Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2001, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 15.03.2001, Qupperneq 12
ítrekuð skemmdar- verk á húsi KFUM og K ✓ Itrekuð skemmdarverk hafa verið unnin á húsi KFUM og K í Keflavík síðustu misseri. Forstöðufólk hússins hefur nú fengið nóg. Ungmenni hafa gert sér að leik að kasta grjóti að anddyri hússins og oftar en ekki brotna rúður. Fyrir helgi voru allar rúður í anddyri félagsheimilisins brotnar og mikið tjón unnið. Skemmdarverkin vom unnin í björtu. Forstöðufólkið segir grjóthríðina koma frá leikvelli gengt húsinu. Nú stendur til að setja upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu til að kom- ast að því hver stendur fyrir skemmdarverkunum en tjónið nemur orðið hundmðum þúsunda og sú staða að koma upp að tryggingafélög vilja ekki tryggja fé- lagið vegna ítrekaðra skemmdarverka. Torfærukarlinn tekur við hjólbarðaþjónustunni Gunnar Gunnarsson, torfærukappi, hefur tekið við rekstri dekkjaverkstæðisins við Að- alstöðina. Fyrirtækið heitir nú Hjólbarðaþjónusta Gunna Gunn ehf. A verk- stæðinu fá menn alla al- menna hjólbarðaþjónustu, þrif og bón og einnig er hægt að kaupa og fá viðgerð á nýj- um og sóluðum hjólbörðum. „Við emm með tilboð á tjöm- þvotti og sápubóni út þennan mánuð, aðeins 1290 krónur. Þjónustan verður annars í föst- um skorðum en það er aldrei að vita nema við bætum við einhverjum nýjungum. Þetta er bara byrjunin, svo sjáum við hvað verður", segir Gunni. Þetta er í fyrsta sinn sem Gunni er með slíkan rekstur en hann hefur unnið á dekkjaverkstæði og hefur víðtæka þekkingu á bflum og öllu sem þeim fylgir, enda forfallinn bíladellukarl. Bræðurnir Gunni og Hörður starfa saman í fyrirtækinu en að sögn Gunna munu þeir bæta við starfsfólki á álagstím- um. „Við erum að fá nýja vél á næstunni fyrir stóru jeppana, svokölluð umfelgunar- og ball- enseringavél. Einnig má benda á neyðarnúmerið okkar 861- 2216 en í það geta viðskipta- vinir okkar hringt allan sólar- hringinn, þegar þeir þurfa á að- stoð okkar að halda“, segir Gunni. Bræöurnir Gunni og Hörður starfa saman í fyrirtækinu en að sögn Gunna munu þeir bæta við starfsfólki á álagstímum. Tobba opnar syningu My ndlistarkonan Þorbjörg Óskars- dóttir, Tobba, opn- ar sýningu í Betri stofunni í versluninni Bústoð nk. fóstu- dag, 16. mars. Sýningin verð- ur opin til 24. mars. Tobba er ung að árum en hefur verið mjög dugleg við sýninga- hald. Síðast hélt hún sýningu í Gallerí Hringlist nú í nóvem- ber. Listunnendur geta litið við á vinnustofu Tobbu Aðalgötu 23, Keflavík eða haft samband í síma 864-9184. Geirmundur á Ránni Hljómsveit Geirmund- ar Valtýssonar leikur fyrir dansi á Ránni nk. föstudagskvöld 16. mars. Hljómsveitin byrjar að spila kl. 11 og heldur uppi stuðinu fram eftir nóttu. Stemningin verður góð eins og alltaf þeg- ar Geirmundur mætir með sveifluna að norðan. Aðalsafnaðarfundur Útskálasóknar A ðalsafnaðarfundur /% Útskálasóknar verður X JBLhaldinn sunnudaginn 18. mars kl. 15 í safnaðar- heimilinu Sæborgu í Garði strax að aflokinni guðsþjón- ustu í Útskálakirkju. Boðið verður til kafflsamsætis. Dagskrá: Hefðbundin aðal- fundarstörf. Sóknarfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í um- ræðum sem varða kirkjuna okkar. Sóknarnefnd Útskálasóknar 12

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.