Víkurfréttir - 31.08.2000, Blaðsíða 14
Okumenn! ~\
Minnumst þess að // /
aðstaða barna í /p r~ w
umferðinnieralltönnur §1
v en fullorðinna! \ ÍM
Umferðaröryggisfulltrúi
24 TÍMA FRÉTTAVAKT
898 2222
Þjónustuver Símans 800 7000
S í MIN N
siminn.is
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ SÍAAANS • HAFNARGÖTU 40 • KEFLAVÍK • SÍMI 420 1515
Ljósanótt
✓
lykjanesbæ
00 - 20.00
\NUAA
Fjölskylduhátíð á Ljásanótt
Ljósanótt verður haldin há-
tíðlega í Reykjanesbæ nk.
laugardag. Mikið verður
um dýrðir og munu verslanir,
söfn, gallerí og veitingastaðir
verða með ýmis tilboð í gangi í til-
efni dagsins en dagskráin hefst
kl.14, eins og fram kemur annars
staðar í VF í dag. Kveikt verður á
Ijósunum á Berginu kl. 22 og flug-
eldasýning í kjölfarið. Bæjarbú-
um gefst síðan kostur á að sigla
meðfram Berginu og skoða her-
legheitin.
Mikill áhugi
Drög að dagskrá Ljósanætur litu
fyrst dagsins ljós fyrir rúmri viku
síðan og hefur undirbúningsnefnd á
vegum Markaðs- og atvinnuráðs,
skipuð Steinþóri Jónssyni, Guð-
björgu Glóð Logadóttur Johanni D.
Jónssyni. lagt nótt við nýtan dag til
að dagskráin verði sem fjölbreytileg-
ust og höfði til allra aldurshópa.
„Við gætum vissulega gert enn betur
ef tírninn hefði verið lengri, en áhugi
fyrirtækja og bæjarbúa á þátttöku
var ótrúlegur og með þeirra hjálp er
Ljósanótt orðin að veruleika", segir
Steinþór.
Hugmyndin vaknaði 1998
Lýsing Bergsins hafði mun lengri
meðgöngutíma en undirbúningur
Ljósanætur. Árið 1998 fékk Steinþór
þá hugmynd að lýsa upp Bergið en á
síðustu mánuðum hefur Markaðs-
og atvinnuráð Reykjanesbæjar haft
umsjón með framkvæmdinni í sam-
vinnu við Reykjanesbæ, Hitaveitu
Suðumesja, Menningarborg Reykja-
vík 2000, Hafnarsamlag Suðumesja
auk rúmlega tuttugu fyrirtækja í
Reykjanesbæ sem hafa fjármagnað
verkefnið að langstærstum hluta.
Umhverfislistaverk
Steinþór Jónsson, formaður undir-
búningsnefndar, segir að hugmyndin
hafi verið að gera umhverfislistaverk
sem myndi bæta ímynd bæjarins.
„Mig langaði til að fá bæjarbúa til að
meta það sem er fallegt í bænum,
staði eins og Bergið. Málið var sent
til G.H. heildverslunar í Garðabæ
sem sendi hugmyndina áfram til iG-
uzzini á Ítalíu. ítalimir gerðu tölvu-
mynd af lýsingunni og málið var
síðan tekið fyrir í bæjarráði í sumar.
Bæjarráð samþykkti að styrkja verk-
efnið en heildarkostnaður vegna lýs-
ingarinnar og Ljósanætur er um 5
milljónir króna. Fyrirtæki og ein-
staklingar hafa sýnt verkefninu mik-
inn áhuga og okkur hefur því tekist
að safna fyrir kostnaðinum1', segir
Steinþór.
Mikill sómi að frágangi Ijósanna
Aðalverktaki á uppsetningu lampan-
na er Nesraf og undirverktaki Stein-
steypusögun S.H., sá unt lagningu
strengsins á Berginu. „Sem dæmi
má nefna voru festingarnar fyrir
lampana endurhannaðar af Hjörleifi
Stefánssyni í Nesraf, þannig að allt
viðhald og umgengni er til sóma“,
segir Steinþór.
14