Víkurfréttir - 03.02.2000, Side 24
Maður ársins
á Suðurnesjum
1990-1998
1990 Dagbjartur Einarsson
1991 Hjörtur Magni Jóhannsson
1992 Guðmundur Rúnar Hallgrímsson
1993 Guðjón Stefánsson
1994 Júlíus Jónsson
1995 Þorsteinn Erlingsson
1996 Logi Þormóðsson
1997 Steinþór Jónsson
1998 Aðalheiður Héðinsdóttir
1990 / Dagbjartur Einarsson
Dagbjartur Einarsson forstjóri
Fiskaness hf. í Grindavík varð
fyrstur valinn maður ársins af
Víkurfréttum fyrir réttum
áratug síðan. Dagbjartur hafði
þegar útnefningin átti sér stað
rekið fyrirtækið í 25 ár.
Fyrirtækið veitti 150 manns
vinnu.
„Þegar maður hugsar til baka
|rá er garnan að vita til þess
hvað þetta hefur gengið vel.
Kannski er það lítillætið, en
maður er þekktari fyrir það að
berja sér alla tíð, svo segir
konan alla vega og ýmsir
fleiri," sagði Dagbjartur við
upphaf viðtalsins í
Víkurfréttum í ársbyrjun 1991.
Dagbjartur sagði galdurinn við
rekstur sjávarútvegsfyrirtækis
að fara gætilega í fjárfestingar
og l'ara ekki of langt í einu,
taka þetta meira skref fyrir
skref.
I viðtalinu var komið inn á
áhugamálin, en Dagbjartur er
þekktur fyrir áhuga sinn á
íþróttum og eitthvað hefur
hann fengist við landbúnaðar-
störf.
„Mín áhugamál tengjast helst
landbúnaði. Minn draumur
sem bam var að verða bóndi“.
Og meira úr æskuntinningunni
um ferðir til Reykjavíkur, sem
famar voru einu sinni til tvisvar
á ári: „Eitt af því sent vakti
furðu mína þegar ég kom
þangar var að sjá allt þetta fólk
í sparifötum. Skildi ekki neitt í
þessu, hvort það ynni enginn
neitt í Reykjavík. Eg vildi ekki
upplifa slíkt, að ganga alltaf um
í sparifötum, því það sem mér
fannst verst, var þegar mamma
var að troða mér í sparifötin á
sunnudögum'k
Fyrirtækið hjá Dagbjarti hefur
haldið áfram að vaxa og dafna.
1991 / Hjörtur Magni
Jóhannsson
Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son, þá sóknarprestur í Utskála-
kirkju og Hvalsneskirkju var
valinn maður ársins 1991 af
Víkurfréttum. Margir voru
nefndir til leiks en það var álit
nefndarinnar að velja Hjört
Magna sem samnefnara fyrir
kirkjunnar þjóna sem höfðu
tekist á við mörg verkefni og
það mörg erfið á undangengnu
ári.
„Mér er þetta mjög rnikils virði
og met það mikils að
Víkurfréttir skuli meta það starf
sem fram fer í kirkjunni þetta
mikils. I kirkjunni er unnið
mikið starf og margt af því sem
við prestamir vinnum þar fer
fram frammi fyrir hópi fólks en
stærsti hluti starfsins er unninn
í kyrrþey með syrgjendum,"
sagði Hjörtur í viðtalinu við
Víkurfréttir.
Undir lok viðtalsins var spurt
hvort fararsnið væri á presti.
Hann sagði það óvíst en raunin
varð sú að Hjörtur fór utan í
nám til Edinborgar í Skotlandi
og fljótlega eftir að hann kom
heint var hann ráðinn í stærri
söfnuð, til Fríkirkjunnar í
Reykjvík.
1992/Guömundur Rúnar
Hal Igrímsson
Utgerðarmaðurinn Guðmundur
Rúnar Hallgrfmsson var
kjörinn maður ársins 1992 og
var þetta þriðja útnefning
blaðsins. I inngangi að viðtali
við Guðmund í ársbyrjun 1993
er sagt að með tilkomu kvóta
og samverkandi þátta hafi
orðið breyting á útgerðar-
ntálum á svæðinu. Nokkrir
útgerðarmenn og skipstjórar
hafa staðið uppúr fyrir dugnað
og fiskisæld. Einn þeirra er
Guðmundur Rúnar Hallgríms-
son útgerðarmaður Happasæls
KE.
Það getur verið slæmt fyrir
sjósóknara að vera illa haldnir
af sjóveiki. Kom aldrei til
greina annað ævistarf?
„Eg held að það hafi aldrei
verið neitt annað í hausnum á
manni. Reyndar var ég oft í
landi því ég var svo rosalega
sjóveikur þegar ég var yngri".
Guðmundur Rúnar sýndi okkur
ör á báðum augum sem rekja
má til sjóveikinnar. Annað
skiptið steyptist hann niður í
vélarrúm og í hinu tilvikinu
steinlá hann úti á dekki með
bullandi sjóveiki.
Útgerð Happasæls hefur verið
vaxandi og nú er nýtt glæsilegt
skip í smíðum í Kína fyrir
útgerðina.
1993 / Guðjón Stefánsson
Sókn á varnartímum, var
yfirskrift viðtalsins við Guðjón
Stefánsson, mann ársins á
Suðumesjum 1993. Þetta var
árið sem Kaupfélag Suðumesja
keypti Miðvang í Hafnarfirði
og tók ákvörðun um opnun
lágvöruverðsverslunarinnar
Kasko. A því herrans ári velti
Kaupfélagið 1,8 milljörðum
króna og jók veltuna um 31 %
frá árinu áður.
Bónus-feðgar voru á þessum
tíma orðaðir við Keflavík, en
Guðjón sagði ekki pláss fyrir
fleiri verslanir á svæðinu. Það
þyrfti 15.000 manna byggð
fyrir lágvöruverðsverslun og
ein slík væri fyrir. Guðjón
sagði í kjölfar opnunar Kasko
yrði rekstur allra kaupfélags-
verslananna skoðaður og
hugsanleg yrði fækkuti
verslana skoðuð.
Frá því þetta var skrifað hefur
Kaupfélag Suðumesja vaxið og
dafnað. Samkaup hf. var
stofnað urn rekstur matvöru-
verslana og kjötvinnslu en
kaupfélagið sjálft rekur
eingöngu fasteignir. Samkaup
hf. hafa opnað, auk verslana á
Suðumesjum, I Hafnarfirði, á
ísafirði, í Reykjavík og á
Egilsstöðum og í fjörðum
eystra. Fyrirtækið er í mikilli
sókn og telst rneðal þeirra stóm
í matvöruverslun á íslandi í
dag.
1994 / Júlíus Jónsson
Óskabarn Suðurnesja um
rnargra ára skeið hefur verið
Hitaveita Suðurnesja og það
var forstjóri hennar, Júlíus Jón
Jónsson sem var kjörinn maður
ársins 1994 á 20 ára afmæli
fyrirtækisins. Hann sagðist í
viðtali við Víkurfréttir ekki
síður líta á útnefninguna sem
viðurkenningu til starfsmanna
og stjórnarmanna Hitaveitu
Suðurnesja. Við tókum undir
það en sögðum að vissulega
hafi ntargir komið við sögu í
uppbyggingu fyrirtækisins en
það þurfi „mann með bein í
nefinu“ til að stjórna
stórfyrirtæki eins og
Hitaveitunni.
Það er ekki ofsögum sagt að
Hitaveita Suðurnesja hefur
haldið áfram að blómstra og
síðasta ár er gott dæmi um vöxt
fyrirtækisins. Þar hefur verið
byggt nýtt orkuver, númer
fimm, sem kostar 2500
milljónir króna og þar er haftn
30 megavatta raforkufram-
leiðsla og frekari heita-
vatnsframleiðsla hefst á næstu
vikum. Hitaveitan er metin á
átta milljarða króna og nú eru
uppi hugmyndir að gera
fyrirtækið að hlutafélagi.
1995 / Þorsteinn Erlingsson
Athafnamaðurinn Þorsteinn
Erlingsson var kjörinn maður
ársins 1995 af Víkurfréttum.
Þorsteinn hafði þegar þama var
kornið við sögu rekið
fiskvinnslu og útgerð í tvo
áratugi og verið baráttumaður
fyrir því að byggð yrði
loðnuverksmiðja í Helguvík.
Þegar viðtalið átti sér stað voru
byggingarframkvæmdir að
hefjast en þegar hafði verið
byggð flokkunarstöð fyrir
loðnu í Helguvík.
Þorsteinn hefur haldið áfram
baráttu sinni fyrir góðum
málum og framförum. Þannig
er híuin mikill stuðningsmaður
Reykianeshallarinnar sem
opnar á næstu vikum og hann
er óþreytandi baráttumaður
góðra mála.
1996 / Logi Þormóðsson
Logi Þormóðsson var enn einn
„fiskikarlinn" sem við kusum
sem mann ársins og nú fyrir
árið 1996. Logi var
framkvæmdastjóri í eigin
fyrirtæki, Trosi og einnig
stjómarfomiaður Fiskmarkaðar
Suðurnesja sem Vfkurfréttir
útnefndu við sama tækifæri