Víkurfréttir - 31.08.2000, Page 27
■
íslandsbanki valdi Magnús Svein Jónsson sundmann úr Keflavík og Önnu Margréti Ólafsdóttur
frjálsíþróttakonu úr FH til þess að slást í för með Erni Arnarsyni íþróttamanni ársins og íslenska
Ólympíulandsliðinu til Sydney og láta draum sérhvers íþróttamanns rætast. Magnús og Anna
Margrét munu dvelja í „Sydney Youth Camp" þar sem þau stunda iþróttir, ferðast um Ástraliu,
kynnast menningu og listum frumbyggja og upplifa stórkostlega íþróttaleika. Á heimasíðu
fslandsbanka www.isbank.is munum við svo í samvinnu við mbl.is fylgjast með krökkunum
í Ástralíu og frétta það helsta sem á daga þeirra drífur.
Af hverju Magnús og Anna?
Magnús æfir 7-9 sinnum í viku. Hann er einn besti fjórsundsmaður landsins og hefur áunnið
sér sæti í úrvalshópi Sundsambands (slands. Anna Margrét er framúrskarandi frjálsíþróttakona,
á m.a. íslandsmet í 60 m grindahlaupi innanhúss og hefur verið í Aþenuhópnum í nokkur ár.
Bæði eru góðir námsmenn og að sjálfsögðu viðskiptavinir íslandsbanka!
'\
Gott mál
Áfram fsland!
Islandsbanki styrkir
Iþrótta og Ólympiu-
L/vfy samband (slands
^mbl.is
-ALLTA^ C/TrMVAO /VÝT~7
ISLAN DSBAN Kl
- hluti af Íslandsbanka-FBA
Þau fara til Sydney
- í boði Islandsbanka
Keflavfk
27