkræklingum á fimmtu- dagskvöldi en úrslitaleikurinn verður síðan á laugardag. Næstu leikir í DHL-deildinni I kvöld fá Grindvíkingar Damon Johnsson og félaga úr IA í heimsókn en Njarðvík- ingar heimsækja Valsmenn að Hlíðarenda. Annað kvöld heimsækja Kefl- víkingar hið geysisterka lið Sauðkræklinga. Tveir Islandsmeistarar í snóker Snókerleikarar af Suður- nesjum voru í eldlínunni í Islandsmótinu um sfðustu helgi en þá urðu jreir Jón Ingi Ægisson og Jón Örvar Arason íslandsmeistarar. Jón Ingi sigraði í 1. flokki og Jón Örvar í 2. flokki. Snókerinn er í fullu gangi í Keflavík og Kristján Kristjánsson sigraði í sjötta ásamótinu en hann lagði Guðmund Stefánsson í úrslitaviðureign 3:2. Jón Ingi og Kristján eru efstir og jafnir í stigakepp- ninni með 350 stig. Keílavíkurstúlkur töpuðu toppslagnum Keflvíkingar töpuðu toppslag deildarinnar er þær heimsóttu KR-inga síðastliðinn miðvikudag. Leikurinn var æsispenn- andi og bauð upp á frábær tilþrif beggja liða. Eins og oft í slíkum leikjum ráðast úrslitin af síðasta skotinu og það var Vesturbæinga að þessu sinni. Suðumesjastúlkumar sýndu frábæra baráttu og eiga allar hrós skilið fyrir góða skemmt- un. Ef að líkum lætur láta Keflavíkurstúlkur sóknarvillu á síðustu sekúndunum ekki ráða úrslitum er KR-ingar koma í heimsókn næst. Stigahæstar voru Erla Reynis með 19. Kristín Blöndal og Anna Man'a skoruðu 12 hvor. Njarðvíkingar með nýjan Kana í sigtinu Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFN og þjálfari liðsins ákváðu í gær að reka Dalom Bynum. Að sögn Friðrik Rún- arssonar, þjálfara, |jótti Dalon ekki standa sig sem skildi og vera búinn að missa traust leikmanna og því hafi ekki verið stætt á öðm en að láta hann fara. Njarðvíkingar hafa ekki setið með hendur í skauti heldur hafa jteir haft samband við og vonast til að ná samningi við nýjan bandarískan leik- mann, Petey Sessoms, sem er 197 cm, 95 kg blökkumaður sem lék sinn háskólaferil með Old Dominion háskólanum. Til gamans má geta að Sessoms jressi lék í sumar með sama liði og hinn skemmtilegi leikmaður Hauka Sherrick Simpson og skilaði síst verri tölulegum staðreyndum. Framfarir í dómaramálum Bandaríkjamennimir Dana Dingle og David Bevis sem vom reknir af leikvelli í leik liðanna í Eggjabikamum vom ekki dæmdir í leikbann af aganefnd KKI. Eftir að hafa skoðað atburðinn á myndbandi kom í Ijós að brot |xún'a verðskuld- uðu ekki leikbann. Óvíst með Birgi Birgir Öm Birgisson. einn lykilmanna Keflvíkinga, fékk rnikið höfuðhögg í leiknum gegn ísflrðingum og þurfti að eyða nóttinni á Sjúkrahúsi Keflavíkur með heilahristing. Ekki er útséð með hvort Birgir getur leikið nteð liðinu á föstudag gegn Sauðkræklingum en hann hefur ekkert getað æft síðan hann meiddist. Snókerstofan Grófinni S Keflavík Opii alla daga frá kl, 11.30 til 23.30, ^némkó^ °3 fottasir é liixHnui TILBOD OG AFSLÆTTIR HAUSTDÖGUM!!!!! Víkuifréttir 27

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.