Víkurfréttir - 07.10.1999, Side 9
Jóhann neitar að klóra yfir skítinn
Jóhann Geirdal (J) sagði á síð-
asta bæjarstjórnarfundi að
nauðsynlegt væri að bæjar-
stjómin tæki „Casino-málið”
til efnislegrar umfjöllunar.
Hann benti á að mögulegt
væri að ýmis leyfi hefðu verið
veitt á röngum forsendum,
þ.e. að menn hefðu ekki vitað
að þetta ætti að vera nektar-
dansstaður. Jóhann hélt áfram
og sagði að bæjarstjómarfull-
trúar yrðu að skoða vel hvort
rétt hefði verið staðið að af-
greiðslu málsins en ekki reyna
að klóra yfir eigin skít.
Þá tók Kjartan Már Kjartans-
son (B) til máls og tók sér-
staklega fram að hann teldi sig
ekki eiga þennan skít sem Jó-
liann talaði um. Hann sagði að
málið hefði ekki farið rétta
L:Rlil: 11L LLAL’blKb'
leið því menn hefðu vitað til
hvers ætti að nota húsið þegar
leyfi voru veitt og auk þess
var umræddur veitingamaður
þegar með áfengisveitinga-
leyfi. Kjartan lagði til að mál-
ið yrði ekki tafið frekar og
bæjarstjómarfulltrúar og fleiri
sem sáu um afgreiðslu rnáls-
ins, ættu að læra af reynsl-
unni.
Böðvar Jónsson (D) tók næst-
ur til máls og sagði að nú
væru fulltrúar J-listans að
finna sér leið til að skafa upp
skítinn eftir sjálfan sig, en þeir
hefðu fengið mörg tækifæri til
þess á undangengnum fund-
um bæjarstjórnar og bæjar-
ráðs. Böðvar sagði það hefði
verið rangt að leyfa, títtnefnd-
um veitingamanni, að halda
áfram framkvæmdum og veita
honum öll leyfi, vitandi hvað
ætti að fara þarna fram. Ef
bæjaryfirvöld hafi aldrei ætlað
að leyfa nektardansstað að
opna í Reykjanesbæ, þá hefði
átt að stöðva framkvæmdir
við skemmtistaðinn strax. Til-
lagan um að taka málið til
efnislegrar umfjöllunar var
borin undir atkvæði og sam-
þykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
LífæOar á
i
Myndlistar- og Ijúðasýn-
ingin Lífæðar verður sett
upp á ellefu sjúkrahúsum
víðsvegar um landið á árinu
1999 í boði lyfjafyrirtæk-
isins Glaxo Wellcome á
Islandi. Sýningin verður
opnuð á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja föstudaginn 8.
október kl. 15.
Islenska menningarsam-
steypan ART.IS gengst fyrir
myndlistar- og ljóðasýningu,
sem hlotið hefur nafnið
Lífæðar, á sjúkrahúsum
víðsvegar um landið á árinu
1999.
Sýningunni var hleypt af
stokkum á Landspítalanum af
heilbrigðisráðherra og for-
stjóra Ríkisspítala í byrjun
janúar sl. en þaðan fór hún til
sjúkrahúsanna á Akranesi,
Isafirði, Sauðárkróki, Akur-
eyri, Húsavík, Vopnafirði,
Seyðisfirði og Selfossi. Tíundi
og næst síðasti viðkomustaður
sýningarinnitr á hringferð hen-
nar um landið er Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja þar sem
hún verður opnuð föstudaginn
8. október kl. 15. Sýningunni
á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja lýkur 6. nóvember, en
þaðan heldur hún til
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Atvinna
Starfsfólk óskast til ræstingastarfa.
Upplýsingar 421 3451.
Nýr og betri Subway ... ma
Opnum á Hafnargotu 32
laugardaginn 9. oktober
Opnunartilboð laugardag og sunnudag
2.
Þú kaupir eina 6 tommu og miðstærð
af Coca-Cola og færð aðra 6 tommu
fría*.
Fjölskyldutilboð:
Þú kaupir tvær 12 tommur og 2
lítra af Coca-Cola og færð eina 12
tommu fría'.
•Qlldir aðelns 9. og 10 október. Qildir ekhl með öðrum tllboðum
Qreltt er fyrir dýrarl kafbátana.
-suBuiny'
Ferskleiki er okkar bragð.™
tlAFMARQÖTU 32 - KEPLAVÍK - 5Íhl 421 7756
Víkurfréttir
HAUSTDAGAR 1999