Víkurfréttir - 16.03.2000, Síða 2
Aðalfundur Sparisjóðsins:
Besta afhoma fpá upphafi
Aðalfundur Sparisjóðsins
var haldinn á þriðjudaginn
fyrir fullu húsi í Stapa. Þar
kom m.a. fram að Spari-
sjóðurinn í Keflavík skilaði
á síðasta ári hæstu arðsemi
eiginfjár í samanburði við
þá banka og sparisjóði sem
birt hafa afkomutölur. Nýtt
merki Sparisjóðsins var ein-
nig kynnt á fundinum og
var aimenn ánægja með
merkið.
Geirmundur Kristinsson
sparisjóðsstjóri sagði að árið
1999 hefði skilað bestu rekstr-
arafkomu Sparisjóðsins frá
upphafi. Hagnaður varð 148,9
milljónir eftir skatta og fram-
lag til afskriftareiknings, sam-
anborið við 80,3 milljónir á
árinu áður. Arðsemi eiginfjár
var 24,5% en var 16,0% á ár-
inu 1998.
Samþykkt var tillaga um 10%
arðgreiðslu til stofnfjáraðila,
auk þess var stofnfé endur-
metið um 5%. Tillögu um
aukningu stofnfjár var frestað.
Geirmundur ræddi sérstak-
lega mögulega hlutafjárvæð-
ingu Sparisjóðanna eða breytt
rekstrarfyrirkomulag. Hug-
myndin fékk jákvæðar undir-
tektir og var það mál fundar-
manna að Sparisjóðurinn í
Keflavík hefði fmmkvæði að
opinni umræðu um breytingar
á rekstrarfyrirkomulagi Spari-
sjóðanna. Stofnfjáraðilar
Sparisjóðsins í Keflavík eru
nú tæplega 500.
3ja ára fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar:
Bókhaldsbrellur og
óraunhæfar áætlanir
FRÉTTIR
Barátta gegn
reykingumí
bæjarstjórn
Mikil áróður hefur verið
gegn reykingum að undan-
förnu í öllum fjöimiðlum
enda veit hvert mannsbarn
liversu skaðlegar þær eru.
Kjartan Már Kjartansson
(I!) lagði til á fundi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar
að gerð yrði könnun á
reykingum meðal starfs-
manna bæjarins. Að at-
bugað yrði hversu margir
þeirra sem reykja vilja
liætla og hvernig reykinga-
mennirnir telji að vinnu-
veitandinn geti aðstoðað þá
við að hætta. ’l'illaga Kjart-
ans varsamþykkt 11-0.
Villflýta
lagningu
Suður-
strandar-
vegar
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum, Samtiik sunn-
lenskra sveitarlélaga og bæj-
arstjórn Grindavíkur, hafa
skorað á Alþingi og ríkis-
stjórn að beita sér fyrir að
lagningu Suðurstrandurveg-
ar niilíi Þorlákshafnar og
Grindavíkur verði liraðað
og að litið verði á lagningu
vegarins seni sérstakt verk-
efni í tengslum við fyrirhug-
aða kjördæmabreytingu,
þegar Suðurland og Reykja-
nes renna saman í eitt kjiir-
dæmi.
„Þar sem aðeins 3 ár eru þar
til kjiirdæmisbreytingin tek-
ur gildi er mjiig mikilvægt
að sem allra fyrst verði tekn-
ar ákvarðanir uin fram-
kvæmdina og I járniiignun
hennar. I því sambandi legg-
ja stjórnirnar áherslu á að
um sérstaka fjármögnun
verði að ræða, utan hefð-
bundinna fjárveitinga til
vegamál, þannig að það bitni
ekki á þeim verkefnuni sem
nú eru á dagskrá", segir orð-
rétt í ályktuniniii.
Ellert Eiríksson (D) bæjar-
stjóri lagði 3ja ára fjárhagsá-
ætlun Reykjanesbæjar fram í
síðustu viku og lagði til að
hún yrði samþykkt. Minni-
hlutinn dró hins vegar í efa
þær forsendur sem áætlunin
er byggð á. Aætlunin var
samþykkt með 7 atkvæðum
meirihlutans en minnihlutinn
sat hjá.
I bókun minnihlutans segir
m.a: „Að okkar mati er þó teflt
á tæpasta vað og jafnvel út fyr-
ir það í þeirri viðleitni að geta
sýnt fram á afgang af rekstri til
að greiða niður hluta af þeim
miklu skuldum sem stofnað
hefur verið tiL.Það að gera ráð
fyrir að skatttekjur bæjarins
aukist um 16,6% frá árinu
2000 til 2003 er e.t.v. ekki svo
óraunhæft, en að áætla að
rekstur málaflokka hækki ekki
nema um 2,8% á sama tíma, án
niðurskurðar á ákveðnum lið-
um, er með öllu óraunhæf áætl-
un. “
Að sama skapi telur minnihlut-
inn að aðrir liðir séu ranglega
áætlaðir og að þessir útreikn-
ingar séu ætlaðir til að slá ryki í
augu þeirra sem hafa áhyggjur
af fjármálastjóm meirihlutans.
Reykjaneshöllin var einnig til
umræðu og minnihlutinn spáir
því að rekstrarhalli hennar
verði um 29 niillj. kr. í ár, tæpar
27 millj. kr. á næsta ári og 23
millj. kr. árið 2003. „Fjárhags-
vandi Reykjanesbæjar er mikill
en honum verður ekki sópað
undir teppið með bókhalds-
brellum eða framlagninga
óraunhæfra áætlana", segja
fulltrúar minnihlutans.
Skúli Þ. Skúlason (B) oddviti
bæjarstjómar, sagði að áætlun-
in væri vissulega byggð á
ákveðnum forsendum. Hann
teldi þær forsendur raunhæfar
því þær væm byggðar á margra
ára reynslu og ráðleggingum
frá ríkisstofnunum. Eflaust
ættu þó einhverjar skekkjur eft-
ir að koma upp á yfirborðið.
„Hvernig skilgreinir þú fjár-
hagsvanda?“, sagði Skúli og
beindi orðum sínum til Jóhanns
Geirdal (J). „Bærinn á fyrir
skammtímaskuldum. Það er
rétt að við höfum aukið skuldir
og meirihlutinn er fullkomlega
meðvitaður um skuldastöðuna.
Markmið þessarar áætlunar er
því að ná rekstrarkostnaði nið-
ur um 70%, sem er göfugt
markmið. Við höfum lagt
mikla vinnu í hvem einstakan
lið þessarar áætlunar og unnið
af heiðarleika og raunhæfni",
sagði Skúli.
Reyknesbæingar hafa
margir hverjir kvartað yfir
þW að ná ekki skýrri mynd
í sjónvarpinu. Haft var
samband við ^firmenn
dreifikerfa RUV og ís-
lenska útvarpsfélagisins
sem sögðu að þessar trull-
anir stöfuðu af „skuggum“.
Bætt hefur verið úr þessu
tæknilega vandamáli með
nýjum sendum og litlu,
skrítnu skuggarnir eru því
horfnir.
Samband sveitarfélaga á
Suðumesjum hefur á undan-
fömum árum verið að þrýsta
á endurbætur á útsendingar-
styrk ljósvakamiðlanna. Að-
alfundur S.S.S. í Vogum
1998 ályktaði m.a um málið.
Var það gert í kjölfar könn-
unar á útsendingarstyrk sem
gerð var fyrir S.S.S. á svæð-
inu. Málinu hefur síðan ver-
ið fylgt eftir með fundum og
símtölum.
Hafa Ríkisútvarpið og Is-
lenska útvarpsfélagið gert úr-
bætur sem eiga að koma að
gagni fyrir íbúa svæðisins.
RUV hefur komið upp í
Landssíma-mastrinu í Kefla-
vík 100 watta UHF sendi á
rás 24 sem bætist við núver-
andi VHF rás 10 sem sendir
frá Vatnsenda. Obreyttir eru
sendar á VHF rás 8 frá Þor-
bimi til Grindavíkur og UHF
sendir á rás 30 frá Vogastapa
að Vogum.
Islenska útvarpsfélagið hefur
sett upp endurvarpa fyrir ör-
bylgjurásir á Þorbjörn sem
endurvarpar örbylgjumerkinu
þaðan í sendi sem staðsettur
er á TAL-mastrinu í Keflavík
og næst allt efhi á vegum Is-
lenska útvarpsfélagsins á ör-
bylgjuloftneti, einnig sendir
Islenska útvarpsfélagið eftir
sem áður á VHF rás 6 og 12
(Stöð 2 og Sýn). RÚV næst
einnig á örbylgju.
Sjónvarpsnotendur eru því
hvattir til að kynna sér jressa
nýju möguleika hjá tækni- og
þjónustuaðilum á svæðinu en
sjónvarpsstöðvamar vonast
eftir að þama sé komin fram-
tíðarlausn sem eigi eftir að
gagnast íbúum.
VIKUR
PRÉTTIR
Útgeiandi: Viknrfráttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 2G0 Njarðvik, sítni 421 4717, fax 421 2777
Ritstjóri: Páll Ketilsson, simi 893 3717 pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222 hbb@vf.is
Blaðamaður: 3ilja Dögg Gnnnarsdóttir silja@vf.is • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is, Jónas Franz Sigurjónsson franz@vf.is
Auglýsingagerð: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is - , , - .
ÚtUt, umbrot, htgreining og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Oddi hf. utHirSGIT ÚtgálcL! WTA/W.VI.ÍS