Víkurfréttir - 16.03.2000, Side 15
Fréttir úr bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
i
lþróttir og tómstundamál
Stefán Bjarkarson og gönguhópurinn sem mætir á
hverjum morgni í höllina.
Skemmtilegt
uppbyggingarstarf
Undanfarin ár hefur markvisst
verið unnið að uppbyggingu
íþróttamannvirkja í Reykjanesbæ.
Ekki aðeins við Reykjaneshöllina
heldur önnur smærri verkefni sem
þó eru ekkert smá þegar vel er að
gáö.
Reykjaneshöllin ekki eina verkefnið
Stefán Bjarkason, íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi Reykjanesbæjar, hef-
ur þá skoðun að fólk gleymdi því
stundum í allri umræðunni um fjöl-
nota húsiö, að Reykjanesbær hefði
m.a. byggt löglegan körfuboltavöll í
íþróttamiðstöö Heiðarskóla. „í
tengslum viö Heiðarskóla var einnig
byggð lítil kennslulaug sem var sér-
staklega hönnuö með þarfir fatlaðra
í huga og hún er með svokallaðri
kennaragryfju. Við alla grunnskól-
ana hefur verið komið upp gervi-
grasvöllum, upphituðum og upp-
lýstum. Auk þess var gerð tilraun
með að setja tartan-efni á körfu-
boltavöll við Njarðvíkurskóla og
hann er sá eini sinnar tegundar á
landinu", segir Stefán.
lnnisundlaug og fimleikasalur
Framkvæmdasamningar við knatt-
spyrnudeildir Keflavíkur og UMFN
um gerð grasvalla er í fullum gangi,
að sögn Stefáns. „Samningar voru
gerðir við Golfklúbb Suðurnesja og
skotdeild Keflavíkur um fram-
kvæmdir á þeirra félagssvæðum og
nýr æfingasalur hefur verið gerður
undir anddyri Sundmiðstöövar, sér-
staklega ætlaður júdó og karate.
Næstu stórverkefni okkar eru svo
innisundlaug og fimleikasalur og
þessi verkefni eru nú þegar komin
inn á 3ja ára fjárhagsáætlun bæjar-
ins", segir Stefán.
íþróttir og forvarnir
Stefáni verður tiörætt um forvarn-
argildi íþrótta, Reykjanesbær á réttu
róli og áhuga bæjarfulltrúa á að
byggja bæinn upp sem íþróttabæ.
„Þegar fólk fer að skilgreina hlutina
og tala um íþróttir og tilganginn
með þeim þá koma auðvitað alltaf
upp forvarnargildi þeirra. Menn
skoðuðu skýrslur sem sönnuðu
þetta, þ.e. þátttaka í íþróttum hafðj
sannanlega mikið forvarnargildi. í
framhaldi af því var samþykkt að
veita töluverðu fé I forvarnarverk-
efnið Reykjanesbær á réttu róli og
með því verkefni skárum við okkur
svolítið úr. Önnur sveitarfélög lögðu
ofuráherslu á vímuvarnarverkefni
en ekki alhliða forvarnarverkefni
með þátttöku allra bæjarbúa, eins
og við. Flest vimuvarnarverkefnin
voru líka svokölluð átaksverkefni í
nokkrar vikur eða mánuði en við
ákváðum að Reykjanesbær á réttu
róli yrði átaksverkefni í 150 ár til aö
byrja með", segir Stefán og brosir.
Yngri og eldri kynslóðir
Stefán segir að kraftur Tómstunda-
og íþróttaráös hafi að mestu fariö í
íþróttamálin að undanförnu en eins
og nafn ráðsins bendir til þá hefur
það líka með tómstundamálin að
gera. „Við stofnun þessa bæjarfélags
var ákveðiö að öll tómstundamál
ættu að vera á minni könnu þ.e.
ekki greina tómstundir eldri og
yngri hópa að. Þetta fyrirkomulag
hefur gefist afar vel og þó nokkur
bæjarfélög hafa tekiö þetta upp
eftir okkur. Draumurinn var alltaf sá
að samnýta bæði starfsfólk og hús-
næöi og að ungir og aldnir gætu
unnið saman þegar því væri við
komið. Nú hefur þessi draumur orð-
ið að veruleika að hluta þvi krakkar
úr Fjörheimum eru nú á keramik-
námskeiöi i Smiðjunni sem er að-
staöa aldraðra að Vesturbraut 17",
segir Stefán.
Hlutverk Fjörheima endurskoöað
A undanförnum misserum hefur
mikill tími og peningar farið í ein-
setningu grunnskólanna. Samhliða
þeirri vinnu var einnig farið að end-
urskipuleggja tómstundastörfin í
grunnskólunum. „Auðvitað erum við
aö gera tilraunir með þetta fyrir-
komulag, þ.e. að hafa Fjörheima
sem þjónustu- og félagsmiðstöð
fyrir alla grunnskólana og nú í vor
veröur væntanlega farið yfir þau
mál aftur og athugaö hvernig til
tókst", segir Stefán og tekur sér-
staklega fram að það hafi verið al-
veg frábært að fá að taka þátt í
þessu mikla uppbyggingarstarfi og
sjá hlutina verða aö veruleika.
! □ t
15
jfoiUiífíri Jjduikf