Víkurfréttir - 31.08.2000, Síða 25
HÖNNUN: Víkurfréttir auglýsingasmiöja
Dagskrá á
Suðumesjum
MENNTUN ER SKEMMTUN
4.- lO.september 2000
Vika símenntunar:
Myndlistarsýning frá Listasafni íslands,
„Listamennfjórða áratugarins" eropin
hjá Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum, að Skólavegi 1 í Keflavíkfrá
kl. 13-16 virka daga og helgartil
17. september og er aðgangur ókeypis.
Sýnd eru 16 verk listamannanna Snorra
Arinbjarnar, Jóns Engilberts og Jóhanns
Briem sem allir komu fram eftir 1930.
Sýning á safngögnum á íslensku sem
nýtast fólki til sjálfsnáms á tölvu verður
í bókasafni Reykjanesbæjar, Hafnargötu
57 á opnunartíma safnsins kl. 10-20 virka
daga og laugardaga frá kl. 10-16.
Bæklingur þar sem m.a. er listi yfir þessi
gögn er fáanalegur á safninu. Á degi
símenntunar þann 8. september mun
starfsfólk safnsins vera fólki til aðstoðar
sem vill fá að prófa sjálft í tölvum
safnsins.
Fræðasetrið í Sandgerði er opið frá kl.
9-17 virka daga. Þemadagar 9. og 10.
september kl. 13:00 - 17:00:
Hvað leynist í fjörunni?
Þriðjudagur 5. september
Ráðstefna í Eldborg við Orkuver Hitaveitu Suðurnesja
í Svartsengi kl. 14:00;
„Símenntun í íslensku atvinnulífi" frá sjónarhorni þeirra sem bera
ábyrgð á henni, þ. e. starfsmanna, atvinnurekenda, stéttarfélaga og
hins opinbera. Ráðstefnan mun fjalla um stöðu símenntunarmála í
dag og framtíðarhorfur en dvelur ekki við það sem á undan er gengið.
Dagskrá:
Skúli Thoroddsen, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á
Suðurnesjum kynnir ráðstefnuna og býður gesti velkomna.
Menntamálaráðherra, Björn Bjarnasonar; setur ráðstefnuna
og fjallar um símenntun frá sjónarhorni hins opinbera.
Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun.
Símenntun frá sjónarhorni fagfólks.
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ.
Símenntun frá sjónarhorni stéttarfélaga.
Arný Elíasdóttir, fræðslustjóri hjá Eimskip hf.
Símenntun í atvinnufyrirtækjum.
Berglind Bjarnadóttir, starfsmaður Reykjanesbæjar:
Símenntun frá sjónarhorni starfsmanna.
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja.
Símenntun frá sjónarhorni atvinnuveitenda.
Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum
stjórnar pallborðsumræðum.
Fundarstóri; Einar Njálsson bæjarstjóri í Grindavík.
Miðvikudagur 6. september
Blað Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
og námsskrá dreifttil allra íbúa á Suðurnesjum
Fimmtudagur 7. september
Umfjöllun í staðarblöðum um gildi símenntunar
Föstudagur 8. september, símenntunardagurinn.
Kl. 13-16 Reykjanesbær býður öllum starfsmönnum bæjarins
til kynningar á tækifærum til símenntunar í bæjarfélaginu.
Kynning fer fram hjá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
(MSS), Skólavegi 1 í Keflavík,
Kl. 16-18
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Öldungaráð
Fjölbrautaskólans og Tölvuskóli Suðurnesja kynna starfsemi
sína fyrir viðskiptavinum í stórmarkaði Samkaupa í Njarðvík
Laugardagur 9. september.
Kl. 10-14
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis,
Verslunarmannafélag Suðurnesja og Iðnsveinafélag
Suðurnesja standa fyrir kynningu á styrkjum til
starfsmenntunar hjá fræðslusjóðum félaganna aðSkólavegi 1
hjá MSS sem einnig kynnir staifsemi sína og námsmöguleika.
Skráning á námskeið hjá Miðstöð símenntunarferfram
á sama stað.
Sunnudagur 10. september
Kl. 13-16
Skráning á námskeið hjá MSS að Skólavegi 1.
Éj
MlÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR
Á SUÐURNESJUM
______________
Daglega á Netinu • www.vf.is
25