Víkurfréttir - 07.10.1999, Qupperneq 10
Foreldrafundur hjá
i
Foreldrafundur og skráningar-
dagur hjá stúlkum í 3.-5.
flokki í fótbolta. Fundurinn
verður haldinn í K-videó á
fimmtudaginn 7. október
klukkan 20:30. Foreldrar eru
beðnir um að hafa stundatöfl-
ur stúlknanna meðferðis í
skráninguna.
Kvennaráð.
Atvinna
Málmidnaðarmenn og lagtæka
menn vantar til starfa.
Upplýsingar í síma 426 8666.
Vélsmiðjan Viðvik, Grindavík.
Á meðfylgjandi mynd er Einar Lárusson, faramleiðslustjóri Fiskaness að afhenda Wang Rong-
hua, sendiherra Kína á íslandi, gjöf sem tákn um fyrstu tengsl milli Kína og Grindavíkur.
Sendiherra Kína í Grindavík
Atvinna
Smidir óskast á verkstæði, mikil
vinna framundan. Upplýsingar
gefur Viðar Jónsson í símum
894 2968 eða 854 2968, og
á kvöldin í síma 42 7 2625.
Föstudaginn 10. september sl.
kom sendiherra kínverska Al-
þýðulýðveldisins, Wang
Ronghua, ásamt eiginkonu
sinni og ráðgjöfum, í heim-
sókn til Grindavíkur. Heim-
sóknin var sú síðasta á ferð
hans um landið til að kynnast
landi og þjóð. Einar Njálsson,
bæjarstjóri, tók á móti sendi-
nefndinni fyrir hönd Grind-
víkinga ásamt Guðmundi Em-
ilssyni menningarfulltrúa og
Róberti Ragnarssyni ferða-
málafulltrúa. Sendiherrann
ræddi við bæjarstjóm um lífs-
ins gagn og nauðsynjar í há-
degisverðarboði á Veitinga-
húsinu Jenný og þakkaði fyrir
sig með ljóðaflutningi á móð-
urmáli sínu. Ferðinni var síð-
an heitið í lagmetsiðju Fiska-
ness hf. þar sem sendinefndin
skoðaði kavíaiframleiðslu og
smakkaði á veigunum. Fiska-'
nes hefur stundað mikil við-
skipti við Kína og fór vel á
með mönnum. Því næst var
Grunnskóli Grindavíkur
heimsóttur og tók yngsta kyn-
slóðin vel á móti þessum er-
lendu gestum með fallegum
söng og fiðluleik. Að lokum
var ferðinni lieitið í stolt okkar
Grindvíkinga, Bláa Lónið, og
ýr baðstaður skoðaður. Að
endingu má minnast á það að
sendiherrann orti ljóð um
komu sína hingað, svo hriftnn
var hann.
Kær kveðja
Róbert Ragnarsson
Ferðamála- og markaðs-
fulltrúi Grindavíkur.
Hafnargata 54 • Keflavík • S: 421 4800 • Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 10-14
HAUSTDAGAR 1999
Víkurfréttir