Víkurfréttir - 16.03.2000, Qupperneq 30
SPORT
Golfklúbbur
Suðurnesja
Félagar, munið útsenda gíróseðla,
sumarið er á næstu grösum.
Framkvæmdastjóri.
Karlakarfa
Grindavík - Keflavík
Fimmtudagur 16. mars ki.20,
íþróttahúsid Grindavík
Keflavík - Grindavík
Laugardagur 18. mars kl. 16,
Iþróttahúsid Kefiavík
Grindavík - Keflavík
Mánudagur 20. mars kl. 20,
íþróttahúsid Grindavík
Miðaverð 800 kr. fyrir fullorðna og 400 fyrir böm 11 ára og eldri.
' feonumií
EMngbe&i
Saltver
Njarðvihingar deildarmeistarar
Síðasta umferð EPSON deild-
arinnar var leikin síðasta föstu-
dag og tryggðu Njarðvíkingar sér
deildarmeistaratitilinn með sigri í
Keflavík 70-80 í leik sem var
góður forsmekkur að úrslita-
keppninni sem hefst í kvöld. Hin
toppliðin tvö sigruðu einnig,
Grindavík vann Tindastól á
Króknum 80-86 og Haukarnir
burstuðu KFi 110-75, en það var
til einskis. Njarðvíkingar geta vel
við unað, liðið varð fyrir áfalli
við fráfall Örlygs Sturlusonar á
miðju tímabili og nokkuð víst að
áfangasigurinn er að einhverju
leiti tileinkaður honum. Njarð-
víkingar enduðu með 36 af 44
stigum mögulegum og það þrátt
fyrir afar takmarkað framlag
erlendra leikmanna liðsins.
Samtals ftmm erlendir leikmenn
hafa leikið með liðinu, það sem
af er, og skilaði Riley Inge t.a.m.
aðeins tveimur stigum í hús gegn
Keflavík (0-10 í skotum).
Úrslitakeppnin
hefst í kvöid
Njarðvíkingar fá Hamars-
menn í heimsókn í kvöld í
fyrstu umferð úrslitakeppni
EPSON deildarinnar en
aðaleikir kvöldsins verða í
Grindavík þar sem Keflvík-
ingar mæta með nýjan útlend-
ing og á Sauðarkróki þar sem
KR-ingar tefla fram Baldri
Ólafssyni gegn Tindastól. I
Hafnarfjörð mæta sfðan
Þórsarar í sinni l'yrstu úrslita-
keppnisheimsókn til margra
ára.
Lykilatriði að vinna heima!
Deildarmeistara-
titillinn mikilvægur
„Þetta er búinn að vera erfiður
vetur hjá okkur og deildarmeis-
taratitillinn því sérlega mikil-
vægur áfangi. Hann bæði styrkir
okkur andlega og gefur okkur
heimaleikjaréttinn í úrslitakepp-
ninni” sagði Páll Kristinsson
leikmaður Njarðvíkinga. „Mig
hlakkar til að mæta Hamars-
mönnum í kvöld. Þeir eiga
örugglega eftir að berjast fram í
rauðan dauðann. Við munum
allir eftir leiknum á móti þeim í
Hveragerði og einbeitum okkur
frá fyrstu mínútu. Njarðvíkingar
mæta tilbúnir í úrslitakeppnina
eins og alltaf.”
Skemmtilegasti
tíminn í boltanum
„Ég hlakka til að mæta Grind-
víkingum og úrslitakeppnin
leggst mjög vel í mig. Ég hlakka
til hvers leiks því þetta er
skemmtilegasti tíminn í bolt-
anum” sagði Gunnar Einarsson
Keflvíkingur. „Nú skiptir öllu að
toppa á réttum tíma og taka einn
leik fyrir í einu.”
„Lykilatriði fyrir þá sem ætla að
ná árangri í úrslitakeppninni er
að vinna heimaleikina og ég er
viss um að grindvískir áhorf-
endur munu taka vel á móti
Keflvíkingum í fyrsta leik” sagði
Einar Einarsson þjálfari
bikarmeistara Grindvíkinga.
„Nokkrir leikmenn eiga við
meiðsl að stríða, sem er ekki
gott, en við erum að vinna í því
að gera þá tilbúna fyrir komandi
átök. Maður velur sér ekki
mótherja í úrslitakeppninni en ég
óttast ekki Keflvíkinga ef við
spilum okkar bolta.”
I----------------------------------------------------------------------------------------------------------1
| ■ Hrannar Hólm spáir í úrslitakeppnina:__________________________________________________________________ j
Njarðvík og Keflavík áfram
TINDASTÓLL áfram
L
- KR heim
Heyrst hefur að hinn hávaxni
Baídur Ólafsson komi til liðs
við Vesturbæinga fyrir úrslita-
keppnina og getur hann án efa
styrkt sóknaleik liðsins sem
hmndi við brottfall Johnathans
Bow fyrr í vetur. Engu að
síður eru Sauðkrækingar sig-
urstranglegri, sér í lagi þar
sem þeir hefja leik á
heimavelli (í fyrsta sinn, held
ég). Þeir eru núverandi Eggja-
bikarmeistarar og hafa ekki
leikið betur síðan Pétur
Guðmundsson var í fullu fjöri
um árið. Suðumesjamennimir
Kristinn Friðriks og Valur
Ingimundar veita liðinu
reynslu og sjálfstraust, og
Shawn Myers er tvímælalaust
einn besti Bandaríkja-
maðurinn á landinu um þessar
niundir. Fyrsti leikurinn
verður lykilatriði, ég reikna
með að Stólamir vinni hann
og klári einvígið síðan á
heimavelli, sem sagt 2-1.
NJARÐVÍK áfram -
HAMAR mettir heim
Auðveldasta spáin. Njarð-
víkingar hafa sýnt gríðarlegan
styrk á erfiðu tímabili og
ekkert lið hefur leikið betur.
Nýliðanna frá Hveragerði
bíður stutt úrslitakeppni, enda
em þeir eflaust ánægðir með
orðinn hlut, þótt Pétur Ingvars
segi annað. Njarðvíkingar geta
notað þessa umferð til að stilla
saman strengina fyrir eríiðari
leiki framundan og mun nýji
Bandaríkjamaðurinn, Riley
Inge, fá tækifæri til að falla
betur inn í leik liðsins. Hann
virðist þeim kostum gæddur
að þurfa ekki að vera í
sviðsljósinu og fá því hinar
raunvemlegu stjömur liðsins,
Teitur, Frikkamir, Hermann og
Palli, svigrúnt til að skína
skært. Njarðvík vinnur báða
leikina ömgglega.
HAUKAR áfram -
ÞÓR úr leik
Hætt er við að Norðanmenn,
líkt og Hamarsmenn, séu sáttir
við eigin frammistöðu. Þeir
léku síðast í úrslitakeppni fyrir
fimm árum og aðeins einn
leikmanna liðsins, Konráð
Óskarsson, hefur verulega
reynslu. Þessi staðreynd getur
hjálpað Hafnfirðingum, en
ekki má gleynta því að þeir
hafa ansi oft gefið verulega
eftir þegar úrslitakeppnin
hefst. En Jón Arnar og
Guðntundur Braga em öflugir
leikmenn sem vilja vinna
íslandsmeistaratitilinn. Þó
ekki geri ég ráð fyrir að það
takist, ætti þeim að takast að
sigra Þórsara, annað hvort 2-0
eða 2-1.
GRINDAVÍK í frí -
KEFLAVÍK áfram
Sannur Suðumesjaslagur. Hér
er útlit fyrir frábæra keppni og
allt opið í báða enda. Grinda-
vík er sigurstranglegra fyrir-
fram, þeir em bikarmeistarar
og hafa hinn stórsnjalla
Brenton Birmingham innan-
borðs og ekki má gleyma
“gamla manninum” Alex
Ermólinskí sem fyrr í vetur
hampaði sínum fyrsta titli hér-
lendis. En Grindavík er ekki
bara Brenton, heldur byggir
liðið á góðum skotmönnun,
sér í lagi Bjama og Guðlaugi,
og aggressívum varnarleik
með Ermó og Dag í miðjunni.
Menn vita hvað Grindavík
getur, en Keflavík er eitt stórt
spumingarmerki. Útlendinga-
vandræði hafa sett mark sitt á
leik liðsins og t.a.m óvíst
hvort Glover leikur með þeint
í úrslitakeppninni. Hitt vitum
við, að innan liðsins em öflug-
ir leikmenn, Gaui, Hjörtur,
Gunni og Fannar, sem á
góðum degi geta gert öllum
líftð leitt. Vonlaust er að spá af
einhverju viti um úrslit þar
sem Keflvíkingar mæta með
“nýtt” lið. Engu að síður leyfi
ég mér að spá liðunum sínu
hvomm sigrinum í upphaft, og
að úrslitin ráðist í oddaleik.
Hver vinnur? Jú, einhvern
veginn hef ég á tilfinningunni
að Siggi Ingimundar og
strákamir nái að sýna sitt rétta
andlit og haft sigur á síðustu
stundu í síðasta leik.
30